Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 81

Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 81
 FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR eða eigin nota. Úr sem kostar fimm þúsund eða úr sem kostar 250 þúsund og allt þar á milli. En Leonard selur ekki aðeins skartgripi, heldur er þar einnig að finna litlar og fallegar styttur úr gleri og kristal sem gott er að kippa með sér til gjafa. Landsbankinn er við enda gangsins og í honum skipta menn aurunum sínum í dollara eða evrur, allt eftir því sem þarf. Þeim sem eru að flýta sér er til þæginda hraðbanki sem skiptir umyrðalaust og rösklega íslenskum krónum i útlenda peninga. Bankinn sá ræður yfir dollurum, evrum, dönskum krónum og pundum og er afskaplega einfaldur og þægi- legur í notkun. Skáhallt á móti Landsbankanum er lítil verslun, litla búðin á horninu. The Corner shop. Þar má finna fersk matvæli og drykki sem tilvalið er að taka með sér til gjafa því öllu er þessu pakkað samkvæmt reglugerðum. ís- lenskur markaður rekur þessa ágætu verslun og á þakkir skildar fyrir. Hin stóra verslunin í flugstöðinni er íslensk- ur markaður. Hann hefur verið rekinn lengi, allt frá árinu 1970. Þar má finna fyrst og fremst íslenskar vörur, matvæli, ullarvörur og list- muni, enda var verslunin í upphafi sett upp til að kynna erlendum gestum það sem landið býður upp á þegar þeir höfðu ekki færi á að komast lengra en í flugstöðina. Verslunin hefur stækk- að mjög að undanförnu og hefur yfir að ráða úti- búi á Schengensvæðinu en uppi í stóru búðinni er gríðarstór og öflug bóka- og blaðadeild sem Penninn og Islenskur markaður reka í samein- ingu. Þar er allt nýjasta lesefnið á boðstólum og einnig ritföng og fleira fýrir þá sem það þurfa. Einnig má fá nokkuð af raftækjum, filmur og annað sem gott er að grípa með sér. I horninu vinstra megin þegar komið er inn í salinn er svo lítil sportvöruverslun þar sem hægt er að fá ágætt úrval af sportfatnaði og skóm. Síðasta verslunin, en hreint ekki sú sísta, er Saga Boutique. Uppáhald margra því að i henni má kaupa vönduð föt i þekktum merkj- um á verði sem vart á sér hliðstæðu. Skó frá Lloyds, töskur frá Longchamp, fatnað frá Boss, Sand og DKNY svo eitthvað sé nefnt. Einnig fýlgihluti eins og slæður, veski og belti. Stöðugt koma nýjar vörur og farþegar geta verið búnir að undirbúa komuna með heim- sókn á heimasíðu verslunarinnar eða spjalli við afgreiðslufólk til að vita hvað er til hverju sinni og hvaða tilboð eru í gangi. Lítil en þægi- leg búð. Þar sem allar vörur í verslunum stöðvar- innar eru án tolla og skatta, er skynsamlegt að skipuleggja ferðina vel og gefa sér góðan tíma til að skoða og versla. Það borgar sig tvímæla- laust. 35 Leonard. Landsbankinn. Islenskur markaður. Saga Boutique. 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.