Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 6
3. september 2011 LAUGARDAGUR6
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Lau frá kl. 11-17
Ótrúlegt
verð
90x200 39.000,- 65.900,-
100x200 42.000,- 69.900,-
120x200 48.000,- 75.900,-
140x200 53.000,- 79.900,-
160x200 67.900,- 99.900,-
180x200 73.900,- 109.900,-
Gegnheilar
viðarlappir
100%
bómullaráklæði
Svæðaskipt
Góðar
kantstyrkingar
Sterkur
botn
ALÞINGI Ætla mætti að stjórnarliðar og
stjórnarandstæðingar lifi ekki í sama
samfélaginu, ef marka má umræður á
Alþingi. Þing kom saman að nýju í gær og
til umræðu var munnleg skýrsla forsætis-
ráðherra um stöðuna í efnahags- og atvinnu-
málum. Stjórnarliðar gerðu mikið úr þeim
árangri sem náðst hefði í efnahagsmálum og
vitnuðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
og erlendra, jafnt sem innlendra, álitsgjafa
máli sínu til stuðnings.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra gerðu mikið úr þeirri staðreynd að
samstarfinu við AGS væri lokið og það
sýndi ótvírætt að Ísland væri á réttri leið.
Tiltóku þau ýmsar efnahagsstærðir máli
sínu til stuðnings.
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson sjá hlutina ekki sömu augum
og stjórnin en virðast sammála um að hér
hafi flest farið á versta veg í tíð vinstri-
stjórnarinnar. Þeir báru brigður á tölur
stjórnarliða og vísuðu til mikils atvinnuleys-
is og fólksflótta máli sínu til stuðnings.
Bjarni sagði stjórnina ekki vera starfs-
hæfa, hún nyti minnsta mögulega meiri-
hluta á þingi, og aðeins um þriðjungur kjós-
enda styddi hana samkvæmt könnunum.
„Það blasir við að það þarf að stokka spilin
upp á nýtt og boða til kosninga. Við þurfum
nýtt upphaf.“
Jóhanna svaraði því til að sömu kannanir
sýndu að þjóðin treysti ekki stjórnarand-
stöðunni. „Það er ekki þannig að fólk vilji
að stjórnarandstaðan taki við þjóðarbúinu.
Það er eðlilegt því hún hefur engar lausnir í
þessum málum.“
Steingrímur kallaði eftir því að menn við-
urkenndu það sem vel hefði tekist og tækju
höndum saman um að gera enn betur. Hann
vísaði í nýlegt hlutabréfaútboð ríkisins,
þegar ein milljón dala fékkst á alþjóðlegum
mörkuðum. Þar væru komnir óvilhallir
dómarar um íslenskt efnahagslíf.
„Ekki eru þeir sem fjárfestu peninga sína
þar á mála hjá ríkisstjórninni.“
Ef eitthvað er að marka þennan upphafs-
dag er ljóst að ekki er von á samstöðu á
Alþingi um að vinna þjóðinni til heilla. Lík-
legra er að sama karpið um sömu leiðirnar
verði áberandi. kolbeinn@frettabladid.is
Allt á uppleið eða í kaldakoli
Íslenskt efnahagslíf er á réttri leið og mikilvægum áföngum hefur verið náð á leið til endurreisnar ef
marka má stjórnarliða. Frá sjónarhóli stjórnarandstæðinga er allt enn í kaldakoli og von á annarri kreppu.
ÞUNG UMRÆÐA Himinn og haf skildi að skoðanir stjórnarliða og stjórnarandstæðinga á því hvernig ástandið í
íslensku efnahagslífi væri. Alþingi tók til starfa að nýju í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Til stóð að allsherjarnefnd
afgreiddi frumvarp um stjórn-
kerfisbreytingar í gær en til þess
kom þó ekki. Þráinn Bertelsson,
þingmaður Vinstri grænna,
greiddi atkvæði gegn frum-
varpinu og þar með var ekki
meirihluti fyrir því.
Flokkssystir Þráins, Álfheiður
Ingadóttir, er varaformaður
nefndarinnar. Hún segir að
málið hafi einfaldlega ekki
verið tilbúið, að mati Þráins. Mikil pressa hafi verið
um að klára það og afgreiða hefði þurft miklar
breytingar á skömmum tíma. Kannski hefði verið
rétt að óska strax eftir frestun til mánudags, en
reynt hafi verið að ljúka málinu
fyrir hálf ellefu í gærmorgun.
„Við þurfum greinilega lengri
tíma í málið til að skapa það
svigrúm sem þarf.“
Umdeildustu atriði frum-
varpsins snúa að því að for-
sætisráðherra eru færð völd til
breytinga á stjórnarráði. Í því
felst að sameina ráðuneyti eða
leggja niður. Þá er tekist á um
hvort leyfa eigi hljóðupptökur
á fundum þingnefnda. Allsherjarnefnd fundar á
mánudag og vonir standa til þess að hægt verði að
ljúka málinu þá. Ekki náðist í Þráin Bertelsson við
vinnslu fréttarinnar.
Þráinn stöðvaði stjórnkerfisbreytingar
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
ÞRÁINN
BERTELSSON
FERÐAMÁL Gistinóttum Íslendinga
í júlí fjölgaði um 52 prósent á
milli ára. Gistinætur útlendinga
voru einnig fleiri og jukust þær
um þrettán prósent frá fyrra ári.
Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofunnar. Alls voru gistinætur
í júlí 229.100 samanborið við
196.700 nætur í fyrra. Gisti-
nætur útlendinga nema um 88
prósentum af heildarfjöldanum.
Á höfuðborgarsvæðinu voru
135.800 gistinætur í júlí sem er
samkvæmt Hagstofunni 21 pró-
sents aukning frá fyrra ári.
Nýjar tölur um gistinætur:
Landinn gistir
oftar á hótelum
VÍSINDI Þeir sem eru byrjaðir að fá
há kollvik ættu ekki að örvænta
því samkvæmt nýrri rannsókn
er búið að finna lausnina við hár-
missi.
Vísindamenn við Yale-háskól-
ann í Bandaríkjunum telja sig
vera búna að finna lausnina við
hármissi – sem hefur plagað
margan manninn í gegnum tíð-
ina. Þeir segjast hafa fundið út
hvaða fitufrumur það eru sem
valda því að óvirkar hárfrumur
lifna aftur við.
Þegar hárfrumur deyja skrepp-
ur fitulagið í hársverðinum
saman en stofnfrumurnar lifa
áfram. Lausn vísindamannanna
felst í því að hægt verði að lífga
stofnfrumurnar við með því að
sprauta fitufrumunum inn í þær.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar í tímaritinu Cell. Pró-
fessor í líffræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla segist vera mjög
spenntur yfir niðurstöðunum en
segir þó enn langt í land – þetta
sé einungis á rannsóknarstigi.
Aðferðin hefur þegar verið
prófuð á músum með góðum
árangri. En hvort það skipti máli
í þessu tilviki, að vera maður eða
mús, verður að koma í ljós. - bl
Vísindamenn við Yale-háskólann kynna nýja rannsókn í virtu vísindatímariti:
Telja sig hafa fundið lausn við skalla
SKALLI Vísindamennirnir hafa prófað
aðferðina á músum með góðum árangri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Innflytjendum
tóbaks verður hér eftir skylt
að birta ljósmyndir í lit á öllum
umbúðum sem innihalda tóbaks-
vörur þar sem varað er við skað-
semi vörunnar.
Samkvæmt reglugerð velferð-
arráðherra verður heimilt að
flytja inn tóbaksvörur með eldri
merkingum til næstu áramóta,
og selja tóbak með eldri merk-
ingunum til loka júlí á næsta ári.
Eftir það verða allar umbúðir að
vera með nýju viðvörununum.
Samkvæmt reglugerðinni
þurfa tóbaksframleiðendur að
standa kostnað af breytingunni.
- bj
Breyttar reglur um tóbak:
Litmyndir á
öllum pökkum
VIÐVÖRUN Dæmi um viðvörun á sígar-
ettupakka. FRÉTTABLAÐIÖÐ/AP
Á Ísland að bjóða fram aðstoð
við uppbyggingu í Líbíu eftir að
friður kemst á í landinu?
Já 23%
Nei 77%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hafa verðkannanir áhrif á það
hvar þú kaupir í matinn?
Segðu skoðun þína á visir.is.
STJÓRNSÝSLA Íbúðalánasjóður
braut ekki jafnréttislög þegar
hann réð Sigurð Erlingsson sem
framkvæmdastjóra sjóðsins
haustið 2010. Þetta er niðurstaða
kærunefndar jafnréttismála.
Kærandinn, sem er kona,
taldi á sér brotið þar sem hún
hefði verið hæfari eða jafnhæf
Sigurði. Íbúðalánasjóður taldi
að Sigurður hefði verið hæfasti
umsækjandinn.
Kærunefnd jafnréttismála
telur að Íbúðalánasjóður hafi
sýnt fram á að aðrar ástæður en
kynferði hafi legið að baki ráðn-
ingunni. - sh
Kærunefnd skilar niðurstöðu:
ÍLS braut ekki
jafnréttislög
KJÖRKASSINN