Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 32
3. september 2011 LAUGARDAGUR32 M argir tengja lyf úr náttúrunni v ið náttúru- lækningar og átta sig ekki á því að náttúran hefur verið og er enn uppspretta margra lyfja sem notuð eru við hefðbundnar lækningar,“ segir Sesselja Ómarsdóttir dósent við Lyfjafræðideild. Sesselja stýrir rannsókn á sjávarhryggleysingj- um með það að markmiði að finna svokölluð lyfjavirk efni í þeim, eða það er að segja efni sem hægt er að nota í lyf. Það kemur kannski einhverjum á óvart en hafið í kringum Ísland hefur ekki verið rannsakað nema að hluta til og ekki hefur nema broti af þeim lífverum sem í því búa verið lýst. Sesselja útskýrir að meðal annars hafi þessi staðreynd kveikt áhuga hennar á því að hefja rannsóknir á lífverum í hafinu. Litlar efnaverksmiðjur „Ég hafði áður beint sjónum mínum að fléttum, sem eru meðal annars þær lífverur sem vaxa fyrst á stein- um. En svo kviknaði áhugi minn á sjávarlífverum, mig langaði til að víkka út rannsóknarsviðið.“ Það eru þó ekki fiskar og spen- dýr sem rannsókn Sesselju og sam- starfsmanna hennar beinist að heldur eru það einkum sjávarhrygg- leysingjar, botndýr, meðal annars svampar, en Sesselja segir dýr með engan skráp vera einna mest spenn- andi. „Ég segi stundum að þessi dýr séu eins og litlar efnaverksmiðj- ur. Þær eins og önnur dýr þurfa að verja sig með einhverjum hætti og vegna þess að ytri varnir þeirra eru litlar þá beita þær öðrum aðferðum. Sumar þessara lífvera nota eitur til þess að lama bráðina sína, aðrar drepa hana og svo hafa þær frum- stætt ónæmiskerfi. Þessir eiginleik- ar lífveranna geta mögulega nýst í lyf ef það tekst að finna og einangra efnið í lífverunni,“ segir Sesselja. „Efni sem lamar bráð getur nýst sem verkjastillandi lyf, það sem drepur getur drepið frumur sem eru óæskilegar eins og krabba- meinsfrumur og loks má nefna að ónæmiskerfið getur nýst til lyfja sem eru ónæmisstýrandi eins og bólgueyðandi lyf.“ Langur meðgöngutími Þetta hljómar mögulega einfalt og blátt áfram en raunin er önnur. Sesselja bendir á að þau þrjú lyf sem komin eru á markað og hafa verið unnin úr sjávarhryggleys- ingjum áttu sér öll langan með- göngutíma. „Eitt þeirra er til að mynda unnið úr möttuldýri. Virkn- in í því hefur verið þekkt frá árinu 1969. Þá þegar var vitað að það virkaði á krabbameinsfrumur. Þá tókst ekki að greina efnabygg- ingu virka efnisins, en hún er mjög flókin. Um síðir tókst hins vegar að rækta efnið upp og þá var hægt að framleiða úr því lyf. Það lyf kom á markað 2007 og er notað á erfið krabbamein,“ segir Sesselja og það er því ljóst að til mikils er að vinna þegar leitað er að virkum efnum í lífverum. Hún bendir á að það hafi orðið miklar framfarir í þeirri tækni sem nýtt er til þess að greina efni. Svo hafi einnig orðið miklar framfar- ir í köfun og þar með söfnun sýna. Þessar staðreyndir þýði að um heim allan er mikil gróska í rann- sókn á sjávarlífverum og möguleik- um á nýtingu þeirra í lyfjum. En þó að framfarir hafi orðið í rannsóknum eru mörg ljón á vegin- um og enn ýmsum erfiðleikum háð að einangra virku efnin. „En maður hugsar líka með sér að fyrst verði maður að komast á sporið, svo að leysa vandamálið,“ segir Sesselja. Hún bendir á að erfiðleikarnir séu fyrirhafnarinnar virði þegar lyf sem virkar er mögu- leg lokaniðurstaða. „Margir spyrja hvort ekki sé einfaldara að smíða efni á tilraunastofum. Reyndin er hins vegar sú að náttúran framleið- ir flókin efni sem við höfum ekki hugmyndaflug til að búa til og þess vegna er leit að lyfjum í náttúrunni enn góð og gild vísindagrein.“ Vannýtt auðlind? Sitjum við þá kannski á vannýttri auðlind hér við Íslandsstrendur? „Það er skemmtilegt að velta því upp hvort lífverur í sjónum geti hjálpað íslenska efnahagnum. Norðmenn hafa lagt gríðarlegar fjárhæðir, um 180 milljónir norskra króna, í verkefni sem þetta og grín- ast oft með það að þetta eigi að taka við af olíuauðlindinni. Vitanlega verða aðeins fáein efni að lyfi, en eitt lyf getur skipt sköpum. Fer- illinn er langur og fyrsta skrefið sem tekið er í þessari rannsókn er að finna virk efni sem getur tekið fáein ár. Svo er að prófa lyfin frek- ar sem eru framtíðarrannsóknir. Frá því að virkt efni finnst og þar til það verður að lyfi, ef það verður að lyfi, er um átta til fimmtán ár,“ segir Sesselja og bætir við að vissu- lega sé gróðavon í hafinu án þess að hún vilji nefna tölur. „Ef áhugaverð eða áhugavert efni finnst sem hefur möguleika á því að verða lyf þá er gróðavon. Háskólinn á hlut í öllum einkaleyf- um starfsmanna og íslenska ríkið á rétt á nýtingu auðlindanna. Ef hægt er að selja einkaleyfi eða efni þá er von um gróða.“ Hringdi í sjómenn Til þess að geta leitað að efnum úr sjávarlífverum þarf vitaskuld sýni úr þeim. Sesselja segir að þegar rannsókn hennar var að hefjast hafi hún tekið upp símann og hringt í sjómenn og falast eftir sýnum af hafsbotni frá þeim. „Jör- undur Svavarsson prófessor og Halldór Pálmar Halldórsson voru mér innan handa hér og bentu mér á sína bandamenn.“ Jörund- ur hefur stýrt grunnrannsóknum á íslenska hafsbotninum en risa- skref í þeim rannsóknum var stig- ið þegar Bioice-verkefnið var sett á laggirnar. Það hafði það mark- mið að kanna hvaða dýr lifa á hafs- botninum innan íslensku efnahags- lögsögunnar. 2.000 dýr höfðu verið tegundagreind þegar því lauk, og þar af hafði um 800 ekki verið lýst í íslenskri lögsögu. 40 tegundir voru alveg nýjar af nálinni. „Þessar góðu grunnrannsóknir voru forsenda þess að við getum stigið það skref sem við erum að stíga,“ segir Sesselja sem bend- ir á að lífríki heitra hafsvæða hafi verið miklu meira rannsak- að en lífríki í köldum sjó. „En hafsbotninn umhverfis Ísland er mjög áhugaverður því hér samein- ast bæði kaldur sjór að norðan og heitur sunnan úr höfum. Svo eigum við líka mjög áhugavert svæði sem eru strýturnar í Eyjafirði. Við erum hér í þessari rannsókn með sérstaka áherslu á þær enda um mjög merkilegt náttúrufyrir- bæri að ræða og einkar áhugavert að skoða þær lífverur sem á þeim þrífast.“ Fyrstu hverastrýturnar í Eyjafirði fundust 1997 og fleiri árið 2004. Þær þykja merkilegar á heimsvísu því þær eru á grunn- sævi, aðrar hverastrýtur í heimin- um eru á mörg þúsund metra dýpi. Vegna þess að heitt vatn flæðir úr þeim er mikið lífríki í þeim sem þarf að rannsaka. Piparkornið í kjötsúpunni Sesselja og samstarfsmenn hennar hafa nú þegar skimað 280 sýni og fengið þær niðurstöður að nítján þeirra sýna virkni þegar kemur að því að drepa krabbameins- frumur. „Þar af eru tvö sem sýna mesta virkni. Við erum að reyna að einangra virku efnin úr þessum tveimur,“ segir Sesselja. Sú leit felst meðal annars í því að reyna að finna efnabyggingu virka efn- isins og það er þrautin þyngri, minnir á erfitt súdókú eða leitina að piparkorninu í risakjötsúpupotti segir Sesselja sem er samt vongóð um að árangur náist í þessu fyrsta skrefi í átt að nýju lyfi. „Næsta skref væri svo að finna út hvern- ig efnið virkaði nákvæmlega. Það þyrfti auðvitað að prófa það og þá væri spurning hvort lyfjafyrir- tæki hefðu áhuga á framhaldinu,“ segir Sesselja og bætir við að lyfja- fyrirtækin taki yfirleitt við þegar kemur að því að þróa lyf sem byggi á grunnrannsóknum akademíunn- ar. Enn sem komið er hafa átta sýni úr sjávarhryggleysingjum sýnt ónæmisstýrandi virkni og þar eru tvö sýni áhugaverðust og verið er að skoða þau nánar. „Svo höld- um við áfram að safna sýnum og skima, þetta er mikil vinna og rétt að taka fram að það koma fjölmarg- ir að henni, nemar og svo fjölmarg- ir fræðimenn.“ Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur Sesselja Ómarsdóttir dósent lærði að kafa á síðasta ári. Ástæðan fyrir því var áhugi hennar á lífverum undirdjúpanna sem mögulega er hægt að nýta í lyf framtíðarinnar. Sesselja sagði Sigríði B. Tómasdóttur frá því hvað getur leynst á hafsbotninum. LIFRÍKI Á HVERASTRÝTUM Mjög fjölskrúðugt lífríki er að finna á hverastrýtunum í Eyjafirði. sem vekur forvitni vísindamanna hér á landi og víðar. MYNDIR/ERLENDUR BOGASON SESSELJA ÓMARSDÓTTIR Sjávarlífverur sem Sesselja og samstarfsmenn hennar rannsaka gætu skipt sköpum fyrir sjúklinga fram- tíðarinnar takist að finna í þeim lyfjavirk efni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KAFAÐ Í EYJAFIRÐI Hér er Sesselja ásamt Eydísi Einarsdóttur doktorsema í sýnasöfnun í Eyjafirði. MYND/ERLENDUR BOGASON Leit að lyfjum í náttúrunni er enn góð og gild vísindagrein því menn hafa ekki hugmyndaflug til að búa til jafn flókin efni og finnast í náttúrunni, segir Sesselja. Hún lærði að kafa í fyrra til að geta sjálf farið á vettvang og safnað sýnum. „Það er alveg meiri- háttar, eiginlega það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ viðurkennir Sesselja sem lærði að kafa hjá Erlendi Bogasyni kafara sem er einn þeirra sem fundu strýturnar í Eyjafirði. ■ NÁTTÚRAN ER MIKILVÆG UPPSPRETTA LYFJA 10% 10% 4% 4% 14% 5% 23% 30% Smíðað/náttúruefnahermir Smíðað efni en fyrir mynd er náttúruefni Smíðað út frá náttúruefni/náttúruefnahermir Bóluefni Líftæknilyf Náttúruefni Náttúruefna- afleiða Smíðað efni Hér að ofan má sjá hvaðan lyfjaefni frá árunum 1981-2006 eiga uppruna sinn. Sjötíu prósent þeirra eiga rætur að rekja til náttúrunnar en 30% eru smíðuð efni sem sýnir glöggt hve mikilvæg náttúran er í lyfjagerð. Heimild. Newma & Cragg, J. Nat. Prod. 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.