Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 59

Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 59
LAUGARDAGUR 3. september 2011 11 Staða sérfræðings í verkefni vegna vatnastjórnunar er laus til umsóknar Veiðimálastofnun auglýsir eftir sérfræðingi í verkefni vegna vatnastjórnunar. Starfið felst í vinnslu og framsetningu gagna um lífríki vatna vegna vatnastjórnunar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi á framhaldsstigi á fagsviðum Veiðimálastofnunar eða öðru námi sem nýtist í starfinu. Starfið krefst mikillar vinnu með öðrum sérfræðingum innan og utan stofnunarinnar. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af rannsóknum og þróunarstarfi, verkefnastjórn og vinnu með gagnagrunna. Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð. Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá berist í síðasta lagi 17. september til Veiðimálastofnunar, Keldnaholti, 112 Reykjavík. Laun samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttafélags. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðjónsson (sími 5806310) forstjóri Veiðimálastofnunar sg@veidimal.is Öllum umsóknum verður svarað. VEIÐIMÁLASTOFNUN Veiðinýting • Lífríki í ám og vötnum • Rannsóknir • Ráðgjöf Veiðimálastofnun er rannsókna- og ráðgjafarstofnun á sviði veiðinýtingar og vatnalíffræði. Stofnunin er með 5 starfstöðvar og þar starfa um 20 manns. i8 Gallery Tryggvagata 16 101 Reykjavík Iceland www.i8.is +354 551 3666 info@i8.is i8 Umsjónarmaður skráninga (Registrar) Starfið felst í eftirtöldu: Ábyrgð á vörslu listaverka, á lager og í tölvukerfi gallerísins. Móttöku á nýjum verkum, ljósmyndun og skráningu. Umsjón með útlánum til safna og sýningarstaða, sem og innheimtu á verkum og ástandskönnun. Umsækjandi þarf að hafa þekkingu og áhuga á myndlist og búa yfir góðri tölvukunnáttu. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, skipulagshæfileika og nákvæmni. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi, eða sambærilega starfsreynslu. Umsóknir skal senda til i8 í pósti fyrir 17. september. Listhneigður upplýsinga- og bókasafnsfræðingur eða skipulagður listfræðingur … eða einhver ofurklár? i8 gallerí leitar að starfsmanni i8 er alþjóðlegt samtímalistagallerí, stofnað 1995. Galleríið starfar með 19 listamönnum en sýnir einnig verk fjölda annarra. Sjö sýningar eru í i8 ár hvert en einnig tekur galleríið þátt í um sex alþjóðlegum listakaupstefnum árlega. Megin ábyrgðarsvið sérfræðingsins er að hafa umsjón með söfnun, skráningu og úrvinnslu á gögnum er varða losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið og um- sjón með skilum á gögnum og skýrslum til alþjóðastofn- ana um bókhald varðandi losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi. Ítarlegri upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og um- sóknarfrest er að finna á starfatorg.is og http://www.ust. is/umhverfisstofnun/starfsfolk/storf-i-bodi/ NJÓTUM UMHVERFISINS OG STÖNDUM VÖRÐ UM ÞAÐ SAMAN SÉRFRÆÐINGUR Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði loftslagsmála og losunar gróðurhúsalofttegunda Landmark óskar eftir traustum sölufulltrúum! Ertu góður sölumaður/kona? Þá bjóðum við uppá góða aðstöðu, góð kjör og skemmtilegan starfsanda. Hafðu samband við okkur í fullum trúnaði. Kostur en ekki skilyrði er að viðkom- andi hafi reynslu eða réttindi til sölu fasteigna eða til leigumiðlunar. Landmark er framsækinn fasteignasala sem hefur að markmiði að veita faglega og trausta þjónustu. Allar nánari upplýsingar veittar hjá Magnúsi Einarssyni magnus@landmark.is og Sigurði Samúelssyni sigurdur@landmark.is Við viljum bæta við okkur kraftmiklum einstaklingi til að leiða teymi sem sérhæfir sig í ráðgjöf og stefnumótun fyrir markaðssetningu á netinu og notkun samfélagsmiðla. Fíton er rúmlega 30 manna líflegur vinnustaður með fjölbreytta og spennandi starfsemi í auglýsingagerð. Fyrirtækið er í nýuppgerðu húsnæði í Sætúni 8 – betur þekkt sem „Gamla Kaaberhúsið“. Í húsinu er einnig tengd starfsemi; á sviði margmiðlunar hjá Miðstræti, vef- og netmála hjá Atómstöðinni / Skapalón og birtingaþjónustu hjá Auglýsingamiðlun. Kaaberhúsið er lifandi starfsumhverfi yfir 70 starfsmanna sem deila góðu mötuneyti. Hlutverk: - Ráðgjöf og stefnumótun fyrir samfélags- og netmiðla. - Uppbygging tengslanets fyrirtækja við neytendur. - Uppbygging vörumerkja á netinu. Umsækjandi þarf vera mjög sjálfstæður, hafa mikla reynslu af netmarkaðssetningu og þekkingu á samfélagsmiðlum, leitarvélabestun, tengslamyndun og hvers kyns nýjungum á sviði markaðsmála á netinu. Háskólamenntun æskileg. Umsjón með starfinu hefur Ragnheiður S. Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. september. - Skipulag auglýsingaherferða á samfélagsmiðlum. - Greining gagna og mælingar á árangri. - Vöruþróun. ERT ÞÚ NETT SÓSÍAL? SÆTÚNI 8 SÍMI 595 3600 FITON.IS105 REYKJAVÍK FAX 5953649 H u g sa s é r! Tæknideild Primera Air er ábyrg fyrir flughæfni B737NG véla félagsins. Verkfræðideild sér um skipulag viðhalds flugflotans sem telur samtals sex vélar, fimm B737-800 og eina B737- 700. Vinnustaðurinn er á aðalskrifstofu okkar í Kópavogi og í deildinni starfa í dag 8 manns. STARFSSVIÐ - Skipulag viðhaldsmá rila til skemm og lengri tíma - Eftirfylgni viðhaldsgagna - Fylgjast m ka og stýraeð áræðilei endurbó m þörf er á.tum þar se - Sams mleiðendurkipti við fra flug ar og fyrirtæki semvéla, búnað vin tingum á flugvélum.na að brey Menntun og bakgrunnur - Hafa gilt flugvirkjaskírteini og/eða verkfræði menntun - Hafa minnst þriggja ára viðhaldsreynslu hjá flugfélagi eða ðurkenndu viðhaldsfyrirtækivi - Kunna góð skil á kröfum um flughæfni flugvéla Hæfni - a ensku með ágætumTala og skrif - ngu á helstuþeHafa góða kki um og kunna aðu tölvukskrifstof erf pplýsingarmeð tölvutæfara kar u engdar viðhaldt smálum. - ipulegaGeta unnið sjálfstætt og sk - aVinna vel í hóp og hafa sterk kostnaðarvitund FLUGVIRKI EÐA VERKFRÆÐINGUR VERKFRÆÐIDEILD Umsóknarfrestur er til loka 10. september 2011. Vinsamlega sækið um rafrænt á heimasíðu félagsins www.primeraair.com. Ferilskrár þurfa að vera á ensku. Frekari upplýsingar eru veittar í síma á skrifstofutíma af Pétri Eysteinssyni, deildarstjóra verkfræðideildar. We are a dynamic airline proudly offering high quality, profitable services to the leisure market. Primera Air | Hlíðasmári 12 | 201 Kópavogur | S. 527 6000 | Fax. 527 6001 | primeraair.com
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.