Faxi - 01.12.1960, Síða 3
FAXI
10. tbl. • XX. ár
DESEMBER
1 960
Utgefandi:
Málfundafélagið Faxi
Keflavík
$$
&
&
*
$$
&
&
$
&
&
&
$$
BJÖRN JÓNSSON:
Boðshapur jólanna
Les: Lúk. 2, 1—14.
Jólin vekja og glæða hinar göfugustu tilfinningar
í hjörtum kristinna manna.
Frá bernsku höfum við vanizt því að skoða jólin
sem sérstaka fagnaðarhátíð. Með vaxandi viti og þroska
hefur okkur lærzt að halda þá hátíð með þakldátum
huga fyrir augliti Guðs. — Jólaljósin eru annað og
meira í vitund okkar en heimilisskraut, — heldur tákn
þeirrar birtu, er Hann, sem fæddist á jólunum, Hann,
sem er ljós heimsins, flytur sérhverri sál, — og jóla-
gleðin verður að fagnandi tilbeiðslu. Sjaldan eru hugir
manna betur opnir fyrir gleðiboðskapnum um kær-
leika Guðs.
Og víst er það dýrlegur gleðiboðskapur!
Það er boðskapur um heilagt barn, sem fæddist
hér á jörðu. — Og það barn er Frelsari mannanna.
Guð kom sjálfur til mannanna, til þess að kenna þeim
að þekkja sig og elska sig. „Öllum þeim, sem tóku við
honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn.“
Þess vegna er öllum kristnum mönnum svo dýr-
mætt þetta indælasta nafn: Jesús Kristnr. Það er okkur
ímynd alls þess, sem gott er og heilagt. — Við getum
ekki nefnt það öðruvísi en með lotningu. Það minnir á
allt það, sem fegurst er og bezt hefur reynzt á ævileið
okkar, — og við það eru helgustu og fegurstu vonirnar
tengdar. —
Hann kom á jólunum. Og hann gaf mönnunum
gjafir. —
Við getum áreiðanlega ekki gert okkur grein fyrir
því, hve miklu fátækara mannlífið hefði verið, ef hann
hefði ekki komið. En margir kunna fagrar sögur af því
að segja, hvílíka blessun hann hefur fært þeim. —
Hann gaf þeirn bjartsýni, — kenndi þeim að trúa
á sigur þess góða, þrátt fvrir allt öfugstreymið í lífinu.
Hann gaf þeim heilagt mark að keppa að, — að verða
fullkomnir. Hann gaf þeim göfugt verkefni, — að
hjálpa öðrum til að verða góðir og gæfusamir. Hann
kom til syndugs manns, sem stundi undir þungum
ásökunum samvizkunnar, — með guðlega fyrirgefn-
ingu og hjartafrið. Hann kom til sorgbitins manns með
guðlega huggun og nýja von. Hann kom til deyjandi
lærisveins, sem fann, að lífið var að f jara út, og lét hann
sjá í anda fyrirheitna landið bjarta og fagra, svo að hann
sofnaði með bros á ásjónu sinni, sem var eins og bjarmi
af sól eilífa lífsins. — Hann sendi góða menn með
brauð til hungraðra, föt til klæðlausra og samúð til ein-
stæðinga. Já, hver getur talið upp allar þær gjafir, sem
hann er alltaf að gefa okkur mönnunum? Hver á orð til
að lýsa allri þeirri blessun, sem af því hefur hlotizt, að
hann kom á jólunum?
Enginn veit, hvað úr honum hefði orðið, ef Hann
hefði ekki komið. En við viturn, að fyrir Hann eigum
við cilíft líf. —
Allt þetta minna jólin okkur á. Þetta verður, fyrir
þeim, sem þekkja og reynt hafa, eins og glitrandi gim-
steinar í kórónu konungsins, sem við tilbiðjum á jólun-
um. Það vefst eins og gullið ívaf í allar jólahugsanirnar
okkar og verður að lofsöng, sem kemur frá hjartanu.
En höfum við öll þegið þessar stórkostlegu gjafir
jólabarnsins?
Hverju svarar hjarta þitt, — umhverfi þitt, — vett-
vangur heimsviðburðanna? Vantar ekki mikið á, að
mannlífið sé fagurt og sælt, — að þú eigir frið í sál, —
frið við Guð?
En sé svo, þá munum, að það er ekki Honum að
kenna, heldur okkar eigin sök. —
Þess vegna flytja jólin okkur þennan boðskap: Lát-
ið sættast við Guð, sem minnir ykkur nú að nýju á
föðurkærleika sinn. Þiggið gjafir hans, sem hver og einn
er i þörf fyrir. Veitið viðtöku fyrirgefningu, friði og
fögnuði, sem ykkur stendur öllum til boða. Fagnið
konunginum, sem vitjar lýðs síns. — Gjörið hjörtu
ykkar að helgidómi Jesú Krists. —
„Fyrir allt, sem að oss hann gaf
óverðskulduðum kærleik af,
honum sé þökk af hjarta skýrð.
Honuin sé eilíft lof og dýrð.
Sé Drottni dýrð!“
í Jesú nafni. — Gleðileg jól.
&
|9
$$
&
&
&
&
$$
&
&
$$