Faxi - 01.03.1986, Blaðsíða 21
grunnskóla verði það tekið sem
námsgrein frá áramótum til vors
að nemendur undirbúi sýningar
sem kynni náttúrufar, sögu og ör-
nefni hreppsfélagsins. Það verði
sýndar einkennislífverur svæðis-
ins, ákveðin vistkerfi o.s.frv.
Einnig verði saga hreppsins
kynnt, mannvistarminjar og ör-
nefni merktar inn á kort.
Þessi sýning yrði svo opnuð í
einum eða tveimur kennslustof-
um þegar skólanum lýkur að vori
en sýningin verði opin yfir sumar-
ið, t.d. um helgar og sæi ákveðinn
umsjónarmaður, sem launaður
yrði af sveitarfélaginu, um þetta.
Þetta yrði kærkomið fyrir ferða-
menn sem leið eiga um svæðið og
yrði áreiðanlega notað af íbúum
sveitarfélagsins sjálfs og gestum
þeirra. Grunnskólinn í Grindavík
er að vinna að þessu og vonast til
að þetta verði starfrækt í sumar.
Þaðan munum við fá reynslu.
Við höfum hug á að halda áfram
með ferðaröðina , ,Umhverfið
okkar“, en með breyttu sniði sem
verður í því fólgið að íbúar hvaðan
æva koma til með að taka enn
meiri þátt í þeim. í því skyni var
samþykkt á síðasta aðafundi fé-
lagsins að fjölga fulltrúaráðs-
mönnum í félaginu þannig að einn
verði í hverju sveitarfélagi og
munu þeir sjá um undirbúning að
ferðum ásamt stjórn félagsins.
Þá höfum við hug á að hvetja til
þess að strax verði hafist handa
við að safna sem mestum fróðleik
ffá eldra fóikinu, sem fætt er og
uppalið á svæðinu. Við munum
halda áfram með að benda á varð-
veisiusgildi mannvirkja og nátt-
úruminja, en í framtíðinni eiga
vísindin eftir að iesa meira og
meira út úr þessum minjum.
I undirbúningi er að hvetja til
réttrar áherslu í því að fá fólk til að
leggja meiri rækt við umhverfi
vinnustaða, eins að fyrirtækin
leggi stóran hlut þar að.
En að lokum viljum við í stjórn
N.V.S.V. taka það fram að fræðsl-
an er sterkasta vopnið í baráttunni
fyrir náttúruvernd og allt okkar
starf mun miðast við það.
Einar Egilsson
BÍLASALA
BRYNLEIFS
Óskar Suöurnesjamönnum
farsœldar á komandi sumri
og þakkar viöskiptin á liönum
vetri.
Bílasala Brynleifs
Vatnsnesvegí 29A
Keflavík — Símar 1081—4888
Nokkrar
svip-
myndir
Úr 30 ára afmæhshófi Lions-
klúbbs Keflavíkur sem ffam fór í
Glóðinni 4. apríl 1986, en klúbb-
urinn var stofnaður 7. apríl 1956
með hátt í 20 félögum. Enn eru
starfandi í klúbbnum 7 stofnfé-
lagar og voru þeir heiðraðir í af-
mælishófinu.
Þeir eru talið frú vinstri: Hörður
Guðmundsson, rakari, Tómas
Tómasson, sparisjóðsstjóri, en
hann var fyrsti formaður klúbbs-
ins, Ingvar Guðmundsson, yfir-
kennari, Hilmar Pétursson, fast-
eignasali, Benedikt Jónsson,
framkvœmdastjóri, Ambjö m
Ólafsson, skrifstofustjóri og
Marteinn Ámason, bóksali.
Allt eru þetta vel þekktir Keflvík-
ingar.
Ingólfur I'alsson, formaður sjúkra-
hússtjórnar tekur við gjafabréfi frú
Lions vegna blóðrannsóknartœkis.
Magnús Gudmundsson formaður, afhendir Tómasi Tómassyni Melvin
Jones skjöldinn sem er œðsta viðurkenning sem Lionsfélgi getur hlotið.
FAXI 97