Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 4

Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 4
3. september 2011 LAUGARDAGUR4 Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir N Skráning og fyrirspurnir í símum 53401100, 8220043 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s Vellíðan án lyfja með verkfærum sálfræðinnar GENGIÐ 02.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,6882 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,12 114,66 185,00 185,90 162,58 163,48 21,821 21,949 21,141 21,265 17,820 17,924 1,4855 1,4941 182,53 183,61 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is STJÓRNSÝSLA Kínverski fjárfest- irinn Huang Nubo vill reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Nubo vill hefja framkvæmdir við uppbyggingu ferðamanna- þj ó n u s t u á Grímsstöðum á Fjöllum sem fyrst, en hann bíður nú eftir undanþágu frá innanríkisráðu- neytinu fyrir kaupum á lóð- inni. Þetta segir Halldór Jóhannsson, aðstoðarmað- ur Nubo á Íslandi. „Hann vill reisa 300 herbergja, fimm stjörnu ráðstefnuhótel í Reykjavík. En hann verður auðvit- að að bíða eftir haldbærum svör- um frá yfirvöldum áður en nokkuð slíkt getur hafist,“ segir Halldór. Ekkert hefur enn verið ákveð- ið með staðsetningu fyrirhug- aðs hótels, en Nubo hefur fengið ábendingar um byggingarreitinn sunnan við Hörpu sem ákjósan- legan stað. Fyrirætlanir Nubos á Gríms- stöðum eru stórtækar. Hann hygg- ur á að reisa 250 herbergja lúxus- hótel ásamt því að koma upp litlum leigubústöðum víðs vegar um landareignina fyrir fjölskyldufólk. Þá eiga einnig að verða heilsulind og golfvöllur á svæðinu. Halldór undrast mjög þá umræðu sem hefur verið um málið á undanförnum dögum. „Við áttum alltaf von á því að það yrðu skiptar skoðanir, en við bjuggumst ekki alveg við þessum viðbrögðum. Það má meta þetta þannig að væntingar Íslendinga til nýrra hluta eru mjög miklar,“ segir hann. Að sögn Halldórs hefur Nubo aldrei sýnt nokkurn áhuga á því að kaupa út hlut ríkisins í Gríms- stöðum, sem er 25 prósent. Hann hafi ætíð viljað vinna málið í fullri samvinnu við ríkið. „Hann lagði sjálfur upp drög að samkomulagi við yfirvöld til að draga úr vafa og efasemdum,“ segir hann. „Hann er tilbúinn að afsala sér vatnsréttindum og sam- þykkja að hluti af jörðinni verði þjóðgarður. Hann vill hefja sam- starf við Landgræðsluna, Ferða- málastofu og skipulagsyfirvöld. Boltinn er alfarið hjá ráðamönn- um.“ Veiti innanríkisráðuneytið Nubo undanþágu til kaupanna er stefnt að því að starfsemi á ferðamanna- svæðinu á Grímsstöðum hefjist árið 2014. Svipaðar fyrirætlanir eru með 300 herbergja hótelið í Reykjavík. sunna@frettabladid.is Huang Nubo vill reisa lúxus- hótel við hliðina á Hörpu Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo hefur áhuga á því að reisa 300 herbergja hótel í Reykjavík. Byggingar- reiturinn við Hörpu er talinn ákjósanlegur. Nubo vill framkvæmdir við hótelið og Grímsstaði samtímis. HARPA Áformum um byggingu hótels við Hörpu var slegið á frest í kjölfar hrunsins, en kínverski athafnamaðurinn Huang Nubo hefur áhuga á því að reisa hótel á reitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMKEPPNISMÁL Jóhann Páll Valdi- marsson, útgefandi hjá Forlaginu, segir Samkeppniseftirlitið hafa lagt fyrirtækið í einelti síðustu ár. Þrátt fyrir blómlega samkeppni í útgáfu láti eftirlitið fyrirtækið ekki í friði. „Það er einfaldlega þannig að íslensk bókaútgáfa rís ekki undir þeim kostnaði sem það hefur óhjá- kvæmilega í för með sér að þurfa að fá lögfræðinga til að svara enda- lausum erindum frá Samkeppnis- eftirlitinu. Kostnaður okkar vegna þeirrar sáttar sem við þurftum að gangast undir árið 2008 er farinn að nema tugum millj- óna utan sekt- arinnar,“ segir Jóhann Páll. Bókaútgáfan Forlagið varð til við samruna Eddu-útgáfu og JPV árið 2007. Samkeppniseftirlitið neitaði hins vegar að samþykkja hann nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Forlagið féllst að lokum á skilyrðin sem það hefur þurft að starfa eftir síðan. Fyrr á þessu ári sektaði Sam- keppniseftirlitið Forlagið um 25 milljónir vegna brota á skilyrð- unum. Taldi það Forlagið hafa sent seljendum leiðbeinandi smá- söluverð sem brjóti í bága við skil- yrðin. Forlagið hefur mótmælt sektinni harðlega og vísað henni til áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála. Í tilkynningu sem fyrirtæk- ið sendi frá sér segir að það telji það óþekkt að fyrirtæki með jafn- litla hlutdeild af heildarmarkaði sé beitt svo harkalegum viðurlögum. Jóhann Páll segir einkennilegt að Samkeppniseftirlitið hafi lagst gegn samrunanum á sínum tíma. „Ef við hefðum gert þetta hálfu ári síðar hefði þessi samruni ekki einu sinni verið tilkynningaskyld- ur þar sem lögum var breytt og veltumörk hækkuð. Við höfum því margoft farið fram á endurskoðun á sáttinni en án árangurs. Okkur er einfaldlega ókleift að starfa eftir þessari sátt, hún stenst ekki veru- leikann,“ segir Jóhann Páll. - mþl Útgefandi hjá Forlaginu gagnrýnir Samkeppniseftirlitið harðlega fyrir inngrip eftirlitsins á útgáfumarkaði: Segir Samkeppniseftirlitið leggja Forlagið í einelti JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 31° 26° 21° 28° 29° 19° 19° 26° 24° 24° 27° 30° 17° 29° 25° 19°Á MORGUN Hæg norðlæg eða breytileg átt. MÁNUDAGUR 5-10 m/s. 10 10 12 9 12 12 12 13 13 14 7 7 4 4 8 14 8 4 3 5 4 4 10 15 8 15 12 118 12 12 13 MILT OG FÍNT Það dregur úr vætunni er líður á dag- inn en má víða búast við skúrum. Vindur verður yfi r- leitt hægur nema norðvestan til og á Vestfjörðum. Nokkuð milt og stillt á morgun og úrkomulítið og því kjörið að skella sér í berjamó. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður Byggingarreiturinn sunnan við tónlistarhúsið Hörpu var boðinn út í júlí síðastliðnum. Eignarhaldsfélaginu Sítus, dótturfélagi Austurhafnar ehf., bárust sex formleg tilboð frá aðilum sem lýstu yfir áhuga á að reisa þar hótel. Samkvæmt upplýsingum frá Sítusi var Nubo ekki einn þeirra. Þeir sem gerðu tilboð í reitinn koma meðal annars frá Indlandi, Sviss og Íslandi. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hver þessara sex aðila, ef einhver, fái reitnum úthlutað en verið er að fara yfir málið. Hefur ekki lagt fram formlegt tilboð HUANG NUBO Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Huangs Nubo á fjár- festingum hérlendis. Þetta kemur fram í viðtali breska dagblaðsins Financial Times við forsetann. Ólafur Ragnar segir þetta vera til marks um blómstrandi samskipti Íslands og Kína í kjölfar hrunsins. „Kína og Indland veittu Íslandi alls kyns uppbyggilega aðstoð en Evrópa var hins vegar fjand- samleg og Bandaríkin skiptu sér ekki af,” segir hann. Vitaskuld þurfi að fara gaumgæfilega í saumana á fyrirætlunum Nubos en engin ástæða sé hins vegar til að óttast fjárfestingar Kínverja. - sh Fagnar áhuga ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON ÞÝSKALAND Víða í Evrópulöndum hafa auðmenn tekið undir kröfur bandaríska peningamannsins Warrens Buffet um hærri skatta á hendur auðjöfrum. Fjórir vellauðugir Þjóðverjar skoruðu í vikunni á þýsk stjórn- völd að leggja hærri skatta á rík- asta hluta samfélagsins, og segja sig ekkert muna um að taka meiri þátt í að bera skattbyrðarnar. Í Frakklandi hafa sextán auð- ugir menn birt svipaða áskorun til stjórnvalda, og nokkuð langt er síðan fimmtíu forríkir Þjóðverjar höfðu frumkvæði að því að krefj- ast hærri skatta á auðjöfra. - gb Auðmenn í Evrópu jákvæðir: Vilja ólmir hærri skatta REYKJAVÍK Reykjavíkurborg vantar enn 43 starfsmenn til að manna stöður á frístundaheim- ilum. Fjöldi barna á biðlista eftir plássi er nú um 350. Í síðustu viku vantaði 86 starfs- menn og um 650 börn voru á biðlista. Eva Einarsdóttir, for- maður íþrótta- og tómstundaráðs, vonast til þess að búið verði að ráða í allar stöður á næstu tveim til þrem vikum. „Það endaði að minnsta kosti þannig í fyrra. Þetta small saman að lokum,“ segir Eva. - sv Um 350 börn enn á biðlista: Borgina vantar 43 starfsmenn FRÍSTUNDIR Um 350 börn bíða þess nú að fá pláss á frístundaheimilum borgarinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.