Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 24

Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 24
3. september 2011 LAUGARDAGUR24 L andbúnaður er mikið í deiglunni um þessar mundir og markast það ekki síst af álitamálum sem tengjast aðildar- umsókn að Evrópu- sambandinu. Sú mynd sem dreg- in er upp er oft á tíðum einsleit og gefur þá mynd í hugskoti leik- mannsins að bændur þessa lands séu argasta afturhald sem hræðist breytingar. Það er því góður skóli fyrir hvern þann sem hefur áhuga á lífinu í landinu að bregða sér austur á Fljótsdalshérað og heim- sækja Eymund Magnússon bónda og eiginkonu hans Eygló Björk Ólafsdóttur í Vallanesi. Í stuttu máli er Vallanes leiðandi bú á sviði lífrænnar ræktunnar á Íslandi og var annað landsvæðið hérlendis sem lýst var laust við erfðabreytt- ar lífverur. Þetta tvennt er grunn- urinn alls annars í búskap þeirra hjóna og hefur gefið þeim þá sér- stöðu sem starfsemin hvílir á. Vallanes Býlið Vallanes er staðsett á Fljóts- dalshéraði í Vallahreppi miðja vegu á milli Hallormsstaðar og Egilsstaða. Jörðin er 350 hektarar lands og öll viði vaxin. Prestssetur var í Vallanesi til 1975 og Vallanes- kirkja, sem var vígð 1931, heilsar gestum áður en komið er að býlinu sjálfu. Þar taka hjónin Eymund- ur og Eygló á móti ferðalöngum og bjóða til stofu. Eða til sætis í Sítrónuhúsinu, ef nákvæmni er gætt. Sítrónuhúsið er gróðurhús þar sem framandi plöntum er gefið tækifæri til að sýna andlitið. Sól- blóm grípa augað en nafngiftin er hins vegar dregin af „sítrónutré“, tíu sentimetra háu, sem Eymundur þarf að vekja sérstaka athygli á. Í og við húsið er ætlunin að rækta ávaxtatré. Góðlátlegum efasemda- röddum blaðamanna er í litlu sinnt og svarað með útskýringum á ýmsum hugmyndum um hvern- ig ávöxtur trjánna verður nýtt- ur þegar þau gefa uppskeru eftir einhver ár. Blaðamanni varð ekki ljóst fyrr en síðar þennan sama dag að efasemdir og verkkvíði eiga ekki heima í Vallanesi enda væri þá lítið þar að sjá. Jörðin ber Um aldamótin 1900 var gamli Vallanesbærinn ónýtur og þá keypti séra Magnús Blöndal, prest- ur í Vallanesi, landið sem liggur að Vallanesjörðinni og gaf nafnið Jaðar. Hann byggði þar mikið hús sem enn er mikil prýði að. Með þessum kaupum séra Magnúsar færðist allur búskapur frá Valla- nesi og öll jarðrækt einskorðaðist við Jaðarlandið. „Þegar ég kom að Vallanesi hafði ekki verið hér bóndi í tvo áratugi. Túnið var þriggja hektara skeifa í kringum fjósið þar sem hvorki var vatn né rafmagn. Íbúð- arhúsið hélt vart vatni eða vindi og útihúsin voru að falli komin. Jörð- in var í raun nakin og beið eftir mér,“ segir Eymundur. Eymundur lýsir því að hann og fyrrverandi eiginkona hans til 23 ára, Kristbjörg Kristmunds- dóttir, höfðu leitað víða fyrir sér um jörð eftir að þau komu austur á Hérað. Ein þeirra var Vallanes en Eymundur viðurkennir að sér hafi ekkert litist á jörðina, og það þvert á ráðleggingar staðkunnugra sem sögðu landkosti þar mikla. Ljóst var að ábúð á jörðinni þýddi ekki að hægt væri að hefja búskap heldur að byrja þyrfti á núllpunkti. Hins vegar höfðu leiðangrar á ófáar eyðijarðir og heimsóknir á jarðir sem voru að losna ekki skil- að neinu svo úr varð að þau hjón- in fluttu að Vallanesi árið 1979. „Það var kalt vor og aðkoman ekki skemmtileg. Hins vegar kom í ljós að þetta er kostajörð þó hún bæri það ekki með sér. Hér er frábært land til ræktunar“, segir Eymund- ur. „Það hafði mikið að segja þegar ég lét undan ræktunarmanninum innra með mér og hætti kúabúskap með öllu.“ Úrtölur Hér vísar Eymundur til þess að hann ætlaði sér að stunda kúabú- skap í Vallanesi. Í áratug fram- leiddi hann mjólk en nautakjöts- framleiðsla var einnig töluverð. Ærinn tími fór í að byggja upp húsakostinn og brjóta landið og segja má að Vallanes hafi verið dæmigerð austfirsk jörð með hefð- bundinn búskap. Hins vegar lýsir Eymundur því að á þeim tíma var settur á kvóti í mjólkurfram- leiðslu. Mönnum var skammtaður kvóti eftir framleiðslu sem fór illa við býli í uppbyggingu á þessum tíma. Þess utan var verð á kjöti lágt og það var því margt sem ýtti Eymundi í þá átt sem hann síðar valdi; bæði í ytra umhverfi land- búnaðarins í landinu en ekki síður persónulega hjá þeim hjónum. Lífræn ræktun var þeim hugleik- in og Kristbjörg hafði frumkvæði að því að allt sem gekk til heim- ilisins var lífrænt. Það vatt upp á sig, segir Eymundur og aðrir sem höfðu áhuga á lífrænt ræktuðum afurðum settu sig í samband og keyptu töluvert magn grænmetis og korns. „Það hafa verið margir úrtölu- menn á leiðinni. Bændur sem voru hér fyrir gáfu þessum hugmynd- um falleinkunn og hvöttu okkur til að halda okkur við hefðbund- inn búskap. Ég var, og er, álitinn sérvitringur, sem ég tek bara sem hrósi. En þakklátir neytendur hafa á móti alltaf verið hvatinn til að halda áfram,“ segir Eymundur. Nú er svo komið að ekkert skepnuhald er í Vallanesi, ef frá eru taldar nokkrar landnámshæn- ur sem munu sjá Vallanesfólk- inu fyrir eggjum í framtíðinni. Eymundi fannst skepnuhaldið fara illa með ræktuninni og full- vinnslu afurða í neytendapakkn- ingar þó hann hafi síðustu árin sín sem kúabóndi boðið upp á líf- rænt nautakjöt. „Okkar búrekstur hefur aðdráttarafl og fjölmargir koma hingað til að kynna sér líf- ræna ræktun, umhverfið og starf- semina sem hér fer fram. Hér kemur fólk til að leita hugmynda og hefur sagt mér síðar að hér hafi það fengið innblástur. Það er mjög gefandi að vita til þess.“ Bygg „Það er gaman að hugsa til þess tíma sem ég byrjaði að rækta bygg. Fólk spurði í fullri alvöru hvort þetta væri ekki eitthvað fyrir svín. Nú elskar þetta sama fólk þennan mat og velur umfram aðra kornvöru,“ segir Eymundur hlæjandi en byggrækt er þunga- miðjan í ræktuninni í Vallanesi og er unnið úr sextíu tonnum af byggi árlega. „Uppsveiflan var mikil í kjöl- far kreppunar og fólk fór í auknu mæli að horfa eftir íslenskri fram- leiðslu. Augu fólks hafa opnast fyrir því að það séu góðar vörur framleiddar á Íslandi og að það sé hægt að stofna fyrirtæki um það að búa til vöru úr íslensku hrá- efni,“ segir Eymundur. „Þó að það hljómi undarlega þá hefur krepp- an orðið til góðs hvað þetta varðar. Það er meiri stuðningur við frum- kvöðla og íslenska sköpun sem ekki var hlustað á á tímum þegar allt var flutt inn fyrir slikk.“ Eygló bætir við, og þar talar markaðs- maðurinn í henni, að hrun krón- unnar leiki hér stórt hlutverk enda sé nú bankabygg samkeppnishæft við hrísgrjón í verði, svo aðeins eitt dæmi sé tekið. Sala á banka- byggi jókst um 50 prósent árið 2009, nefnir Eygló því til sönnun- ar hvað umskiptin voru hröð eftir hrunið. Persónuleg tengsl „Það er töluverð þjóðremba í Íslendingum og ég hef aldrei skilið af hverju það náði ekki til þess að framleiða góðar vörur úr hreinum íslenskum jarðvegi,“ segir Eymundur þegar spurt er um hvernig sé að selja Íslend- ingum vörur úr íslensku korni. Hann hefur sannað að það er vel hægt. „Það er gefandi að sjá þetta allt verða til, hlúa að því á meðan það vex og senda það svo frá sér í poka eða krukku. Við höfum bæði gaman að þessari ræktun og markaðssetningu, sem er mjög skemmtileg. Markaðs- setning okkar felst fyrst og síð- ast í beinu sambandi við fólk. Við höfum lagt áherslu á að okkar við- skiptavinir komi til okkar í heim- sókn; jafnt matreiðslumeistarar og þeir sem vinna í verslunum sem selja vörurnar okkar. Þannig byggjum við upp traust og trúnað og fólk gerir sér grein fyrir hvað hægt er að gera hérna og fær trú á að við getum annað eftirspurn,“ segir Eymundur og segir frá því að ungir matreiðslumenn, sem dvelja tímabundið á Austurlandi, komi gjarnan í heimsókn. Þegar svo líður frá haldast viðskiptin eftir að komið er á veitingahús annars staðar á landinu. Eygló bætir því við að mark- aðssetning krefjist útsjónarsemi í litlum rekstri. „Þetta er persónu- leg sölumennska sem felst ekki síst í því að gefa fólki að smakka vörurnar okkar.“ Bóndi með graut í potti „Hugmyndin að okkar eigin vöru- merki kom mjög snemma. Senni- lega um miðjan níunda áratuginn. Þá voru bændur ekki að selja undir vörumerki og kannski má segja að við höfum verið frumkvöðlar í því. Með því að selja undir vörumerki felst ákveðin yfirlýsing um að maður sé stoltur af því sem maður er að gera. Til er svokölluð merkja- tryggð og ekki undan því komist að tryggja að fólk rati á þessa vöru,“ FRAMHALD Á SÍÐU 26 HJÓNIN Í VALLANESI Eymundur og Eygló standa hér á einum af fjölmörgum ökrum á jörðinni. Kornið er skammt á veg komið miðað við árstíma og september verður að vera þeim hjónum hliðhollur ef ná á viðunandi uppskeru í hús. Það er á sumri sem þessu sem fjölmörg skjólbelti á jörðinni sanna gildi sitt. Óhætt er að fullyrða að án trjánna, sem sjást hvert sem litið er, væri upp- skerubrestur þegar staðreynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Skógurinn er það sem ég er stoltastur af því hann mun lifa löngu eftir að annað sem hér hefur verið gert er gleymt. Stoltastur af einni milljón trjáa Vallanes á Fljótsdalshéraði er leiðandi bú á sviði lífrænnar ræktunar á Íslandi. Eymundur Magnússon og eiginkona hans Eygló Ólafsdóttir rækta og framleiða vörur undir eigin vörumerki. Þau telja lífrænum bændum betur borgið innan ESB. Á jörðinni hefur Eymundur gróðursett um milljón tré. Svavar Hávarðsson og Valgarður Gíslason nutu gestrisni þeirra hjóna einn dagpart.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.