Faxi - 01.03.1986, Side 6
Byggingarnefnd Njarðvíkur 1982—1986, fv. Ásbjöm Guðmundsson, Jóhann Líndal Jóhannsson, Magnús Guðmanns-
son, byggingarfulltrúi, Sveinn R. Eiríksson, formaður, Ingiþór Geirsson, slökkviliðsstjóri, Helgi Maronsson, Guðjón
Helgason. Fyrsta byggingarnefnd Njarðvíkurhrepps var kosin 8. maí 1946, er þvi 40 ára í ár.
KAUPFÉLAG
SUÐURNESJA
óskar öllum viðskiptavinum og
starfsfólki
gledilegs sumars
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
KEFLAVÍK
félög, Lionklúbbur o.fl. hafa átt
stóran þátt í menningarmálum
bæjarins t.d. komið á fót dag-
heimilunum Gimli og Holti í sam-
starfi við bæjarfélagið. Kaupstað-
arréttindin ýttu undir stofnun
tónlistarskóla sem hefur blómstr-
að undir handleiðslu góðra
manna og hafa 17. júní, Landsmót
U.M.F.Í. og fleiri hátíðleg tæki-
færi notið góðs af lúðrasveit og
nemendum skólans.
Stórátak hefur verið gert í um-
hverfis- og fegrunarmálum síð-
ustu ár. Njarðvík er fallegur bær
og við getum gert hann enn fal-
legri ef hver ræktar garðinn sinn.
Stórátak hefur verið gert í landa-
kaupum á vegum bæjarins og ný-
lega voru um 17 þús. m2 bæjar-
landsins klæddir túnþökum,
mest umhverfis nýja íþróttavallar-
húsið og íbúðir aldraðra. Mikið
nýtt landssvæði fékkst við færslu
flugvallargirðingarinnar. Þar hef-
ur nú verið staðfest deiliskipulag
fýrir nýtt íbúða- og þjónustu-
svæði og er stórmarkaðurinn
Samkaup fyrsta fullgerða bygg-
ingin á því svæði. Annar stór-
markaður er Hagkaup á Fitjum en
þar munu vegir greinast um nesið
næstu árin, samanber aðalskipu-
lag.
Atvinnuástand hefur yfirleitt
verið gott í Njarövilcum, eldri fyr-
irtæki hafa vaxið og ný hafa risið
svo sem í iðnaði, þjónustu, land-
búnaði og sjávarútvegi.
Síðustu 10 ár hefur verið blóm-
legur tími í sögu Njarðvíkur. Nýj-
ar byggingar hafa risið, götur hafa
verið lagðar með varanlegu slit-
lagi og margar framkvæmdir séð
dagsins ljós. Það hefur verið sótt
fram af bjartsýni og framkvæmd-
arvilja á öllum sviðum mannlífs-
ins. Það er von mín að slíkur hug-
ur megi áfram vera aðalsmerki
Njarðvíkinga um ókomin ár.
Áki Gránz
OLEÐILEOT SUMAR
Útvegsbanki íslands óskar viöskiptavinum og öörum
suöurnesjamönnum farsœldar d komandi sumri og
þakkar viðskiptin ö vetrinum
ÚTVEGSBANKI ÍSLANÐS
HAFNARGÖTU 60 - KEFLAVÍK - SÍMI 1199
EINN BANKI - ÖLL ÞJÓNUSTA
82 FAXI