Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 88
3. september 2011 LAUGARDAGUR52
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. spil, 6. fíngerð líkamshár, 8. mat-
jurt, 9. gerast, 11. í röð, 12. vaða, 14.
brestir, 16. tveir eins, 17. hyggja, 18.
eyrir, 20. belti, 21. könnun.
LÓÐRÉTT
1. fyrst fædd, 3. klafi, 4. hugarró, 5.
angan, 7. galli, 10. sprækur, 13. flík,
15. knött, 16. ósigur, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gosi, 6. ló, 8. kál, 9. ske,
11. lm, 12. torfa, 14. snark, 16. tt, 17.
trú, 18. aur, 20. ól, 21. próf.
LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. ok, 4. sálarró, 5.
ilm, 7. ókostur, 10. ern, 13. fat, 15.
kúlu, 16. tap, 19. ró.
Handritshöfundurinn 2011 sat við tölvuskjáinn og las yfir byrjunina
á sjónvarpsþættinum sem hann hafði
skrifað: „Jón lögregluforingi stóð yfir
líkinu. Morðið hafði verið óvenjulegt og
frumlegt. Verst að götulöggan hafði spillt
vettvangnum. Nýliðinn í hópnum kastaði
upp. Aðrir í hópnum voru drykkfelldur
ruddi, kvennabósi og ung stúlka sem átti
erfitt uppdráttar innan lögreglunnar
vegna kynferðis síns. Sjálfur glímdi Jón
við vandræði í einkalífinu.“
HANDRITSHÖFUNDURINN dæsti.
Hann sá að þetta var alls ekki nógu
gott, þetta var ekki nógu nýstárlegt
og spennandi. Þetta hafði verið gert
áður. Hann strokaði það út sem hann
hafði skrifað og byrjaði upp á nýtt:
„Angantýr lögregluforingi stóð yfir
líkinu. Morðið hafði verið óvenjulegt
og frumlegt. Verst að götulögg-
an hafði spillt vettvangnum.
Nýliðinn í hópnum kast-
aði upp. Aðrir í hópn-
um voru drykkfelld-
ur ruddi, kvennabósi
og ung stúlka sem átti
erfitt uppdráttar innan
lögreglunnar vegna
kynferðis síns. Sjálfur
glímdi Angantýr við
vandræði í einkalífinu.“
HANDRITSHÖFUNDURINN staldraði
við. Þetta var að vísu skárra, en samt ekki
nógu gott. Hann þurfti að fá glænýja hug-
mynd, eitthvað sem enginn byggist við, eitt-
hvað sem myndi líma fólk við skjáinn frá
byrjun. Hann strokaði þetta líka út og klór-
aði sér í hausnum. Allt í einu laust snjall-
ræði niður í hausinn á honum. Þetta var
eitthvað annað. Hann skrifaði: „Guðbjörg
lögregluforingi stóð yfir líkinu. Hún hafði
átt erfitt uppdráttar innan lögreglunnar
vegna kynferðis síns. Sjálf glímdi hún við
vandræði í einkalífinu. Morðið hafði verið
óvenjulegt og frumlegt. Verst að götulöggan
hafði spillt vettvangnum. Nýliðinn í hópn-
um kastaði upp. Aðrir í hópnum voru drykk-
felldur ruddi og kvennabósi.“
NEI. Þótt honum færi reyndar jafnt og þétt
fram var hann samt ekki ánægður. Hann
þurfti að detta niður á einhverja glænýja
nálgun. Þá varð hann fyrir opinberun.
Hvað með að gera sjónvarpsþátt sem
fjallaði ekki um löggur að leysa morðmál?
Slíkur þáttur kæmi eins og þruma úr heið-
skíru lofti. Handritshöfundurinn fylltist
aðdáun á sjálfum sér. Þetta var gargandi
snilld. Hann klæjaði í lófana að hefjast
handa. Handritshöfundurinn fálmaði eftir
gemsanum sínum og fór í flýti að fletta í
gegn um símanúmerin í minninu í leit að
einhverjum sem kunni að elda og var ekki
þegar búinn að gera matreiðsluþátt.
Handritshöfundurinn 2011
EIGUM VIÐ
AÐ DEILA
SJÁVARRÉTTA-
MATSEÐLI?
Allt í einu
lauk
stefnumótinu á
vandræðalegan
hátt
Manstu hvað
stuðningsmenn
Darlington heita?
The
Quakers!
Gott, það er
svo mikil-
vægt...
Bíddu
nú
aðeins!
Ilmúði?
Eitthvað
þannig.
Það lyktar allt hérna
eins og blautir táningar
og ég er að reyna að
fríska upp á loftið með
einhverju aðeins skárra.
(Sniff!)
(Sniff!)
Hvað er
þetta?
Fjárhundur.
Þú gleymdir að
setja lokið aftur
á tannkremið.
Nei, ég sleppti því
bara af því ég vissi að
þú værir að fara að
nota það.
Ég skil, en ég vil taka
lokið af sjálfur.
Ég er svo skrýtinn.
Ekki
málið.
Þú verður pirruð þegar
ég er með svona tiktúrur,
ekki satt?
Ég er svo
skrýtin.
Ég held ég verði
bara að hætta í
skólanum, höfuðið
á mér er fullt!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
NÚ ER UMRÆÐAN
FJÖLBREYTTARI,
SKEMMTILEGRI
FJÖRLEGRI,
ÍTARLEGRI OG
AÐGENGILEGRI Á
VÍSI