Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 104
3. september 2011 LAUGARDAGUR68
Æfingar eru að hefjast í körfubolta hjá ÍR.
Allir eru velkomnir að koma og prófa þessa
skemmtilegu og vinsælu íþrótt. Bara að mæta
á æfingatíma fyrir þinn aldurshóp og sjá hvort
þér líkar. Æfingar fara fram í íþróttahúsum í
Breiðholti.
Upplýsingar um æfingatíma er hægt að fá í
síma 587-7080, hjá þjálfurum eða á heimasíðu
ÍR (www.ir.is)
Hvers vegna ættu krakkar að æfa
körfubolta hjá ÍR:
Tveggja vikna reynslutími. Þú getur
prófað án skuldbindingar og kostnaðar í
tvær vikur.
Frábærir þjálfarar. Hjá ÍR eru bara
reyndir og skemmtilegir þjálfarar.
Margar æfingar og leikir. Þeir sem
æfa körfubolta taka þátt í mörgum
æfingum og fá að keppa við önnur lið
frá október og fram í maí.
Félagsskapur. Körfubolti er liðsíþrótt
og þú getur eignast vini og félaga sem
vinna með þér að því að ná góðum
árangri.
Körfubolti er fyrir alla
langar þig að æfa körfubolta?
Körfuknattleiksdeild
Íþróttir eru máttugar. Ekki bara fyrir það eitt að hjálpa okkur að hrista auka-
kílóin, jafnvel að hrista þau AF okkur. Kraftur þeirra snertir okkur á marga
vegu, sérstaklega okkur sem erum að djöflast í þessu reglulega. Regluleg
hreyfing hressir, bætir og kætir.
Sjálf hef ég alltaf litið á æfingatíma sem griðastað.
Hvort sem það er í hópi eða bara alein með sjálfri
mér að púla og strita. Þegar það gengur illa í einka-
lífinu eða erfiðleikarnir banka óheyrilega mikið upp á
er hægt að kúpla sig algjörlega út með því að mæta á
eina hrikalega góða æfingu. Þar skiptir ekkert annað
máli en átökin, úrslitin í leikjunum og einbeitingin að
ná sem bestum árangri í því sem maður er að taka
fyrir á æfingunni. Slæm sambandsslit, ástvinamissir,
veikindi, meiðsli, skapvonska, álag í vinnu eða bara
skuldahalinn sem eltir mann út um allt – þetta hengir
maður á snagann inni í klefa og drífur sig af stað inn í
heim íþróttarinnar.
Það að geta gert þetta hefur bjargað geðheilsunni
á mínum dimmu stundum á lífsleiðinni. Þvílíkt frelsi
að geta andað alla leið ofan í maga og fundið orkuna
innra með sér. Fótboltinn hefur verið mitt athvarf,
minn sálfræðingur og mín bómullarkúla – en ég tek
hann alvarlega enda máttur hans mikill. Það þarf
samt ekkert endilega að vera fótbolti – göngutúr
með hundinn út í skóg nægir oftar en ekki. Í staðinn
fyrir að vera fórnarlamb aðstæðna með milljón litla
áhyggjubolta skoppandi um í hausnum á sér er
bara að drífa sig í góða skó og úlpu út í ferska íslenska veðráttu og fara í
göngutúr, eða í sund eða bara það sem getur gefið þér þennan frið. Sums
staðar eru skrifaðir út lyfseðlar á hreyfingu – hvernig væri það í skamm-
degisþunglyndinu og kvíðanum að fá að komast í þessa yndislegu nautn
sem hreyfingin er með fagaðila þér við hlið?
Félagsskapurinn einn og sér sem fylgir íþróttunum fullnægir þörf margra
til að líða betur. Ég hef kynnst alls konar fólki í gegnum íþróttirnar sem ég
hef stundað og þá er meirihluti þessa fólks búinn að hafa stórkostleg áhrif á
mig og það á góðan hátt.
Auðvitað er fólk mismunandi steikt (það þekkja nú allir of kaldhæðna
fávitann sem finnst allir og allt vera ömurlegt), það eiga allir sína sögu. EN
allir eiga sína styrkleika og sínar góðu hliðar. Það er yndisleg tilfinning að
fá að vera partur af góðum hópi þar sem hópsálin og liðsandinn er öllu
yfirsterkari og manni finnst ekkert vera ómögulegt, í hita leiksins er algleymi
við völd og ekkert getur stöðvað sigurvélina í að strauja yfir andstæðingana.
Stundum getur líka þessi hópkennd verið til staðar þó svo að úrslitin séu
ekki eftir pöntun, þannig að maður er tilbúinn að leggja allt í sölurnar fyrir
liðsfélagann og félagarnir eru settir á undan öllum öðrum í goggunarröð-
inni. Að vinna saman og að tapa saman.
Hringdu nú í vin eða vinkonu sem þú hefur ekki hitt lengi og skellið ykkur
saman í göngu/skokk og spjall, þú átt ekki eftir að sjá eftir því.
GLÍMA Bardagaíþróttakappinn
Gunnar Nelson verður meðal
keppanda á Mjölnir Open glímu-
mótinu sem haldið verður á laug-
ardaginn kemur. Þetta er í sjötta
sinn sem mótið er haldið, en keppt
er í svokallaðri nogi-glímu.
Gunnar býst við sterku móti og
segir íslenska glímumenn verða
sterkari með hverju árinu sem
líði. Meðal keppenda í ár verða
Anna Soffía Víkingsdóttir, Norður-
landameistari í júdó, og Sighvatur
Helgason, sem er einn efnilegasti
glímumaður landsins.
„Hann er meira en bara efni-
legur – hann er hrikalega góður,“
segir Gunnar um Sighvat. „Hann
er ungur, aðeins nítján ára. Það
er kannski til marks um það hvað
gæðastigið er orðið hátt í glím-
unni hjá unga fólkinu. Það er ekki
hlaupið að því að sigra hann.“
Gunnar hefur ekki alltaf átt
heimangengt á Mjölnir Open en
hefur sigrað í þau skipti sem hann
hefur keppt. Hann mundi þó ekki
alveg eftir því að hafa sigrað í
fyrra þegar blaðamaður talaði við
hann í gær.
„Nei, ég var ekki með í fyrra
en við erum að fletta þessu upp.
Heyrðu jú! Ég var með í fyrra,“
sagði Gunnar pollrólegur. Gunn-
ar vann þá gull í mínus 88 kílóa
flokki og í opnum flokki karla.
Hann vann hann allar sínar glímur
á mótinu, 8 talsins, á fullnaðarsigri
eða með því að neyða andstæðing-
inn til uppgjafar. Fyrrnefndur Sig-
hvatur Helgason, var sá eini sem
náði að skora á hann stig á öllu
mótinu.
Gunnar býr sig nú undir Abu
Dhabi-glímumótið sem fram fer
í Nottingham, en það er sterkasta
glímumót í heimi. Gunnar fer út
21. þessa mánaðar en mótið sjálft
hefst hinn 25.
Mjölnismótið fer nú fram í
fyrsta skipti í Mjölniskastalanum
svokallaða, en bardagaklúbburinn
hefur aðsetur í gamla Loftkastal-
anum á Seljavegi.
Aðstæður hjá Mjölni eru með
besta móti því þótt gamla leikhús-
inu hafi verið breytt í glímusal
var hluti áhorfendapallana skil-
inn eftir svo þar eru sæti fyrir
að minnsta kosti hundrað manns.
Mótið hefst klukkan 11 á laugar-
dag og er aðgangseyrir 500 krón-
ur.
- kh
Glímumótið Mjölnir Open verður haldið í sjötta sinn á laugardaginn og Gunnar Nelson verður með:
Að undirbúa sig fyrir sterkasta mót heims
NOGI Tveir keppa í glímu án galla þar til annar nær að yfirbuga andstæðinginn með
lás eða hengingartaki og þvingar hann til uppgjafar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Griðastaður
Edda Garðarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu
HANDBOLTI Björgvin Páll Gústavs-
son er nýjasti Íslendingurinn í
þýsku deildinni sem hefst í dag,
en hann mun spila sinn fyrsta
leik með Magdeburg á heimavelli
á móti Göppingen í dag. Leikur-
inn hefst klukkan 17.00 og er í
beinni á Stöð 2 Sport.
„Þetta er allt miklu stærra en
í Sviss enda er þetta stærsta og
besta deildin í heiminum. Tak-
markið var að komast hingað,
það tókst og nú er bara að standa
sig,“ sagði Björgvin Páll í viðtali
á Stöð 2 í gærkvöldi.
„Það er gaman að fá að byrja
á svona hörkuleik.
Göppingen er lið
sem við þurfum
að vinna ef við
ætlum að gera eitt-
hvað í deildinni.
Það er svipað að
styrkleika og
við. Þetta er
mjög mikil-
vægur leik-
ur,“ sagði
Björgvin.
- óój
Björgvin Páll í beinni í dag:
Allt er miklu
stærra en í Sviss
Það er
yndisleg
tilfinning að fá
að vera partur
af góðum
hópi þar sem
hópsálin og
liðsandinn
er öllu
yfirsterkari og
manni finnst
ekkert vera
ómögulegt.