Faxi - 01.03.1986, Blaðsíða 19
tjaldvögnum, fast við veiðisvæðið.
Nokkru síðar eignuðust þau Stef-
anfa og Matthías sumarhús við
Meðalfellsvatn í Kjós. Matthías
naut þess að yera þarna við veiði
og njóta útiverunnar. Veiði gat ver-
ið þarna all góð, en náttúrufegurð-
in, kyrrðin og notalegheitin, sem
því fylgdi, heillaði manninn, og
hvenær sem tími gafst og allar frí-
stundir reyndi hann að dvelja
þama og helst í faðmi fjölskyld-
unnar. Hann vann vel úr því sem
staðurinn hafði upp á að bjóða.
Það var unun að dvelja hjá þeim
hjónum í litla notalega húsinu og
ganga út með Matthíasi eða sigla á
vatninu og hlusta á hann segja frá
líðandi atburðum. Matthías
kunni þá list að krydda tilveruna
og gera veruleikann að ævintýri.
Matthías var vel þekktur á þess-
um slóðum, þarna naut hann sín
og menn löðuðust að honum
vegna frásagnarhæfileika hans.
Hann hafði djúpa þægiiega rödd
sem gaf persónunni meira gildi.
Matthías hafði sterka skapgerð
og lét ekki aðra hafa áhrif á hans
eigin persónuskoðanir. Við vor-
um samsekir í því, ef svo má að
orði komast, að okkur þótti sop-
inn góður. I þeim málum hafa
margir fengið aðstoð með því að
fara í meðferð. Matthías fór öðru
vísi að. Fyrir ali mörgum árum
gekk hann á eintal við sjálfan sig,
hefur gert sér grein fyrir skað-
valdinum og bölinu sem áfenginu
fylgir. Hann kvaddi Bakkus án
viðhafnar og hafnaði alfarið nær-
veru hans. Þessi mál voru úr sög-
unni og aldrei rædd framar.
Matthías var mjög orðvar og tók
gjarnan málstað lítilmagnans.
Þótt hann hefði yndi af að segja frá
atburðum hversdagsleikans og
ræða um menn og önnur málefni
þá varaðist hann ætíð að meiða
umræddan. Hann hafði gott
skopskyn, en orðunum hagaði
hann ætíð svo til, að allt var
græskuiaust. Það var gaman að
sitja með Matthíasi og bræðrum
hans og hlusta á þá segja frá liðn-
um dögum, þeir fóru meinlausum
orðum um hversdagslff alþýðu-
mannsins og þeirra sem meira-
máttu sín. Varfærnir í orðavali
voru þeir og gleymdu því aldrei að
geta um kosti hvers og eins, því
engum er allsvarnað.
Þau Matthías og Stefanía hófu
búskap á efri hæð í húsi nr. 16 við
Hafnargötu, húsið áttu foreldrar
Stefaníu. Þar fæddust þeim 4
elstu börnin. Árið 1954 byggðu
þau húsið nr. 14 við Skólaveg og
hafa átt þar heima síðan. Matthí-
asi þótt vænt um heimili sitt, enda
bjó Stefanía ijölskyldunni gott at-
læti. Hann var mjögheimakær, en
hafði gaman af því að fá gesti og
var gestrisinn bæði í orði og á
borði.
Um það leyti sem þetta er skráð,
eru merk tímamót í lífi fjölskyld-
unnar. Matthías hefði orðið 65 ára
12. apríl og 40 ár eru liðin frá því
þau hjónin gengu í hjónaband.
Elsta dóttirin, Hulda, fæddist 15.
apríl 1945 og Stefanía dóttir henn-
ar fermist 13. apríl nú í ár. Við
skulum ætla að Matthías fylgist
vel með því sem er að gerast, því
sálin vakir þá sofnar líf segir Hall-
grímur Pétursson í Passíusálmun-
um.
Er ég heyrði að Matthías vinur
minn og svili væri látinn þá kom
mér eftirfarandi í hug:
Margslungnar birtast mér
myndir svo víða
og menn eru alls konar atvik-
um háðir.
Eg sé þig síðar, er stundir fram
líða.
Sæll á meðan. Þá brosum við
báðir.
Við hjónin vottum minni ást-
kæru mágkonu og börnum þeirra
hjóna okkar dýpstu samúð.
Böðvar Þ. Pálsson.
0 *
Fjöldigesta kom (íþróttahús Keflavfkur íafinœlisboð ÍBK. Hérskoða áhugasamirgestir myvdir og verðlaun ársafiii ÍBK.
Þann 26. apríl s.l. var þess
minnst í íþróttahúsi Keflavíkur,
að nú eru liðin 30 ár frá stofnun
ÍBK — íþróttabandalags Kefla-
vílmr. Afmælisnefnd undir
stjóm Ragnars Marionóssonar,
núverandi formanns IBK, hefur
lagt drög að afmælisdagskrá,
sem standa mun út þetta ár.
Gert er ráð fyrir keppni og sýn-
ingum í þeim íþróttagreinum,
sem stundaðar eru á vegum
bandalagsins.
Það var 18. mars 1956 sem ÍBK
var stofnað. Það voru KFK og
UMFK sem stóðu að stofnun fé-
lagsins. Síðan hafa ÍK, Badmin-
tonfélagið, Skotfélagið, íþrótta-
deild Mána og Fimleikafélag
Keflavíkur bæst við.
Fyrstu stjórn skipuðu Haf-
steinn Guðmundsson, Hörður
Guðmundsson, Þórhallur Guð-
jónsson, Heimir Stígsson og Páll
Jónsson. Hafsteinn var kjörinn
fyrsti formaður ÍBK og var hann
það lengi framan af. Aðrir er
gegnt hafa formennsku eru
Hjörtur Zakaríasson, Garðar
Oddgeirsson og nú Ragnar
Marínósson.
Faxi hefur ávallt fylgst náið
með íþróttum og birtir gjarnan
frásagnir og myndir af þeim.
Faxi sendir IBK og félögum þess
bestu heillaóskir á merkum
tímamótum. H.H.
FAXI 95