Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 48
3. september 2011 LAUGARDAGUR6
Kynning - auglýsing
Ég heillaðist ungur af dansinum og á að baki langan keppnisfer-il bæði sem áhugadansari og at-
vinnumaður. Síðastliðin átján ár hef ég
hins vegar kennt öðrum að dansa og
það er eitt af því skemmtilegasta sem
ég geri. Ég stofnaði minn eigin dans-
skóla, Dansskóla Ragnars Sverrisson-
ar, fyrir fjórum árum og mottóið er ein-
faldlega: Dans fyrir alla!“
Barna- og unglingastarfið er ein-
staklega öflugt hjá Dansskóla Ragn-
ars. „Við erum eini skólinn sem býður
upp á dansnámskeið fyrir tveggja og
þriggja ára börn en það hefur verið
mjög vinsælt. Börnin koma þá með
foreldrum sínum, sem dansa með
börnunum, þar á meðal skósmiða-
dansinn og fingrapolka. Við leggjum
áherslu á gleði og að barnið læri að
hreyfa sig skipulega við tónlist. Þegar
börnin eru orðin 4-5 ára bjóðum við
upp á almenna barnadansa í bland
við fyrstu sporin í almennum sam-
kvæmisdönsum. Þegar börnin eru
orðin 6 ára vinnum við með almenna
samkvæmisdansa í bland við aðra
skemmtilega dansa. Einnig bjóðum við
upp á freestyle-dansa fyrir 10-14 ára.“
Ragnar segir að samkvæmisdans-
ar séu alltaf vinsælir hjá fullorðnum
en einnig skipi brúðarvalsinn sinn
sess. „Við bjóðum upp á einkatíma í
brúðarvalsinum og fyrir marga er það
hluti af brúðkaupsundirbúningum.
Þá bjóðum við einnig upp á sérsniðin
námskeið fyrir vinnustaðahópa sem
og aðra hópa. Við reynum að koma til
móts við allar óskir.“
www.dansskoliragnars.is
Dans fyrir alla
Það er ótrúlega fjölbreytt starfið í Dansskóla Ragnars enda hefur
eigandinn, Ragnar Sverrisson, 29 ára reynslu af
samkvæmisdönsum og öðrum dönsum. Dansskólinn er á
Bíldshöfða 18, í næsta húsi við Húsgagnahöllina.
Gleðin er mikilvæg í Dansskóla Ragnars Sverrissonar.
Dansskóli Ragnars er eini dansskólinn sem býður upp á dansnámskeið
fyrir tveggja og þriggja ára börn. Hér er yngsti hópurinn í halarófu en í
tímunum læra þau að hreyfa sig skipulega við tónlist.
Hér lagfærir Ragnar dansstöðuna hjá þeim Jóni Ingvari
og Albinu.
Ragnar, sem á langan keppnisferil að baki, hefur mikla ánægju af danskennslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Kameron er virkilega ljúfur og
almennilegur maður, og niðri á
jörðinni eins og vera ber. Honum
fylgir falleg ára, mikill kraftur og
góð nærvera,“ segir Nanna Ósk
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Dance Center Reykjavík, þar sem
aðalkennari í vetur verður ein af
stjórstjörnum sjónvarpsþáttanna
So You Think You Can Dance, sjálf-
ur Kameron Bink sem sló í gegn í
þáttaröðinni 2007.
„Kameron
hefur áður
haldið nám-
skeið
h é r á
landi, á
árlegri
danshá-
tíð okkar,
en þá kom
hann með Lil‘
C, dómara og
danshöfundi úr So
You Think You Can Dance. Í þeirri
ferð varð Kameron svo heillaður
af nemendum sínum, þjóðinni og
ólgandi kraftinum yfir Íslandi að
hann samþykkti að koma aftur og
vera hjá okkur í vetur.“
Að sögn Nönnu er mikill akkur
fyrir íslenskt dansfólk að fá Kame-
ron til landsins.
„Þetta verður fágætur og
lærdómsríkur tími sem eng-
inn dansáhugamanneskja
ætti að láta framhjá sér fara,
enda viðburður að stjarna úr þess-
um vinsælu sjónvarpsþáttum ætli
að dvelja hér í svo langan tíma. Við
njótum góðs af því að landið okkar
er í miklum metum hjá listafólki
um allan heim, sem hingað vill
koma og sækja kraft í kynngi-
magnaða náttúruna, en Kameron
er mikill náttúruunnandi og úti-
vistarmaður,“ upplýsir Nanna.
Í starfi sínu sem aðalkennari
mun Kameron Bink kenna allt frá
sjö ára börnum upp í 35
ára og eldri, hip hop,
götudans, djassfönk og
nútímadans.
„Í So You Think You
Can Dance vakti Kame-
ron mikla athygli
fyrir að geta dans-
að nánast hvað
sem er. Hann
er afar flott-
ur nútíma-
dansari
en getur
einnig
dans-
að arg-
asta hip
hop og
allt þar
á mi l l i .
Hér mun
hann miðla
af reynslu
s i n n i og
koma með til-
lögur og ráðleggingar um hvernig
er best að bera sig að fyrir krakka
sem hafa áhuga á að fara lengra
með dansinn. Fyrst og fremst er
kennsla hans þó hugsuð sem góður
grunnur og skemmtun, því Kame-
ron kemur hingað fullur eldmóðs,
með mikla þörf fyrir að miðla
þeirri ástríðu sem dansinn er og
útbreiða heilbrigð skilaboð hans,
því dans er gott sport fyrir líkama
og sál,“ útskýrir Nanna.
Tekið skal fram að Kameron
kennir í Reykjavík, Kópavogi og
Garðabæ. Tímar hans eru fyrir
alla, jafnt byrjendur sem lengra
komna, en að sögn Nönnu byrjar
hann dansrútínur hægt en keyrir
svo hraðann upp.
Sjá nánar á dancecenter.is.
thordis@frettabladid.is
Knúinn af þörf
til að kenna
Kameron Bink er einn af heitustu dönsurum jarðar en ætlar samt að
eyða vetri komanda í landi sem ómar af kulda og ís. Íslenskt dans-
fólk getur farið að hlakka til að svífa um dansgólfið með fáséðum
gestakennara úr vinsælustu dansþáttaröð allra tíma.
Kameron Bink var einn af toppunum sem komust áfram í So You Think You Can
Dance árið 2007. Hann hefur allar götur síðan verið þáttastjórnendum innan handar
sem danshöfundur og er eftirsóttur dansleiðbeinandi um allan heim.
Nanna Ósk Jónsdóttir framkvæmdastjóri
Dance Center Reykjavík segir það mikinn
feng að fá Kameron í kennaraliðið.