Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 62
w
slensk fyrirtæki sem áhuga hafa á láni uegna samstarfsuerk-
efna uið færeysk eða grænlensk fyrirtæki geta haft samhand
uið Lánasjóð Uestur-Norðurlanda.
Vestnordenfonden, hér á íslandi nefndur Lánasjóður Vestur-
Norðurlanda, lánar fé til verkefna á Grænlandi, í Færeyjum og
til íslenskra fyrirtækja sem eru með samstarfsverkefni við
grænlensk eða færeysk fyrirtæki. Sjóðurinn sem er í eigu
Norðurlandanna allra, var stofnaður árið 1986 og hefur yfir að
ráða rúmlega 118 milljónum DKK til útlána.
Aðalskrifstofa sjóðsins er að Suðurlandsbraut 24, Reykjavík,
en einnig er skrifstofa í Nuuk á Græn-
landi. Starfsmenn hér á fslandi eru þrír
talsins, þar af tveir í hlutastarfi. Á Græn-
landi er einn starfsmaður. Sjóðurinn hefur
einnig aðstöðu f Færeyjum en forstjóri
sjóðsins sem er frá Færeyjum fer reglu-
lega til Færeyja til að sinna þeim verk-
efnum sem þar eru í gangi.
Stjórn sjóðsins skipa sjö fulltrúar, einn
frá hverju aðildarlandi. Stjórnarfundir eru
haldnir tvisvar á ári, til skiptis á Græn-
landi, í Færeyjum og á íslandi á haustin
og í Kaupmannahöfn í mars á hverju ári.
Lánsumsóknir eru eftir sem áður
afgreiddar jafnóðum og þær berast
sjóðnum. Fulltrúi Grænlands í stjórn er nú
formaður næstu tvö árin og fulltrúi Fær-
eyja er varaformaður sama tímabil. Þeir
skipta svo um hlutverk eftir hver tvö ár.
Fulltrúi íslendinga í sjóðnum nú er Stur-
laugur Þorsteinsson verkfræðingur.
Aðalskrifstofa Lánasjóðs Uestur-Norðurlanda er að Suðurlandsbraut 24, Reykjauík.
62
mmmmm