Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 62
Colin Lamberton og Seyoan Vela ræba við Ásmund Þórðarson hjá
XYZETA, sem hélt ráðstefnuna. A St. Luke 's stofunni er allt lagt upp úr
því að starjsmönnum þyki gaman í vinnunni, það andrúm sé einijarðveg-
urinn Jyrir frjóar hugmyndir.
eða eitthvað annað. Svo eru þeir sem geta ekki hugsað nema fyr-
ir framan skjá og þá bara gera þeir það. Eina einkasvæðið sem
menn hafa eru skápar, en þeir eru fremur lítið notaðir og það sem
fólk skilur eftir hér og þar er látið í kassa sem gengur undir nafn-
inu 5:30 kassinn. I orði kveðnu á að fleygja því sem í hann fer að
ákveðnum tíma liðnum, en við erum svo góðgjarnir að yfirleitt
fær fólk að bjarga því sem það á.“
Veljlim Okkar viðskiptavini Nokkrar umræður og hugleiðingar
hafa orðið um sjóðinn sem myndast hefur hjá St. Luke's, eignar-
sjóðinn. Þeir félagar segja að hann verði notaður sem varasjóður
og að sjálfsögðu fái þeir sem hætta greiddan út sinn hlut. Þar sem
þeir sem upphaflega hófu störf hjá fyrirtækinu séu að eldast, fari
að koma að því að greitt verði úr sjóðnum, en hann þurfi lika að
vera til sem öryggisnet, komi eitthvað óvænt upp á eða ef verk-
efnum fækkar og minna komi inn. Þá sé hægt að sækja í hann og
greiða laun.
„Við höfum getað valið okkur viðskiptavini og höfum reynt að
hafa það til hliðsjónar að viðskiptavinurinn hafi ekki minni veltu en
5 milljónir punda á ári. Það er einfaldlega vegna þess að auglýs-
ingavinna er dýr og við leggjum mikið í hana. AUir okkar við-
skiptavinir greiða ákveðið grunngjald, 25 þús. pund á mánuði, og
svo greiða þeir það sem er umfram kostnaðinn við gerð auglýsing-
anna. Þetta hefur gengið upp og með þessu höfum við haft mögu-
leika á að gera vel. Okkur hefur líka reynst vel að vera ekki alltaf
með sama fólkið sem sinnir hverju fyrirtæki heldur skiptum við út
í hópunum. Og eitt af því sem við gerum öðruvísi, er að þeir sem
vinna auglýsinguna hafa miklu beinna samband við viðskiptavin-
inn en var áður. Það þarf ekki að fara í gegnum marga aðila held-
ur er meira um beina samvinnu að ræða alveg frá upphafi.“
IVIARKAÐSWÁL ÓVENJULEG AUGLÝSINGASTOFA
Hvað fannst þeim?
Styrmir Sigurðusson Styrmir Sigurðsson, kvikmyndagerðar-
maður hjá Labrador, sótti ráðstefnu XYZETA og hlustaði á þá
Colin Lamberton og Seyoan Vela segja frá St Luke's. „Mér þyk-
ir heilmikið til þessara manna koma sem einstaklinga sem starfa
við auglýsingar," segir Styrmir. „Það er heldur engum blöðum
urn það að fletta að fyrirtækið St. Luke's er mjög framsækið og
þetta rekstrarform þeirra skapar kjöraðstæður fyrir þá sem
starfa að skapandi vinnu. Þar sem þeir félagarnir eru dálítið inn á
við eins og góðu auglýsingafólki sæmir vantaði svolitið upp á
Morfís elementið, þ.e.a.s. að grípa salinn. Labrador, fyrirtækið
sem ég starfa hjá, vinnur að vissu leyti eftir sömu lögmálum og
St. Luke's, en við höfúm þó rekið okkur á ýmsa veggi. Skýringin
gæti verið að markaðurinn hér sé einfaldlega ekki nógu stór. Það
þarf sennilega stærri sjóði og verkefni tíl að leyfa tilraunastarf-
semina, umburðarlyndið og einstaklingsfrelsið sem einkennir
starfsumhverfi St Luke's.“
JÓn Örn Guðmundsson „Ég hafði gaman af því að kynnast þessu
rekstrarformi sem er nokkuð öðruvísi en maður er vanur,“ segir
Jón Örn Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Intrum á ís-
landi, en hann var meðal ráðstefnugesta. „Fyrirlesararnir voru lif-
legir og skemmtilegir en ég vil nú ekki ganga svo langt að segja
að fyrirlesturinn hafi opnað mér neinar nýjar gáttir, heldur frem-
ur vakið athygli á möguleikum. Ég þekktí ekkert til St. Luke's
fyrir en hafði heyrt af þessu fyrirtæki þar sem allir starfsmenn
eru eigendur og það var gaman að kjmnast þessu betur, greini-
lega hugmyndaríkt fólk þarna á ferð.“
Dóra Isleifsdóttir „Mér kom á óvart hversu fáir íslenskir hönn-
uðir og auglýsingafólk mættu þvi að fyrir mér er fyrirkomulagið
á St. Luke's einstaklega vel hugsað til að fólk geti unnið skapandi
vinnu,“ segir Dóra Isleifsdóttír, grafískur hönnuður. ,AUt skipu-
lag á stofunni miðast út frá því hvernig fólk hagar sér og allt er
gert til að komast hjá því að setja fólk í þvingandi aðstæður.
Starfsmenn St. Luke's eiga stofuna sjálfir og allir eiga jafnan hlut.
Grunnhugmyndin varðandi þetta fyrirkomulag er virðing, virð-
ing gagnvart viðskiptavinum og öllu samstarfsfólki. Ástæða þess
að St Luke's leggur svo mikla áherslu á virðingu, og gengur svo
langt að skapa jafnréttí í verki með eignarhaldinu, er að virðing er
forsenda þess að samvinna virki. I skapandi vinnu er grundvall-
aratriði að fólki Iiði vel og allt sem minnkar hræðslu og kviða eyk-
ur likurnar á framúrskarandi úrlausnum. St. Luke's og önnur
sambærileg fyrirtæki eru svo sannarlega umhugsunarefiii fyrir
fólk sem gerir ekki bara kröfu um góðan árangur og þokkaleg
laun heldur lika ánægjulega daga.“ 33
Það er gaman í Vinnunni Þetta er allt gott og blessað, en hvað
er það sem í raun og veru gerir St.Luke's að svona miklu betri
stofú að annarra áliti? Jú, það er líklega þessi hugsun, að finnast
gaman í vinnunni og líta á hana sem annað og meira en vinnu,“
segir Colin.,Að líka vel við samstarfsfólkið - en þvi er skipt upp í
hópa sem aldrei eru stærri en 35 manns, einfaldlega vegna þess
að við höfum séð að verði hóparnir stærri þá missir fólk tengsl
innbyrðis og um leið hættir það að fylgjast náið með hinum og
taka þátt í lífi þeirra. Við erum stóran hluta vökutímans í vinnunni
og mottóið er að hafa gaman af vinnunni." 33
Stóiir viðskiptavinir þeirra hafa aðstöðu í
fyrirtækinu og er t.d. IKEA með sérherbergi
þar sem allt er innréttað í IKEA húsgögnum,
British Teiephone er með sérherbeigi sem
er eins og símakiefi og svo framvegis.
62