Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 94
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Með fullan bílskúr af koníaki
r
Islenskur markaður hefur verið starfræktur í
flugstöðinni frá árinu 1970 og var fyrst í stað
eingöngu með íslenskar vörur á boðstólum. Nú
er vöruúrvalið mun ijölbreyttara þó svo íslensku
vörurnar séu enn í meirihluta eins og gefur að
skilja. Stórar vörulínur hafa bæst við og er auðvelt
að eyða góðum tíma í þessari verslun sé verið að
bíða eftir flugvél.
„Hér vinna nú um 25 manns á vöktum en
opnunartíminn fer eftir umferðinni hér,“ segir
Logi Ulfarsson, framkvæmdastjóri Islensks
markaðar hf. í Leifsstöð. ,Aðalsöluvara okkar hér
eru minjagripir, sælgæti og gjafavara, að bókum
og blöðum ógleymdum en hér er mjög öflug
bóka-, ritfanga- og blaðadeild sem við rekum í
samstarfi við Pennann. Þeir Islendingar sem hér
fara í gegn kaupa mest af matvöru, sælgæti og
lesefni auk gjafavöru en í henni eru árstíðaskipti.
Fyrir jólin séljast erlendu merkin, Jensen og Bing
& Gröndal, sérlega vel en aðra árstíma seljast
íslenskir listmunir betur.“
Þeir sem fara frá Leifsstöð eru um 870 þúsund
á ári og munar um minna. Af þeim eru líklega um
40% sem aldrei koma inn í landið og einu kynnin
sem þeir fá er Leifsstöð. Því skipti máli að þeim
hugnist það sem þar er og er talsverð áhersla lögð
á það í Islenskum markaði. Verslunin hefur þess
vegna oft verið kölluð gluggi Islands að umheim-
inum og þar fá menn gott yfirlit yfir það sem fram-
leitt er í landinu í þeim vöruflokkum sem eru til
sölu. „Við höfum fundið til þess að nýja álman er
ekki að skila eins miklu og búist var við, enda er
verslunin okkar á slæmum stað og það eru ekki
allir sem finna hana,“ segir Logi. „Þessir „transit"-
farþegar eru þó mikilvægir og þeir eyða gjarnan
talsverðu fé hér þannig að það skiptir máli að
aðstaða fyrir þá sé góð og að vöruúrval sé eins og
best verður á kosið.“
Logi, sem verið hefur framkvæmdastjóri frá
árinu 1990, hefur horft á ýmsar breytingar í gegn
um tíðina: „Matur hefur alltaf verið vinsæll til gjafa
hjá Islendingum sem fara til útlanda og nú getum
við boðið upp á það að pakka sérstaklega i körfur
fyrir fólk, ef það sem til er pakkað, hentar ekki.
Það að koma með íslenskan mat og gefa viðskipta-
aðilum í útlöndum, mælist vel fyrir og sérstaklega
hjá mönnum sem eiga fulla bílskúra af koníaki frá
hinum og þessum gestum sínum. Þeir kunna vel
að meta íslenskan harðfisk og annan mat sem hér fæst,“ segir lítið af hverju í körfu og krassandi sögur um hákarl og brenni-
Logi brosandi. ,Að ekki sé talað um þegar komið er með sitt vín látnar fylgja með.“ H5
Fjölbreyttar vörur eru hjá Islenskum markaði.
í flugstöðinni eru fjórar verslanir á vegum íslensks markaðar.
búðarinnar í „gömlu“ byggingunni, minjagripaverslun beint á móti henni, lítil
matvöruverslun á horninu við útganginn og útibú í Schengenbyggingunni.
94