Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 102

Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 102
3. september 2011 LAUGARDAGUR66 sport@frettabladid.is EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN bar fyrirliðabandið í gær í fyrsta sinn síðan að Ólafur Jóhannesson tók við landsliðinu. Eiður er ellefti fyrirliðinn sem Ólafur velur en Hermann Hreiðarsson hefur verið oftast fyrirliði undir stjórn Ólafs eða fimmtán sinnum. Eiður Smári var þó engu að síður fyrirliði íslenska A-landsliðsins í 27. sinn í gær en hann var 26 sinnum fyrirliði liðsins á árunum 2003 til 2007. A-RIÐILL: Aserbaídsjan-Belgía 1-1 Tyrkland-Kasakstan 2-1 Þýskaland-Austurríki 6-2 Mesut Özil 2, Miroslav Klose, Lukas Podolski, Andre Schürrle, Mario Götze - Arnautovic, Harnik Efstu lið: Þýskaland 21, Tyrkland 13, Belgía 12, B-RIÐILL Andorra-Armenía 0-3 Rússland-Makedónía 1-0 Írland-Slóvakía 0-0 Efstu lið: Rússland 16, Írland 14, Slóvakía 14. C-RIÐILL Norður Írland-Serbía 0-1 Slóvenía-Eistland 1-2 Færeyjar-Ítalía 0-1 0-1 Antonio Cassano (11.) Efst: Ítalía 19, Slóvenía 11, Serbía 11, Eistl. 10 D-RIÐILL Lúxemborg-Rúmenía 0-2 Hvíta Rússland-Bosnía 0-2 Albanía-Frakkland 1-2 0-1 Benzema (11.), 0-2 M’Vila (18.)- Bogdani (46.) Efstu lið: Frakkland 16, Bosnía 13, Hvíta- Rússl. 12, Rúmenía 11. E-RIÐILL Finnland-Moldóva 4-1 Ungverjaland-Svíþjóð 2-1 1-0 Imre Szabics (44.), 1-1 Christian Wilhelmsson (60.), 2-1 Gergely Rudolf (90.) Holland-San Marínó 11-0 Robin van Persie 4, Wesley Sneijder 2, Klaas-Jan Huntelaar 2, John Heitinga, Dirk Kuyt, Wijnaldum. Efst: Holland 21, Svíþjóð 15, Ungverjal. 15 F-RIÐILL Ísrael-Grikkland 0-1 Georgía-Lettland 0-1 Malta-Króatía 1-3 Efst: Grikkland 17, Króatía 16, Ísrael 13. G-RIÐILL Búlgaría-England 0-3 0-1 Gary Cahill (13.), 0-2 Wayne Rooney (21.), 0-3 Wayne Rooney (45.) Wales-Svartfjallaland 2-1 1-0 Steve Morison (29.), 2-0 Aaron Ramsey (50.), 2-1 Stevan Jovetic (71.) Efst: England 14, Svartfjallaland 11, Sviss 5 H-RIÐILL Noregur-Ísland 1-0 Kýpur-Portúgal 0-4 Ronaldo 2 (35., 82.), Almeida (84.), Danny (90.) STAÐAN Í RIÐLINUM Portúgal 6 4 1 1 15-7 13 Noregur 6 4 1 1 7-4 13 Danmörk 5 3 1 1 7-4 10 Kýpur 5 0 2 3 5-12 2 Ísland 6 0 1 5 2-9 1 I-RIÐILL Litháen-Liechtenstein 0-0 Efst: Spánn 15, Tékkland 9, Litháen 5. UNDANK. EM 2012 NOREGUR 1-0 ÍSLAND 1-o Mohammed Abdellaoue, víti (88.) Ullevaal í Osló, áhorfendur.: 22.381 Dómari: Hategan frá Rúmeníu (8) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 19–3 (7–1) Varin skot Jarstein 1 – Stefán Logi 5 Horn 6–0 Aukaspyrnur fengnar 13–15 Gul spjöld 1-3 Rangstöður 5–2 Ísland 4-2-3-1 Stefán Logi Magnússon, markvörður 6 Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 6 Sölvi Geir Ottesen, miðvörður 6 Indriði Sigurðsson, miðvörður 7 Hjörtur Logi Valgarðsson, vinstri bakvörður 7 *Eggert Gunnþór Jónsson, tengiliður 7 Helgi Valur Daníelsson, tengiliður 6 (89., Birkir Bjarnason -) Eiður Smári Guðjohnsen, sóknartengiliður 6 Rúrik Gíslason, hægri kantur 5 Kolbeinn Sigþórsson, framherji 4 (77., Veigar Páll Gunnarsson -) Jóhann Berg Guðmundsson, vinstri kantur 4 (80., Steinþór Freyr Þorsteinsson -) ÚRSLITASTUND Á ULLEVAAL Stefán Logi Magnússon sést hér brjóta á Norðmann- inum John Carew á 88. mínútu leiksins í gær en Norðmenn skoruðu sigurmarkið úr vítaspyrnunni sem var réttilega dæmd. MYND/AP FÓTBOLTI Ísland tapaði enn einum leik sínum í undankeppni EM 2012 í gær. Í þetta sinn gegn Norðmönnum á útivelli en alveg eins og gegn Dönum á Parken kom sigurmark Norðmanna í lok leiksins. Sóknarmaðurinn Moa, sem hafði verið haldið niðri allan leikinn af íslensku vörninni, steig á vítapunktinn á 88. mínútu og skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnu sem varamaðurinn John Carew hafði fiskað skömmu áður. Þó var um að ræða mikla framför frá vináttuleiknum gegn Ungverjum fyrr í mánuðinum, þó svo að erfitt sé að fullyrða að sigur Norðmanna hafi verið ósanngjarn. Hann var það ekki. Heimamenn voru meira með boltann og sköpuðu sér mun hættulegri færi. Alexander Tettey átti skot í stöng og Norðmenn skoruðu einnig mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Íslenska liðinu gekk þó ágætlega að halda boltanum á köflum og voru jákvæð teikn á lofti inn á milli. En það skorti tilfinnanlega að sækja að marki andstæðingsins og skapa færi. Í raun átti Ísland bara tvö færi í leiknum – Rúrik átti skot að marki strax í upphafi og Eiður Smári komst í gott skallafæri í síðari hálfleik. Meira var það ekki. Ó l a f u r J ó h a n n e s s o n , landsliðsþjálfari, var ánægður með frammistöðuna. „Þetta var bara frábær frammistaða,“ sagði hann eftir leikinn. „Þetta er ekkert flóknara en það. Við sýndum fínan leik hérna og mikla baráttu. Við vorum virkilega duglegir inni á vellinum,“ sagði hann. Ólafur segir að það sé erfiðara að koma skikki á sóknarleikinn. „Það er auðveldara að skipuleggja varnarleik en sóknarleik. Sóknarleikurinn okkar var kannski ekki eins og við vildum hafa hann og auðvitað hefðum við kosið að skapa okkur fleiri færi. En það breytir því ekki að frammistaða leikmanna í leiknum var frábær,“ sagði Ólafur. Lítið kom út úr kantspili Íslands í leiknum og fáir boltar rötuðu inn í vítateig Norðmanna. „Við töluðum um það í hálfleik að þeir Rúrik og Jói Berg þyrftu að komast betur inn í leikinn. En þeir voru í mjög erfiðu hlutverki og þurftu að verjast mikið. Það vill oft bitna á sóknarleiknum.“ Íslenska liðið var skipað mörgum ungum leikmönnum í gær og segir Ólafur að reynsluleysi sumra þeirra hafi reynst liðinu dýrkeypt. „Ég tel að það hafi orðið okkur að falli. Nokkra unga leikmenn í liðinu skortir reynslu og voru þeir stundum að taka rangar ákvarðanir.“ Næsti leikur Íslands verður gegn Kýpur á þriðjudaginn og lofar Ólafur sigri ef liðið spilar annan eins leik og í gær. „Að tapa eins og við gerðum í kvöld er eitt það mest svekkjandi sem maður upplifir í boltanum. Sérstaklega miðað við frammistöðuna. Menn eru því langt niðri og verður það mitt hlutverk að koma mönnum í stand fyrir næsta leik. Ég lofa að það takist og með svona frammistöðu eins og við sýndum í kvöld þá munum við vinna Kýpur á þriðjudaginn.“ Norðmenn svifu um á bleiku skýi eftir leikinn í gær og var greinilega mjög létt. Liðið stefnir á að komast í úrslitakeppni EM 2012 og er nú einum sigri frá öruggu sæti í umspilinu. Martröð íslenska landsliðsins í undankeppninni virðist þó engan enda ætla að taka. Norskur draumur en íslensk martröð Enn og aftur beið Ísland lægri hlut í undankeppni EM 2012 á grátlegan máta. Í þetta sinn fyrir Noregi ytra en sigurmarkið kom úr vítaspyrnu í lokin. „Með svona frammistöðu vinnum við Kýpur,“ sagði þjálfarinn Ólafur Jóhannesson en íslenska liðið er enn án sigurs eftir fyrstu sex leiki sína í riðlinum. Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Ósló í Noregi eirikur@frettabladid.is FÓTBOLTI Þeir Indriði Sigurðsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru reynsluboltarnir í íslenska lands- liðinu í gær en liðið mætti þá Norð- mönnum. Þeir voru vitanlega niðurlútir eftir leikinn en segja ýmislegt jákvætt við frammistöðu íslenska liðsins. „Þetta er auðvitað svekkjandi og þá sérstaklega í ljósi þess að liðið var búið að leggja mikið á sig í 87 mínútur. Norðmenn voru vissu- lega meira með boltann en ekki að skapa sér mikið af færum,“ sagði Eiður Smári. Hann játar því að íslenska liðið hafi ekki heldur skapað sér mikið í leiknum. „Það helst í hendur við það að við ætluðum að vera þéttir í varn- arleiknum. Við vorum svolítið langt frá markinu þeirra þegar við unnum boltann. En við spiluðum ágætlega á köflum – við hefðum kannski mátt vera aðeins kaldari að halda boltanum. Okkar bestu kaflar í leiknum komu þegar það tókst.“ Indriði Sigurðsson átti góðan leik í íslensku vörninni og átti stór- an þátt í því að halda niður sókn- armanninum Moa sem Norðmenn voru búnir að binda svo miklar vonir við. „Það var pressa á okkur í fyrri hálfleik en mér fannst við ná að standa hana ágætlega af okkur í þeim síðari. Í raun fannst mér ekk- ert mark liggja í loftinu þegar þeir svo náðu að skora,“ sagði Indriði eftir leikinn. „Mér fannst ég og Sölvi ná að hafa ágæta stjórn á Moa en svo skorar hann úr vítinu og vinnur þennan leik fyrir þá. Ég var búinn að djöflast í honum allan leikinn og hann í mér og því er það vissulega sérstaklega súrt að hann hafi svo skorað sigurmarkið. En svona er fótboltinn.“ Eiður segir heilmikið hægt að taka úr þessum leik fyrir þann næsta. „Allavega 87 mínútur af góðum varnarleik. Það eina leið- inlega er að við ætluðum að reyna að einblína á úrslitin í þessum leik. Við ætluðum okkur að reyna að fara héðan með jákvæð úrslit. Það hefur verið mikið talað um heims- lista FIFA og ég held að allir hafi séð hér í kvöld að það er ekki eins mikill munur á þessum liðum eins og heimslistinn sýnir.“ „Við þurfum að taka það sem er jákvætt úr þessum leik. Við feng- um jú tvö færi til að stela sigr- inum þó svo að það hefði kannski ekki verið sanngjarnt. En við verðum að læra að nýta færin okkar betur og komast þokkalega frá leikjunum,” sagði Indriði Sig- urðsson að lokum. -esá Eiður Smári Guðjohnsen og Indriði Sigurðsson eftir leikinn í Osló í gær: Fúlt að Moa skoraði sigurmarkið ÖRUGGT VÍTI Stefán Logi Magnússon átti ekki möguleika á því að verja vítaspyrnuna frá Mohammed Abdellaoue eins og sést vel á þessari mynd. MYND/AP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.