Faxi - 01.03.1986, Blaðsíða 3
Njarðvíkurbær 10 ára
Gömul mynd frá ytra hverfi tekin um 1929.
10 ár eru ekki langur tími í sögu
eins bæjarfélags. Njarðvíkur er
fyrst getið í heimildum árið 1269
og þá sem Kirkju-Njarðvík. 'falið
er að kirkja hafi verið reist í Njarð-
vík á 11. öld. Fram til 1515 var
Njarðvík eign bænda, en eftir það
1 eigu konungs, líklega til loka 18.
aldar. Frá 1596 og framtil 1889,
tilheyrðu Njarðvíkur Vatnsleysu-
strandarhreppi, en þá fóru fram
hreppaskipti og Njarðvfkur-
hreppur varð til.
Fram á þessa öld var megin
byggðin í Innri-Njarðvík og aðal-
atvinnan sjávarútvegur og land-
búnaður. Árið 1908 var Keflavík-
urkauptún sameinað Njarðvíkur-
Karvei Ögmundsson heiðursborgari
Njarðvíkur. Oddviti í 20 ár.
Ólajur Sigurjónsson oddviti í 12 ár.
Tók við af Karvel.
hreppi sem öðlaðist við það versl-
unarréttindi og nefndist Keflavík-
urhreppur.
1942 fóru fram hreppaskipti
milli Keflavíkur og Njarðvíkur
vegna eindreginna óska ibúa í
Njarðvíkum. Skiptin voru heimil-
uð með bréfi frá Atvinnu- og Sam-
göngumálaráðuneytinu, 27. jan.
árið 1942.
Karvel Ögmundsson var kosinn
fyrsti oddviti hins nýja sveitarfé-
lags og gegndi hann því starfi í 20
ár, allt til ársins 1962, þá gaf hann
ekki lengur kost á sér. Aður átti
hann sæti í hreppsnefnd Keflavík-
urhrepps sem fulltrúi Njarðvíkur,
eða frá árinu 1938. Karvel var
LA NDSBA NKINN
er banki allra Suöurnesjamanna
Landsbanki Islands óskar Suðurnesjamönnum
farsœldar á komandi sumri
og þakkar viðskiptin á liðnum vetri.
Útibúið Keflavíkurflugvelli Simi 2170
Opið mánudag-föstudag frá kl. 9:15-16:00.
Afgreiðsla fyrir farþega í millilandaflugi er opin daglega frá kl. 06:30-18:30.
Úfibúið Grindavík Sími 8179.
Opið mánudag-föstudag frá kl. 9:15-12:30 og 13:30-16:00.
Útibúið Sandgerði Simi 7686.
Opið mánudag-föstudag frá kl. 9:15-12:30 og 13:30-16:00.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
FAXI 79