Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 110
3. september 2011 LAUGARDAGUR74
TVEGGJA TÍMA
HLÁTURSKAST...
MEÐ HLÉI
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Mjög vel heppnaður farsi, hraður
og ótrúlega fyndinn“ – IÞ, Mbl
GRÍMAN 2011:
Áhorfenda-
sýning ársins
Sala áskrift
arkorta
í fullum gangi
– vertu með í vet
ur
SÝNINGAR H
EFJAST 9. SE
PT.
Verði þér að góðu (Kassinn)
Fös 2.9. Kl. 20:00
Lau 3.9. Kl. 21:30
Sun 4.9. Kl. 21:00
Lau 10.9. Kl. 19:30
Sun 11.9. Kl. 19:30
Listaverkið (Stóra sviðið)
Lau 1.10. Kl. 16:00 2. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fös 7.10. Kl. 19:30 5. sýn.
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2.9. Kl. 19:30 16. sýn.
Lau 3.9.Kl. 19:30 17. sýn.
Fös 9.9. Kl. 19:30 18. sýn.
Lau 10.9. Kl. 19:30 19. sýn.
Fös 16.9. Kl. 19:30 20. sýn.
Lau 17.9. Kl. 19:30 21. sýn.
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18.9. Kl. 19:30 2. sýn.
Fös 23.9. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 24.9. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 25.9. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 30.9. Kl. 19:30 6. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 7. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 8. sýn.
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28.8. Kl. 14:00 31. sýn.
Sun 4.9. Kl. 14:00 32. sýn.
Sun 11.9. Kl. 14:00 33. sýn.
Sun 18.9. Kl. 14:00 34. sýn.
Sun 25.9. Kl. 14:00 35. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 21.10. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 27.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Fös 28.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fim 3.11. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 6. sýn.
Mið 9.11. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 8. sýn.
Ö
U
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 3.9. Kl. 22:00
Fös 9.9. Kl. 22:00
Fös 16.9.Kl. 22:00
Fös 23.9. Kl. 22:00
Fös 30.9. Kl. 2:00
PERSÓNAN
„Ég get staðfest að ég er að vinna
við þessa mynd en meira get ég
ekki sagt við þig. Það er mikil
öryggisgæsla í kringum þessa
mynd og það má ekkert leka út,“
segir Heba Þórisdóttir, förðunar-
meistari í Hollywood.
Heba er nú að vinna með banda-
rísku stjörnunni Scarlett Johans-
son við gerð hasarmyndarinnar
The Avengers. Þar sameina krafta
sína allar helstu söguhetjur Mar-
vel-myndasögurisans í baráttunni
gegn tortímingu heimsins. Meðal
þeirra sem bregður fyrir í mynd-
inni eru Iron Man, sem Robert
Downey Jr. leikur, Thor í meðför-
um Chris Hemsworth og Captain
America, leikinn af Chris Evans.
Scarlett leikur sem fyrr Natöshu
Romanoff, Svörtu ekkjuna. Gríð-
arleg leynd hvílir yfir tökustaðn-
um og nákvæmlega ekkert má leka
út um hvað fer þar fram. Marvel-
myndasöguhetjurnar hafa enda
notið mikilla vinsælda á hvíta
tjaldin undanfarin ár og The
Avengers er hugsuð sem rúsín-
an í pylsuendanum á þeirri miklu
rússíbanareið. Heba, sem hefur
marga fjöruna sopið í kvikmynda-
bransanum, segist ekki muna eftir
annarri eins leynd.
Heba hefur haft nóg fyrir stafni
að undanförnu þótt hún reyni yfir-
leitt að halda sig í grennd við Los
Angeles. „Ég vil helst ekki vinna
við fleiri en tvær kvikmyndir
sem teknar eru utan Los Ange-
les á ári,“ segir Heba, en hún var
Cate Blanchett innan handar við
gerð myndarinnar Hanna og var
yfir förðuninni á gamanmyndinni
Bridesmaids sem sló í gegn hér
á landi. Heba gegndi sama hlut-
verki í kvikmyndinni We Bought a
Zoo eftir Cameron Crowe, en eins
og kom fram í fjölmiðlum fyrir
skemmstu semur Jónsi úr Sigur
Rós tónlistina við þá mynd.
Heba segir að nú verði hins
HEBA ÞÓRISDÓTTIR: GETUR EINBEITT SÉR AÐ FERLINUM NÚNA
Segi aldrei nei við Scarlett
eða Quentin Tarantino
Björgvin Halldórsson og rokksveit hans
Elephant Poetry hafa gefið út sína fyrstu
plötu, sem nefnist Trash Can Honey. Hljóm-
sveitin er dönsk/íslensk og auk forsprakkans
Björgvins, sem jafnan er kallaður Bjöggi,
skipa hana þeir Anders Klint, Dan Lings og
Janus Bragi Jakobsson.
„Við kynntumst í meistaranámi árið 2002.
Þetta hefur verið hobbý hjá okkur en við
ákváðum að fara í þetta, taka upp og tékka á
því hvað gerist,“ segir Björgvin, sem er ekk-
ert skyldur hinum fræga alnafna sínum og
tónlistargoðsögn. Hann er búsettur á Íslandi
en er með annan fótinn í Danmörku. Spurður
hvort honum hafi ekki verið ruglað saman
við Bo Hall í gegnum árin segir hann: „Ég
fæ mjög oft símtöl. Einhverjar fullar kerl-
ingar á Súðavík eða eitthvað. Ég er orðinn
frekar þreyttur á þessu.“
Elephant Poetry hefur spilað af og til í
Danmörku og voru fyrstu tónleikarnir á Ves-
terbro-hátíðinni í Kaupmannahöfn 2003.
Sama ár gáfu Björgvin og félagar út prufu-
útgáfu með þremur lögum sem fékk fimm
stjörnur af sex mögulegum í tímaritinu
Soundvenue.
Nýja platan var að mestu tekin upp í Kaup-
mannahöfn í fyrra og var hún hljóðblönduð
í Sundlauginni í Mosfellsbæ af Birgi Jóni
Birgissyni. Platan verður eingöngu fáanleg
á netinu til að byrja með, á síðunni Elephant-
poetry.bandcamp.com og á Gogoyoko.com.
Fyrsta smáskífulagið nefnist More than the
Sun. - fb
Fyrsta plata Bjögga Halldórs og félaga
„Þetta er mín ástríða,“ segir Hel-
ena Reynisdóttir, sem hefur opnað
sína fyrstu einkasýningu, aðeins
sautján ára.
„Þetta eru portrettteikning-
ar af frægum leikurum, mjög
nákvæmnar teikningar,“ segir
Helena, en myndirnar eru sjö tals-
ins. Tvær þeirra eru mjög stórar,
af Ingvari E. Sigurðssyni og henni
sjálfri. „Ég held að það hafi verið
erfiðast út af því að þetta er mitt
eigið andlit,“ segir hún um sjálfs-
myndina. „Ég sé kannski ef það
er eitthvað vitlaust en ég held að
aðrir sjái það ekki.“
Aðrir leikarar sem Helena hefur
teiknað undanfarna mánuði eru
Jón Gnarr, Edda Björgvinsdóttir,
Tómas Lemarquis, Baltasar Kor-
mákur og Anita Briem. „Ég ákvað
að hafa þema með leikurum. Sýn-
ingin heitir Ekki er allt sem sýnist
af því að þetta eru leikarar. Maður
veit aldrei hvort þetta eru í alvör-
unni þeir eða hvort þeir eru að
leika,“ segir Helena.
Aðspurð segist hún hafa reynt að
bjóða öllum myndefnunum sínum á
sýninguna en það hafi gengið mis-
vel. „Ég er búin að reyna að ná í
þau en það er frekar erfitt. Ég er
búin að bjóða Eddu en ég veit ekki
hvort hún kemst.“
Helena, sem er í Mennntaskólan-
um í Hamrahlíð, hefur farið á eitt
myndlistarnámskeið en er annars
sjálfmenntuð í faginu. „Þetta er
bara mitt áhugamál. Mamma mín
er myndlistarkennari og afi minn
var útskurðarmeistari. Það eru
allir einhvers konar listamenn í
fjölskyldunni.“
Sýningin fer fram í kaffihúsinu
Energia í Smáralind og stendur
yfir út september. - fb
Teiknar andlit frægra leikara
ALVÖRU
STÓRMYND
Það vantar ekki
stórstjörnurnar
á tökustað The
Avengers, en
Heba Þórisdóttir sér
um förðun í myndinni. Chris
Hemsworth, Chris Evans og
Robert Downey Jr. endur-
taka allir leikinn sem Thor,
Captain America og Iron
Man. Scarlett Johansson er
á sínum stað sem Svarta
ekkjan en Heba Þórisdóttir
segir aldrei nei við vinnu
með Scarlett.
vegar breyting á ferlinum því
yngri sonur hennar er farinn í
Boston-háskólann: „Og ég get því
unnið eins og brjálæðingur og átt
ekkert líf,“ segir Heba og hlær.
Næsta verkefni hennar verður
Tarantino-myndin Djangho Unc-
hained með Leonardo DiCaprio,
Samuel L. Jackson, Kevin Costner
og Jamie Foxx í aðalhlutverkum.
„Það eru tveir skjólstæðingar sem
ég segi aldrei nei við; Scarlett og
Tarantino.“
freyrgigja@frettabladid.is
Kristín Soffía Jónsdóttir
Starf: Ráðskona.
Aldur: Þrítug.
Búseta: Vesturbær.
Fjölskylda: Kvart dönsk, hálf í
Þýskalandi og annars alveg ágæt.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Kristín Soffía starfar einnig sem varafor-
maður umhverfis- og samgönguráðs
og stóð að því að gera Laugaveginn að
göngugötu í sumar.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Aðallagahöfundur rokk-
sveitarinnar Elephant Poetry, Björgvin Halldórsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
HJÁ INGVARI E. Helena við hlið
myndarinnar af Ingvari E. Sigurðssyni
sem verður á sýningunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM