Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.09.2011, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 03.09.2011, Qupperneq 96
3. september 2011 LAUGARDAGUR60 Árni Hjörvar Árnason er svekktur yfir því að spila ekki á Airwaves með The Vaccines. Hljómsveitin getur kennt sjálfri sér um veikindi söngvarans. „Þetta er mjög svekkjandi. Ég var farinn að hlakka mikið til að koma,“ segir Árni Hjörvar Árna- son, bassaleikari bresku rokk- sveitarinnar The Vaccines. Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur hljómsveitin hætt við að spila á Iceland Airwaves- hátíðinni í október vegna háls- aðgerðar sem söngvarinn Justin Young þarf að gangast undir. „Ég átti að vera í Bandaríkjun- um núna. Þetta eru alveg fjöru- tíu tónleikar sem við erum að aflýsa,“ segir Árni Hjörvar, sem er staddur í London. „Við ætlum að nota tækifærið og reyna að semja fyrir næstu plötu fyrst við erum bara fastir heima.“ Bassaleikarinn býst einnig við því að kíkja í heimsókn til Íslands í pásunni og reiknar með því að mæta á Airwaves-hátíðina þrátt fyrir að vera ekki að spila sjálfur. Árni Hjörvar er aðdáandi enska fótboltaliðsins Tottenham og reiknar með því að fara eitthvað á völlinn líka, enda er heimavöll- ur liðsins í London. The Vaccines hefur verið á stífu tónleikaferðalagi á þessu ári og spilað á fjölmörgum tón- listarhátíðum í sumar við góðar undirtektir. „Við spiluðum á Reading- og Leeds-hátíðunum og það gekk rosalega vel. Það var hápunkturinn á sumrinu,“ segir hann. „Það má segja að við höfum verið uppteknasta bandið í bransanum. Við erum búnir að spila á örugglega 150 tónleikum á árinu.“ Álagið hefur tekið sinn toll því aðgerðin sem söngvarinn Young þarf að gangast undir er sú þriðja á þessu ári. „Við getum sjálf- um okkur um kennt. Við gáfum honum ekki tíma til að slappa af. Um leið og hann var farinn að geta talað eftir síðustu aðgerð vorum við farnir að spila sex sinnum í viku. Núna ætlum við að gefa honum tíma til að jafna sig.“ Tónleikaferðalag The Vacc- ines hefst á nýjan leik í París 26. október og eftir það hitar hljóm- sveitin upp fyrir Arctic Monkeys á Bretlandseyjum. Á næsta ári hafa tónleikar verið bókaðir bæði í Japan og Suður-Ameríku. freyr@frettabladid.is Það má segja að við höfum verið upp- teknasta bandið í bransanum. Við erum búnir að spila á örugglega 150 tónleikum á árinu. ÁRNI HJÖRVAR ÁRNASON BASSALEIKARI THE VACCINES SVEKKTUR AÐ SPILA EKKI Á ÍSLANDI TVEGGJA MÁNAÐA HLÉ Árni Hjörvar Árnason og félagar í The Vaccines eru komnir í tæplega tveggja mánaða hlé frá tónleikahaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Það var mikið um dýrðir í Gamla bíói á fimmtudagskvöldið þegar sjónvarpsstöðin Skjár einn kynnti haustdagskrána. Þema kvöldsins var tileinkað Pan Am flugfélaginu en þáttaröð með því nafni hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni í vetur. Helga Braga kynnti dagskrána eins og sannri flugfreyju sæmir ásamt Jóhanni G. sem brá sér í gervi flugmanns. Partí var svo haldið í íbúðinni á efstu hæð Gamla Bíós þar sem Daddi diskó spilaði og dansinn dunaði langt fram á kvöld. Fjör hjá Skjá einum Í STÍL Grétar Sigfinnur, knattspyrnumað- ur í KR, Hugi og Lárus voru mættir með bindi merkt Skjá einum. LEITAÐ Á FÓLKI Gestir höfðu gaman af flugþemanu. SÆTAR Þær Halldóra og Kidda brostu til ljósmyndara. KÆRUSTUPARIÐ Karl Sigurðsson borgarfulltrúi og Tobba Marinós, kynningarfulltrúi Skjásins, voru að sjálfsögðu mætt og eru hér með flugfreyjunum sem sáu um að gestunum liði vel. Leikkonunni Milu Kunis fannst það bara huggulegt þegar mót- leikari hennar, Justin Timber- lake, afklæddist fyrir framan hana í kynlífssenum myndar- innar Friends with Benefits. „Ég hafði ekkert á móti því þegar Justin fór úr fötunum. En ég er ótrúlega óörugg með eigin vöxt, hvað þá fyrir framan fimmtíu manna tökulið. Það var mikið óöryggi í gangi,“ sagði Kunis. „Sum augnablik voru vandræða- leg en það góða við þetta er að ég og Justin vorum svo fínir vinir. Ég var að minnsta kosti með einhverjum sem ég þekkti sem fannst þetta líka óþægilegt.“ Óþægilegt að afklæðast EKKERT MÁL Það var ekkert mál fyrir Milu Kunis að fylgjast með Justin Timberlake afklæðast.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.