Faxi - 01.03.1986, Blaðsíða 26
AIARGRÉT GUÐNAJDÖTTIR
jyrsti kvenprófessor við Háskóla Islands
Nokkrar vangaveltur og fyrir-
spurnir hafa orðið vegna skrifa
undirritaðs í síðasta Faxa, um
farsælt nám og dugnað þeirra
Útskálasystkina.
Það hefur verið dregið í efa, að
ég hafi farið rétt með er ég taldi
að Elísabet M. Guðmundsdóttir
væri fyrst Suðurnesjakvenna að
ljúka doktorsprófi og verja rit-
gerð sína.
Nafn Margrétar Guðnadóttur
ffá Landakoti á Vatnsleysu-
strönd var eitt tilgreint sem
fyrsta kvendoktors af Suður-
nesjum. Ekki var sanngjarnt að
hafa þann heiður af prófessor
Margréti, ef rétt reyndist, auk
þess, sem Faxi vill ávallt hafa
það sem sannara reynist.
Ég hafði því samband við
Margréti og fékk hjá henni stað-
festingu fyrir því að hún hefur
ekki skrifað doktorsritgerð. í
önn sérgreinar sinnar ekki gefið
sér tíma til þess. Mér varð hins
vegar Ijóst að hún er mikilhæf
kona sem hefur aflað sér sess í
Íslandssögunni, með því að
verða fyrst kvenna prófessor
við Háskóla íslands.
Margrét er fædd 1929. For-
eldrar hennar voru Guðni Ein-
arsson og seinni kona hans Guð-
ríður Andrésdóttir. Þau bjuggu
að Landakoti á Vatnsleysu-
strönd, og áttu einnig einn son,
Eyjólf. Með fyrri konu sinni
Guðfinnu Loftsdóttur, átti
Guðni 4 börn. Elst er Eyrún,
Systkinin frá Land-
akoti á Vatnsleysu-
strönd. Aftari röð
frá vinstri: Jón
Guðni, Gudmunda,
Eyrún og Eyjólfur.
Sitjandi eru: Lilja
og Margrét.
Hjónin í Landakoti
Gudni Einarsson og
Guðríður Andrés-
dóttir.
síðan Guðmunda, Jón Guðni og
Lilja.
Margrét varð stúdent úr stærð-
fræðideild Menntaskólans í
Reykjavík 1949. Lauk læknis-
ffæðinámi við Háskóla íslands
1956. Vann eitt ár við rannsókn-
arstörf að Keldum. Hlaut styrk
úr vísindasjóði til framhalds-
náms í Bandaríkjunum 1958 og
lagði þá fyrir sig veirufræði, sem
sérgrein. Þegar hún kom frá
U.S.A. 1960 tók hún við for-
stöðustarfi rannsóknarstöðvar-
innar að Keldum. Arið 1969 var
hún síðan ráðin prófessor í
veirufræðum við Háskóla ís-
lands fyrst kvenna, eins og fyrr
er greint frá og starfar þar enn.
Það er fyrst 1. janúar s.l. sem
önnur kona hlýtur svo háa stöðu
við háskólann. Sú heitir Þórdís
Kristmundsdóttir og kvað
kenna lyfjafræði lyfsala.
Staðreyndir eru því þær að
prófessor Margrét Guðnadóttir
hefur að verðleikum hlotið eftir-
sóknarverðustu stöðu í fræðslu-
kerfi þjóðarinnar fyrst allra
kvenna og doktor Elísabet M.
Guðmundsdóttir orðið fyrst
Suðurnesjakvenna til að afla sér
doktorsnafnbótar, sem er vottur
um menntun, gáfur og vilja-
styrk.
Báðar hafa þær verið sér,
ættfólki sínu og heimabyggðum
til sóma.
Faxi ber virðingu fyrir slíku
fólki og óskar þeim heilla og
farsældar. J.T.
ÓSKUM VIÐSKIPTA VINUM OG STARFSFÓLKI
OKKAR FARSÆLDAR Á KOMANDISUMRIOG
ÞÖKKUM SAMSTARFIÐÁ LIÐNUM VETRI.
102 FAXI