Faxi - 01.03.1986, Qupperneq 46
SAMVINNUBANKINN Öskar viöskiptavinum sínum og öllum Suöurnesjamönnum GLEÐILEGS SUMARS og þakkar viöskiptin á vetrinum $ Samvínnubankinn V/ ÚTIBÚID HAFNARGÖTU 62, KEFLAVÍK v SÍMI 1288
P J1 HITAVEITA SUÐURNESJA óskar Suðurnesjamönnum gleðilegs sumars og þakkar ánœgjuleg samskipti á liðnum vetri
§ «***««. Óskum öllum hreppsbúum og öörum Suöur- nesjamönnum gleöilegs sumars og þökkum samskipti á liönum vetri. Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps og sveitarstjóri
Kaupmms-
r y #
íruin
í Kehvík
áríð 1848
till864
Madame Ásta Tómasdóttir
Duus var kona Duus kaupmanns
eldra í Keflavík. Ásta var dóttir
Tómasar Beck söðlasmiðs Björns-
sonar sýslumanns Tómassonar.
Systkini Tómasar föður Ástu
voru:
1. l'órður, kanselíráð sýslumaður í
Þingeyjarsýslu faðir Sigríðar í
Viðey, er átti fýrst Tómas Sæ-
mundsson prófast á Breiðaból-
stað og síðar Ólaf justisráð í ,,
Viðey.
2. Guðrún, móðir Hálfdáns pró-
fasts Einarssonar á Eyri við
Skutulsfjörð.
3. Steinunn, móðir Karls Ander-
sens í Kaupmannahöfn kandi-
dats.
4. Þórdís, kona Guðna prests, er
síðar var að Ólafsvöllum.
5. Halldóra, kona Guðmundar
hafnsögumanns í Hlíðarhúsum.
6. Guðbjörg, er dó ógift.
Móðir Ástu, fyrri konu Tómas-
ar, var Guðrún Davíðsdóttir, ætt-
uð úr Reykjavík og þar var Ásta
fædd 8. maí 1795.
Árið 1812 sigldi Ásta með Stein:
unni föðursystur sinni til Kaup-
mannahafnar og dvaldi þar þang-
að til hún heimsótti föður sinn til
íslands árið 1825. Þá kynntist
hún verslunarstjóra Pétri Duus í
Reykjavík, sigldi með honum árið
eftir til Kaupmannahafnar og gift-
ist honum í apríl árið 1827.
Þegar eftir brúðkaupið hófu þau
ferð sína hingað til íslands. Sett-
ust þau að í Höfðakaupstað og
voru þar í 11 ár. Haustið 1838
sigldu þau til Danmerkur og voru
þar uns Duus var ráðinn verslun-
arstjóri á Eyrarbakka og fluttu
þau sig þangað um vorið 1847 og
voru þar þangað til um haustið.
Veturinn eftir dvöldu þau í Kaup-
mannahöfn. Árið 1848 keypti
Duus Keflavíkur-verslunarstað og
settist þar að sem kaupmaður og
122 FAXI