Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 98
3. september 2011 LAUGARDAGUR62
Frístundakor t
Ástvaldur Traustason
skólastjóri Tónheima
Upplýsingar og skráning á tonheimar.is
og í síma 846 8888
Haustönn hefst 12. september
Tónheimar - Síðumúla 8 - tonheimar@tonheimar.is
Píanó eftir eyranu
Djasspíanó (kennari Agnar Már Magnússon)
Ukulele (kennari Svavar Knútur)
Kassagítar/partýgítar (kennari Svavar Knútur)
Rafmagnsgítar (kennari Tóti í Agent Fresco)
Hjá Tónheimum er boðið upp á
tónlistarnám fyrir alla aldurshópa
sniðið að þörfum og áhugasviði
hvers og eins.
Láttu drauminn rætast og lærðu
að spila þín uppáhaldslög eftir
eyranu.
Allir velkomnir!
Tónlistarnám fyrir þig
blús djass sönglögpopp
MENNINGARSJÓÐUR KVENNA Á ÍSLANDI
UMSÓKNUM
Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem
beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu
kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við
hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna.
Úthlutað er árlega úr sjóðnum. Umsækjendur geta verið konur,
samtök þeirra, félög eða fyrirtæki.
Umsóknum skal skila á eyðublaði sem nálgast má á vefsíðu
Hlaðvarpans, www.hladvarpinn.is. Á síðunni er einnig skipulagsskrá
sjóðsins þar sem fram koma skilyrði fyrir styrkveitingum úr sjóðnum.
Hlaðvarpinn er sjóður sem stofnaður var af hluthöfum Hlaðvarpans
ehf. til styrktar menningarmálum kvenna á Íslandi. Stofnfé sjóðsins
er söluandvirði fasteigna félagsins að Vesturgötu 3 í Reykjavík.
Hlaðvarpanum
pósthólf 1280
121 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2011
Öllum umsóknum verður svarað.
Sjá nánar á vefsíðu sjóðsins, www.hladvarpinn.is
Upplýsingar veitir stjórn sjóðsins um netfangið
hladvarpinn@hladvarpinn.is
UMSÓKNIR SKULU BERAST
auglýsir eftir
Kvikmyndahátíðin í Feneyjum fór af stað með miklum látum
á miðvikudaginn, en myndin The Ides of March með George
Clooney í aðalhlutverki opnaði hátíðina. Myndin hefur fengið
góða dóma og ekki skemmdi fyrir að Clooney setti skemmti-
legan svip á rauða dregilinn ásamt öðrum stjörn-
um myndarinnar, Evan Rachel Wood, Ryan
Gosling, Marisa Tomei og Philip Seymour
Hoffman. Poppdrottningin og nú leikstjór-
inn Madonna var einnig mætt til Feneyja,
en mynd hennar W.E. er sýnd á hátíðinni.
Hátíðin stendur til 10. september.
GLÆSILEIKI Í FENEYJUM
Hönnun Jóhönnu Metúsalemsdóttur, sem hann-
ar undir nafninu Kría, hefur verið tekin til sölu í
versluninni Project No8 sem staðsett er í Ace-hót-
elinu á Manhattan. Project No8 er hönnunarversl-
un sem selur hönnun hvaðanæva að, en á hótelinu
er einnig verslun sem rekin er í samstarfi við
tískuhúsið Opening Ceremony.
Jóhanna segir ánægjulegt að Kríuskartið skuli
vera fáanlegt á Ace-hótelinu enda sé það flott hótel
sem leggi mikið upp úr hönnun. „Ég var að selja
Kríu í verslun Project No8 á Division Street en
þau ákváðu að færa það yfir í Ace-hótelið því þeim
fannst það passa vel þar inn, sem gladdi mig mikið
enda er þetta ótrúlega flott búð.“
Vinsældir skartsins hafa farið vaxandi í New
York og rekst Jóhanna í auknum mæli á fólk á
götum úti sem skreytt er með hönnun hennar. „Það
er líka mikið spurt um skartið fyrir hinar ýmsu
myndatökur og það er alltaf mjög jákvætt enda
vekur það athygli á merkinu.“
Jóhanna hyggst færa út kvíarnar á næstunni
og ætlar þá bæði til Skandinavíu og Parísar. „Það
er allt í vinnslu eins og er. Núna er ég í miðjum
klíðum við að hanna nýtt skart sem verður tilbúið
í þessum mánuði. Ég er með sýnishorn af því í Bel-
levue Mall í Seattle í tengslum við Fashion Week
sem er á vegum Vogue USA og mun einnig taka
þátt í Nordic Fashion Biennale sem er í Seattle í
lok september,“ segir Jóhanna að lokum. - sm
Kría færir út kvíarnar
VINSÆL Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður hefur
verið að gera það gott í New York. Hún hannar undir nafninu
Kría. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í RAUÐUM KJÓL Ofurfyrirsætan Cindy Crawford tók sig
vel út ásamt manni sínum Rande Gerber.
GLÆSILEG Kate Winslet var smart til fara í
Feneyjum. NORDICPHOTOS/AFP
POPPDROTTNINGIN
Madonna brosti
sínu blíðasta til ljós-
myndara.
GUL Guli
liturinn fór
leikkonunni
Marisu
Tomei vel.
HVÍTKLÆDD Evan Rac-
hel Wood var glæsileg
með hárið sleikt aftur
í síðum kjól með hárri
klauf.
FLOTTUR George
Clooney var
flottur eins og alltaf í
jakkafötunum.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT
Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.