Faxi - 01.03.1986, Page 17
Gunnar Sveinsson
EFLUM FJ ÖLB RAUTASKÓLANN
Fjölbrautaskóli Suðurnesja verður 10 ára næsta haust, en hann
var settur í fyrsta sinn 13. september 1976. Skólinn er fyrir löngu
orðinn ómissandi hluti af samfélagi okkar Suðumesjamanna, og
skiljum við vart nú hvernig við gátum svo lengi verið án framhalds-
skóla. Skólinn hefur notið sérstaks velvilja íbúa Suðumesja og sveit-
arstjómarmanna svæðisins, sem hafa verið boðnir og búnir til að
rétta hjálparhönd þegar á hefur þurft að halda. Aðsókn að skólanum
hefur ávallt verið góð, og skólinn er viðurkenndur fyrir góðan árang-
ur í starfi, enda hefur kennarlið hans verið gott, og við höfum verið
sérstaklega heppin í vali skólameistara er stjómað hafa skólanum.
Því er þetta rifjað upp hér, að nú á 10 ára afinælinu stendur skólinn
á tímamótum. Hann hefur sprengt utan af sér það húsnæði sem
hann hefur til afnota, og því stendur fyrir dyrum að taka ákvörðun
um framtíðarstefnu í húsnæðismálum skólans. Skólanefnd hefur
ljallað um málið á nokkmm fundum, og samkvæmt tillögu Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum var haldinn fundur þann 20.
mars með sveitarstjómarmönnum, skólanefnd, skólameistara og
öðmm stjórnendum skólans um húsnæðismál hans.
Það kom fram í máli skólameistara, er flutti aðal ræðuna um hús-
næðismál skólans í dag, að í upphafi vom nemendur 200 talsins en
em nú um 900. Skólinn hefur yfir að ráða 14 almennum kennslu-
stofum bóknáms og 3 verknáms en verknámsaðstaðan er nokkuð
langt frá aðal skólahúsinu. Húsnæðisvandinn hefur verið leystur
með leiguhúsnæði og er húsnæði skólans dreift um 8 staði í bænum.
Því krefjast þessi mál skjótrar úrlausnar. Um þrjár leiðir er að ræða:
1. Viðbygging við núverandi húsnæði.
2. Makaskipti við Holtaskóla.
3. Nýbygging við bæjarmörk Keflavíkur og Njarðvíkur, með það
fyrir augum að byggja í áföngum á næstu ámm nýjan skóla.
Umræður urðu miklar á fundinum um málið, en í fundarlok var
samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Fundur sveitarstjórnarfulltrúa af Suðurnesjum og skólanefndar
Fjölbrautarskóla Suðurnesja haldinn í bóknámshúsi F.S. þann 20.
mars 1986, er einhuga um að úrbóta sé þörf í húsnæðisvanda F.S.
Fundurinn beinir þeim tilmælum til sveitarstjórna á Suðumesjum
að þær tilnefndi úr sínum röðum nefnd þriggja fulltrúa er leiti hent-
ugustu leiða til að koma framtíðarskipan F.S. sem fyrst í framtíðar-
horf. Nefhd þessi hafi fullt samráð við skólanefnd F.S. og ljúki störf-
um hið bráðasta.“
Húsnæðismál skólans verða því tekin til umfjöllunar og úrlausnar
strax eftir að þessi nefnd ásamt skólanefnd hafa skilað sínu áliti.
Við Suðurnesjamenn viljum góðan skóla. Góðan skóla fáum við
ekki nema með góðum kennurum og góðri aðstöðu til kennslu.
Skólinn má ekki staðna í einhæfum formum. Hann verður að vera
lifandi og framsækin stofhun. Skólinn verður að greina þarfir at-
vinnulífsins, og verður að geta þjónað alhliða menntunarkröfum
samfélagsins. Þessu hlutverki hefur Fjölbrautaskólinn reynt að
sinna á undanförnum árum. Nýjar brautir eru nú í athugun, s.s.
sjúkraliðabraut, fiskeldisbraut, fiskvinnslubraut, skipstjórnar-
braut og fóstrubraut.
Nokkrir úrtölumenn telja að við eigum ekki að hafa flugliðabraut
innan skólans vegna þess að nemendur koma af öllu landinu og ut-
anhéraðsmenn eru í meirihluta. Slík rök eru haldlítil. Við erum
staðsettir við stærstu flughöfn landsins. Þess vegna er það okkar mál
ffekar en annarra að veita þessa þjónustu, sem aðrir greiða að sjálf-
sögðu fyrir. Slíkt gefur skólanum einnig aukið gildi.
Metnaður okkar Suðumesjamanna fýrir hönd skólans á að vera að
hann fylgist vel með tímanum og sé feti framar, en til þess að svo sé,
er það skylda okkar að skapa honum góða aðstöðu.
Gleðilegt sumar
Þökkum starfsmönnum og viöskiptavinum
samskiptin á vetrinum.
m
TRÉ-:
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.
Iðavöllum 6, Keflavík - sími 92-3320
Óskum Suöurnesjamönnum
farsœldar á komandi sumri.
Þökkum vidskipti á vetrinum
dfOpÍAA
Hafnargötu 90 — Keflavík — Sími 2652 og 2960
FAXI 93