Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 42

Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 42
4 fjölskyldan ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT SKILA LEIFTURSÓKNIR ARSENAL TITLI Í ÁR? 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. anum og leyfið barninu að ýta á takkann til að blanda drykknum saman. Hellið í glös og lesið eft- irlætisbókina fyrir barnið meðan þið gæðið ykkur á drykknum eða hlustið á hljóðbók (sem má finna í góðu úrvali á Borgarbókasafninu til dæmis). Margar aðrar hollar og einfaldar uppskriftir er gaman að gera með leikskólabörnum, svo sem salat. Listasýning Sláið upp listasýningu í stofunni. Teiknið og litið röð mynda með barninu og raðið á stofuveggina. Listasýningin getur svo opnað formlega þegar eldri systkinin koma heim eða þá að afa og ömmu er boðið að koma og sjá sýninguna daginn eftir. Jafnvel má eyða nokkrum dögum í að setja sýn- inguna upp og hafa opnunarhátíð á sunnudegi. Teboð Bjóðið öllum dúkkum, böngs- um, systkinum og litlum nágrönnum í teboð. Takið tesettið fram, hellið mjólk í bollana og raðið kexkökum eða öðru góð- gæti á diskana. Út að kríta Hlýja haustdaga er um að gera að nýta utandyra en það þarf ekki að leita langt yfir skammt að góðri skemmtun. Pakki af krítum, í öllum regnbogans litum, og stétt er það eina sem þarf. Teiknið hringi á stéttina og bjóðið barninu að hoppa inn og út úr þeim. Eða dragið langa beina línu og æfið línudans. Skreytið stéttina með alls kyns formum og reynið að henda litlum steinum inn í þau þannig að þeir lendi innan þeirra. Góð æfing líka í að þekkja litina og þá má teikna tölustafi og bókstafi og ræða hvað þeir heita. Spagettíleikur fyrir þau yngri Ótrúlega einfaldur leikur sem þau yngri gleyma sér í. Það sem til þarf er stórt pastasigti og ósoðið spaghetti. Hvolfið sigtinu á borð eða jafn- vel gólfið, brjótið spagettí- ið í tvennt og sýnið litlu manneskjunni hvernig hægt er að stinga því inn í götin á sigtinu og láta það hverfa. Góð æfing fyrir fínhreyfingarnar og afbragðs skemmtun. Myndaföndur Finnið til gömul tímarit og önnur blöð sem föndra má með og farið í gegnum blöðin með barninu í leit að myndum sem því líkar. Klippið myndirnar út og leyfið barninu að spreyta sig með ykkar hjálp á barna- skær- um. Límið myndirnar svo á karton eða annan þykkan pappír. Biðjið barnið að segja ykkur hvað hlutirnir heita og skrifið svo heiti þeirra með bókstöfum undir myndirnar. Tjald í stofunni Klassískur og sískemmti- legur leikur er að finna til pullur, teppi, púða, stóla og annað sem til þarf til að byggja „tjald“ eða lítið „hús“ í stofunni. Börnin geta hjálpað ykkur eftir því sem þau eru eldri en börnum á öllum aldri þykir ákaflega gaman að dunda sér inni í „húsinu“ að framkvæmdum loknum. Fara með bangsa og dúkk- ur þar í útilegu, gefa þeim að borða af bollastelli og vera á vappi inn og út úr húsinu. Lautarferð innan- dyra, með samlokum og drykkjum, getur svo fylgt í framhaldinu. Leggið einfaldlega teppi á vel val- inn stað í stofunni og geisladiskur með náttúruhljóðum, fuglasöng eða froskahljóðum, myndi auðvitað fullkomna stemninguna. - jma Teboð Eftir leikskóla má útbúa væna veislu handa öllum mjúku vinunum. Klassískt Börn hafa gaman af því að útbúa „tjald“ eða „hús“ inni í stofu. Litað úti Meðan veður leyfir er ekki úr vegi að fara út með börnunum að kríta. Teiknið hringi og notið þá sem fleti til að hoppa inn á og út úr og æfið börnin í að þekkja litina. FRAMHALD AF FORSÍÐU Föndur Auðvelt er að gleyma sér við að klippa út fallegar myndir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.