Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 38
Þorir Þorvarðarson, ráðningarráðgjafi hjá PwC. „Meðan Smáralind-
in er í byggingu er nóg að gera á þessum markaði. Þegar dregur aftur
úr framkvæmdum gœti þessi eftirsþurn minnkað. “
Helga Jónsdóttir, framkvœmdastjóri Liðsauka, segir mikið sþurt eftir starjs-
fólki í bókhald. „Það eru líka síauknar kröfurgerðar til uþþlýsinga úr bók-
haldi ogauknar kröjur eru um að bókhaldfyrirtækja liggi oþið fyrir.“
Ein ráðningarstofan hefur auglýst í tvígang á þessu ári stjórn-
unarstöðu verkfræðings í fallegu, miðlungsstóru bæjarfélagi úti
á landi og ekki borist ein einasta umsókn, hvað þá fyrirspurn!
starfsemi eða sameinast öðrum. Það hefur því verið mikið
flæði af starfsfólki í þeim geira.“
Ekki ein einasta umsókn! Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir
byggingamönnum og iðnaðarmönnum af ýmsu tagi en nánast
ógerlegt hefur verið að fá rafvirkja til starfa og smiðirnir hafa allir
verið fastir í vinnu síðustu mánuði. Nokkur eftirspurn hefur verið
eftir háskólamenntuðu fólki á borð við tæknifræðinga og verk-
fræðinga en framboðið lítið sem ekkert Þannig hefur td. ein
ráðningarstofan, sem Frjáls verslun ræddi við, auglýst í tvígang á
þessu ári, og það með nokkurra mánaða millibili, stjórnunarstöðu
verkfræðings í fallegu, miðlungsstóru bæj-
arfélagi úti á landi - stöðu sem tvímælalaust
flokkast sem áhugaverð og eftirsóknarverð -
og ekki borist ein einasta umsókn, hvað þá
íýrirspurn!
„Það eru miklar framkvæmdir í gangi
og þetta eru greinilega eftirsóttar stéttir í
dag,“ segir Þórir Þorvarðarson, ráðningar-
ráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers,
PwC. „Meðan Smáralindin er í byggingu
er nóg að gera á þessum markaði. Þegar
dregur aftur úr framkvæmdum gæti þessi
eftirspurn minnkað."
Vinnutíminn neikvæður Sama gildir um
verslunarfólk. Þar hefur eftirspurnin verið
mikil þvi að manna þarf allar þær verslanir,
sem opnaðar verða í Smáralind í byrjun
október, en framboðið kannski ekki í sama
mæli því að vinnutíminn er langur og jafnvel
unnið á vöktum. Þróunin síðustu ár heiur
sýnt að vegna þessa stoppa margir verslun-
38
armenn stutt við. Ingibjörg telur að erfiðlega
hafi gengið að ráða verslunarfólk upp á
síðkastið, verslanirnar hafi svo langan opnun-
artíma í dag að ungt tjölskyldufólk geti ekki
unnið slika vinnu og vilji það helst ekki. Það sé
því breytt frá því sem áður var.
En skyldi vera mikil eftírspurn eftír stjórnendum og fjármála-
fólki nú þegar íyrirtækin þurfa ef til vill að takast á við verri af-
komu en áður? Forsvarsmenn ráðningastofanna eru allir sam-
mála um að eftírspurnin sé blönduð og ekki sé neitt endilega
spurt eftir stjórnendum almennt, ijármálastjórum eða markaðs-
stjórum. Helga segir mikið spurt eftír bókurum og fólki í bók-
haldsstörf og þannig hafi það verið um nokkurt skeið. „Fyrirtæki
hafa vaxið mikið að undanförnu og skýringin getur kannski legið
í þvi. Starfsmenn hafa kannski sinnt bókhaldi í hlutastarfi en með
vextinum þarf bókhaldara i fullt starf. Það eru líka síauknar kröf-
ur gerðar til upplýsinga úr bókhaldi og auknar kröfur eru um að
bókhald lýrirtækja liggi opið týrirsegir hún.
Einnig er mikið spurt ettír fólki í sérhæfð skrif-
stofustörf og riturum með góða tungumála-
kunnáttu.
- En hvaða eiginleikum er framúrskarandi
starfsmaður búinn?
Viðmælendur Fijálsrar verslunar eru sam-
mála um að hinn fullkomni starfsmaður sé
ekki og verði aldrei til en lýrir utan gáfur,
menntun og heppilega reynslu nefna þeir eig-
inleika eins og heiðarleika, áreiðanleika, raun-
sæi, framsýni, jákvæðni, sveigjanleika, vilja til
að axla ábyrgð, þjónustulund, frumkvæði, lip-
urð í mannlegum samskiptum og gagnrýna
hugsun sem bijótist fram á jákvæðan og upp-
byggilegan hátt „í dag er fólk ekki ráðið endi-
lega í starf samkvæmt starfslýsingu heldur
getur starfsmaðurinn mótað starfið eftír sín-
um persónuleika og þeirri menntun, sem
hann kemur með inn í iýrirtækið," segir Helga
Jónsdóttir, framkvæmdasljóri Liðsauka. SH
Framúrskarandi
starfsmaður er
- vel menntaður
- gáfaður
- jákvæður
- sveigjanlegur
- framsýnn
- raunsær
- heiðarlegur
- áreiðanlegur
- viljugur til að axla ábyrgð
Og hann hefur
- þjónustulund
- frumkvæði
- gagnrýna hugsun