Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1960, Qupperneq 19

Faxi - 01.12.1960, Qupperneq 19
F A X I 163 Verzlunarmál Njarðvíkinga Viðtal við Jón Bjarnason, formann Kaupfélagsins Bjarma í Njarðvíkum hefur fólki fjölgað mjög ört undanfarin ár. Vinna við hernaðar- framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli hefur orsakað það, að fólk hefur setzt að í um- hverfi vallarins og leigt eða byggt sér hús, og oft flutzt að úr fjarlægum byggðarlög- um. Þetta hefur orsakað ýmis vandamál, þar á meðal í Ytri-Njarðvík. Eitt af vandamálum fólksins var vöntun á verzlunarhúsnæði, sem fullnægði kröf- um tímans. Friðjón Jónsson var hér með verzlunar- rekstur, tvær opnar sölubúðir, báðar í litiu og ófullnægjandi húsnæði. Friðjón er dug- legur maður og hjálpsamur, og gerði það sem honum var mögulegt við lélegar að- stæður. Það fullnægði samt engan veginn kröfum tímans eða óskum fólksins um bætta verzlunarþjónustu. Við síðustu sveitarstjórnarkosningar hér í Njarðvíkum, var einmitt þetta mál mjög rætt. Allir töldu úrbóta þörf, en voru ekki að sama skapi sammála um leiðirnar. Lá svo kyrrt um stund. En 26. febrúar var svo af nokkrum mönnum boöað til al- menns fundar, þar sem ræddar skyldu leiðir til að byggja verzlunarhús í Njarð- víkum. Þessi fundur var fjölmennur, og var þar ákveðið, að vinna að málinu og kosin framkvæmdanefnd. Þessi nefnd kannaði leiðir og viðhorf til málsins, og niðurstöður urðu þær, að ákveðið var að lokið. Ég stend upp, þakka fyrir, kveð og held heimleiðis. ★ Fögur lífsstefna, sem hlýtur að leiða til farsældar, hugsa ég. — Sæll, hvaðan ert þú að koma? segir ung kona, sem verður á vegi mínum. Frá Maríu Markan. Já, María Markan, hún er alveg draum- ur. Ég þekki hana reyndar ekki neitt. Ég var niðri í búð um daginn og var búin að kaupa svo mikið, að ég var í vandræðum með drenginn minn litla. Þá kom María þar að og bar hann fyrir mig heim og spjallaði við mig alla leiðina, eins og við hefðum þekkzt í mörg ár. Ný hlið á mikilleika listakonunnar. Bj. J. Sæmundur R. Jónsson, kaupfélagsstjóri. stofna sameignarfélag um verzlunarhús- byggingu í Ytri-Njarðvík, á lóðinni nr. 23 við Grundarstíg. Þessi fundur var haldinn 10. marz 1958. Framkvæmdastjórn skipuðu fimm menn, þeir Jón Bjarnason, Helgi Helgason, Olaf- ur Sigurjónsson, Bjarni Einarsson og Sig- mar Ingason. Samkvæmt annarri grein samþykkta fé- lagsins, er „verkefni félagsins fyrst og fremst að standa að byggingu á verzlunar- húsi á umræddri lóð. Byggð skal fullkom- in matvöruverzlun.“ Stjórnin leitaði til teiknistofu SÍS um teikningu fyrir væntanlegt hús, og var strax farið að vinna að henni af forstöðu- manni teiknistofunnar, Gunnari Þ. Þor- steinssyni, en jafnframt var unnið að því, að fá fjárfestingarleyfi fyrir byggingunni. Húsið var ákveðið tvær hæðir, grunnflötur 320 ferm., en efri hæð 160 ferm., er yrði byggð síðar fyrir skrifstofur og e. t. v. vefnaðarvörudeild. Sjálfsafgreiðsla yrði fyrir matvörur allskonar á neðri hæð. — Samið var við Mjólkursamsöluna um að hún ætti og ræki mjólkurbúðina, og var hún byggð fyrir hennar reikning, en það létti mjög undir við byggingu hússins. Fjárfestingarleyfi fyrir byggingunni var afgreitt 24. okt. 1958. Var þá hafizt handa um að grafa fyrir grunni hússins og bygg- ingarmeistari ráðinn Einar Norðfjörð. Það haust var lokið við að steypa upp veggi, en loftplata steypt vorið 1959. Var síðan hald- ið áfram með byggingu hússins það ár, og unnin innivinna um haustið og veturinn 1959 til 1960. Þann 5. apríl 1960 var síðan boðað til stofnfundar kaupfélagsins. Stjórn kjörin og lög samþykkt. Hlaut félagið nafnið Kaupfélagið Bjarmi. I stjórn voru kjörnir: Jón M. Bjarnason, Bjarni Einarsson, Olaf- ur Thordarsen, Ólafur Sigurjónsson og Helgi Helgason. Fjárhagur félagsins hefur oft verið mjög erfiður, en góðir menn hafa hér hjálpað. Vil ég þar til nefna Guðmund í. Guð- mundsson, Jón Skaftason, Emil Jónsson og Finnboga Rút Valdimarsson. Þessir þingmenn hafa allir hjálpað okkur, mis- munandi mikið samt. Einnig vil ég nefna og þakka Erlendi Einarssyni, forstjóra SIS og hans starfsmönnum á teiknistofu sam- bandsins, er hafa ráðið teikningum og fyrirkomulagi. Heimamenn hér hafa lagt til byggingarinnar og þar með félagsins, bæði vinnu og peninga, misjafnlega mik- ið, eins og oftast vill verða. Stofnun fé- lagsins og bygging verzlunarhússins hefði ekki verið framkvæmanleg, ef allra þess- ara manna hefði ekki notið við. Húsið mun kosta fullbúið tækjum og innréttingum um 1,5 millj. kr. Föstudaginn 24. júní var sölubúðin síðan opnuð. Kaupfélagsstjóri hafði verið ráðinn Sæmundur Jónsson, úr Reykjavík, en sam- tals er starfsfólkið fimm manns. Búðin er mjög björt og vistleg og samkvæmt fyllstu kröfum um nýtízku kjörbúðir. Mjólkur- búðinni er þar sérstaklega haganlega fyrir komið og hún er mjög fullkomin. — Hvernig hefur gengið síðan búðin var opnuð, Jón? spyrjum við, er við hitt- um formanninn á förnum vegi, nú fyrir skömmu. — Það hefur gengið vel, eftir öllum að- stæðum. En eins og þú þekkir, er allur verzlunarrekstur mjög erfiður nú, og vaxtahækkunin er mjög slæmur baggi, eins og þú getur skilið, hjá svona nýstofn- uðu fyrirtæki. En við vonum, eins og aðr- ir, er við þessi mál fást, að úr því rætist fyrr en síðar. — Hvernig var það, Jón, var ekki anzi erfitt fyrir ykkur að koma þessu upp? — JÚ, víst var það. En ég hef trú á því, að allir erfiðleikar séu yfirstíganlegir, ef samhugur og velvild er fyrir hendi og skilningur á þýðingu málstaðarins. Og ef við sýnum dugnað og manndóm í verki, verður okkur rétt hjálparhönd. Það er mín reynsla. Sú reynsla virðist ekki hafa brugðizt í þetta sinn. G. Sv.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.