Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1986, Síða 33

Faxi - 01.03.1986, Síða 33
>*/ • Þín œvi /íktíst við lítið blóm 9 9 9 Löngum hefur sagt verið að það læri bömin, sem fyrir þeim er haft. Aldrei hef ég efast um þá gæfu er ég naut í föður mínum. Af orðum hans og æði lærðist mér flest það er gefur lífinu sitt dýpsta gildi. Af listilegum hagleik spann hann oft orðaræður, hófstilltar og spakvitrar og barnungri varð mér nautn af þeim næmleik, skilningi og fegurðarskyni, sem ég varð áskynja í orðum, atlæti og öllu hans dagfari. Til hinsta dags sótti ég til hans helst allra hollráð og skilning og fékk að vera barn, en þó virt að vilja og viti og eigin til- finningum alla tíð. í slíku er mikil lífslist fólgin. Sá háttur var honum inngróinn að tala í hendingum; vísur og stökur flugu um menn og málefni líðandi stundar, ýmist fmmsamd- ar eða frá öðrum fengnar til áherslu á einhver algild sannindi af reynslu kynslóðanna. Sérstak- ar þakkir og heiður voru veitt með vísum. ... ilr Ijóðum Tbrfa Guðbrandssonar En tilfallandi vísur mátti aldrei skrá; — að hans sögn voru þær að- eins sér til gamans gerðar. Þegar líða tók á ævi og við sátum á tveggja manna tali fór hann á stundum með frumsamin ljóð, sem virtust eiga sér djúpar rætur. Sum höfðu verið geymd í minni meira en hálfa öld, en kölluðu þó enn fram klökkva tilfmninga, sem tóku á. Þetta var trúnaðartal, án vafa okkur báðum mikils virði. Fyrir þrábeiðni mína féllst hann á að skrá sumt af þessu niður, ánefndi mér og nú bý ég að þeim sjóði. Nokkrum dögum fyrir and- látið áréttaði hann efnd sína, en þótti þá að ég tel nokkuð miður, að sér hefði ekki enst þrek til frek- ari skráningar. Þrjú þessara ljóða, Fegurð lífs- ins, Tíminn og ónefnt minningar- oghuggunarljóð, sem hefst á orð- unum Þín ævi líktist við lítið blóm voru lesin yfír hans eigin mold- um, enda fátt sem lýsir frekar en eigin orð lífs- og trúarviðhorfum hans. Ýmsir hafa nú ámálgað að birt verði úr ljóðum hans. Slíkt er ekki sjálfgefið, hafandi í huga hve treg- lega hann lét þau í té. Hitt ber þó á að líta að meira fánýti fer oft hærra og hefi ég nú fallist á að birta nokkur þeirra. Sjálfsagt er mér málið þó of skylt til að líta ljóð þessi hlutlausum augum, en ég þykist þó vissulega vita að hugsun sú og tilfinningar er þau flytja eru heil og skýr — og holl hverjum manni. Mér er sem ég sjái föður minn horfa hljóðan og hugsi á dverga- smíð náttúrunnar; hún gladdi honum guðstrú og lotningu, benti KEFLAVÍKURVERKTAKAR óska starfsmönnum og öllum Suðurnesjamönnum gleðilegs sumars og þakka samstarf á liðnum vetrí KEFLAVÍKURVERKTAKAR KEFLAVÍKURFLUGVELLI FAXI 109

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.