Faxi - 01.03.1986, Side 8
haldi og nýbyggingum á raf-
magnskerfinu í heild.
Ekki orkar tvímælis að sumir
sveitarstjórnarmenn hafa óttast að
með sameiningu myndi öll þjón-
usta, viðhald og viðbætur í fjar-
lægari byggðarlögum falla niður
eða sitja á hakanum vegna þeirra
sem stærri eru og nær höfuð-
stöðvunum.
Ég tel rétt, mönnum til glöggv-
unar að láta hér fylgja nokkrar
upplýsingar um viðhald og ný-
byggingar á vegum lágspennu-
deildar. Hitaveitan tók við við-
haldi rafkerfanna 1. okt. en á 3
mánuðum ársins voru fram-
kvæmdir við þau um 11,6 milj. kr.
og þar af um 5,5 milj. kr. við götu-
lýsingu.
í grófum dráttum skiptust
framkvæmdir milli byggðarlaga á
eftirfarandi hátt:
Keflavík .......... 3,413 milj.
Grindavík ........... 1,37 milj.
Njarðvík ........... 2,539 milj.
Sandgerði .......... 0,264 milj.
Garður.................... 1,539 milj.
Vögar .............. 1,184 milj.
Þessi skipting varð þó nánast
óháð ákvörðun hitaveitunnar, þar
sem verk þessi voru þegar ákveð-
in, eða nauðsyn bar til að fram-
kvæma þau.
Hér vil ég aðeins skjóta inn til
frekari glöggvunar nokkrum töl-
um úr framkvæmdaáætlun ársins
1986 um raforkuframkvæmdir,
en það eru nýframkvæmdir.
Keflavík ........... 2.900 milj.
Grindavík ......... 10.300 milj.
Njarðvík ........... 4.700 milj.
Ingólfur Aðalsteinsson forstjóri.
Sandgerði ......... 3.900 milj.
Garður ............ 3.000 milj.
Vogar ............. 4.400 milj.
Hafnir ............ 0.300 milj.
Alls eru þetta 29.500 milj.
Hér er framkvæmda kostnaður í
Grindavík svona hár vegna heillar
aðveitustöðvar, en þar er fyrir-
huguð spennubreyting úr 6kv í 12
kv.
Eins og sjá má af ofangreindri
upptalningu þá virðist hlutur
minni sveitarfélaga síst fyrir borð
borinn.
Hinsvegar skal á það bent að
þessi áætlun setur enga stefnu-
mörkun í framkvæmdum hvers
staðar, heldur er hún tilkomin
sem hrein áætlun þeirra raf-
magnsmanna sem best þekkja til
á hverjum stað.
Vera má að næsta ár fari stærst-
ur hluti framkvæmdanna í eitt
byggðarlag! En menn verða að
muna að raforkukerfið er ein
heild, sem verður að endumýjast
án tillits til staðsetningar eða bæj-
armarka.
Ég sé hinsvegar ekki ástæðu til
sérstakrar svartsýni hvað varðar
viðhald og ástand dreifikerfisins
enda er stór hluti þess í mjög góðu
ástandi.
Hins mætti svo spyrja: Hvernig
er hitaveitan í stakk búin, til þess
að mæta kröfum raforkukaup-
enda um aukin raforkukaup á
svæðinu?
Hér birti ég töflu um áætlaða
raforkuþörf á Suðumesjum. Fyrri
hluti töflunnar er saminn af Orku-
spárnefhd, en viðbót er samin hjá
hitaveitunni skv. upplýsingum og
óskum laxeldisstöðva. Hafa þær
upplýsingar verið bæði munnleg-
ar og skriflegar.
Af framanskráðri töflu verðu
ráðið að aflþörf eykst um tæpt 1
Mw á ári skv. orkuspá en þar við
bætist veruleg aukning vegna fyr-
irhugaðra laxeldisstöðva.
Skal nú að því vikið, hvort eða
hvemig hitaveitan getur bmgðist
við þeim kröfum um rafafls aukn-
ingu, sem til hennar em gerðar.
Samkvæmt , .Athugun á orku-
flutninskerfi á Suðurnesjum“,
sem Rafteikning h.f., gerði fyrir
H.S. í febrúar 1985, er tiltækt há-
marksafl á Suðumesjum eftirfar-
andi þegar miðað er við núverandi
flutningskerfi og orkuvinnslu.
Flutningsgeta 33 KV línu 5 — 7
MW
Orkuspá áranna 1986 - 1995 fyrir Suðumes
Spá Orku- *Áætluð Heildar-
spárnefn. þörf Fisk- þörf
eldis
ÁR AFL (MW) ORKA (GWH) AFL (MW) ORKA (GWH) AFL (MW) ORKA (GWH)
1986 26,2 152 1,5 10 27.7 162
1987 27,1 157 2,2 14 29,3 171
1988 29,6 172 3,6 24 33,2 196
1989 30,5 177 8,7 57 39,2 234
1990 31,3 182 12,8 83 44,1 265
1991 32,1 186 16,9 110 49,0 296
1992 33,0 191 21,0 135 54,0 326
1993 33,8 196 21,0 137 54,8 333
1994 34,7 201 21,0 137 55,7 338
1995 35,5 206 21,0 137 56,5 343
*Áætlun gerð samkvæmt upplýsingum frá laxeldisfyrirtækjum.
Frá undirskrift sveitar-
stjórnarmanna 5. júlí
1985. Sitjandi frá vinstri:
Ingólfur Aðalsteinsson,
Jóhann Einvarðsson,
Finnbogi Bjömsson,
Albert Karl Sanders,
Steinþór Júlíusson, Jón
Gunnar Stefánsson, Áki
Granz, Tómas Tómasson,
Siguröur Ingvarsson, Jón
K. Óiafsson, Leifur ísaks-
son, Þórarinn St. Sig-
urðsson, Eiríkur Alex-
andersson. Standandi frá
vinstri: Bjarni Andrés-
son, Eðvarð Júlíusson,
Jón H. Júlíusson, Hilmar
Pétursson, Kristinn Guð-
mundsson, Kristjdn Ein-
arsson, Sveinn Eiríksson,
Ólína Ragnarsdóttir,
Ingimundur Guðnason,
Ingólfur Bdrðarson, Ellert
Eiríksson, Ólafur J.
Hannesson, Hjörtur
Zakaríasson, Jón Er-
lingsson, Sœmundur
Þórðarson, Karl Njáls-
son, Guðfinnur Sigur-
vinsson.
84 FAXI