Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 103

Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 103
viðskiptavinirnir sem eru einfaldir og gleyma því að bankar nútímans eru allt annað fyrirbæri en bankar gær- dagsins. Nú bæði ráðleggja þeir, lána okkur peninga til að fylgja ráðunum og selja okkur vörur, allt í dýrlegu skjóli smáa leturins, sem of mörgum láist að lesa. er ekki kráin hans Jóns Olafssonar, þessi er við Kings Road í Chelsea. Harðarson í Manchester hefur þróað. COL er þegar notað með góðum árangri af íslenskum tryggingarfélögum. Kerfið nýtir sér hversu auðvelt er að nota Netið til upplýsingamiðlunar. COL er skemmtilegt dæmi um viðskiptahugmynd, sem hefur verið reynd á íslandi og er orðin útflutningsvara. Njáll er nú í viðræðum við þýskt fyrirtæki, Safe City, sem er í eigu fyrrum yfirmanns þýsku glæpalögreglunnar, Kripo, og því fyrrum starfsbróðir Derricks. Breska farsímafyrirtækið Vodafone hefur líka sýnt COL áhuga, enda undir miklum þrýstingi að gera eitthvað annað við farsímaþjófnuðum en bara að selja fórnarlömbunum nýja síma og rukka þá fyrir símnotkun þjófanna. „Falleraðir“ forstjórar skrifa varnarrit Það fylgir því ýmislegt gott að vera forstjóri þekkts stórfyrirtækis. Það eru launin, boð á réttu staðina, með rétta fólkinu og vonandi líka starfsgleði. Gallinn er að ef allt fer í steik vita allir af þessu, þökk sé vaxandi áhuga fjölmiðla á viðskiptalífinu. Þess vegna færist það í vöxt að „falleraðir" forstjórar finni sig knúna til að skrifa varnarrit í stað þess að bera harm sinn í hljóði. Nýjasta dæmið er John Mayo, fyrrum forstjóri Marconi, sem var rekinn í fýrra. Mayo fékk blaðsíðu á dag í Financial Times í þrjá daga. Tónninn í varnarriti Mayos var hliðstæður tóninum í minningabókum Steingríms Hermannssonar: „Ég vissi þetta var allt tómt rugl en af því allir hinir vildu þetta þá fylgdi ég því bara.“ The Guardian er ekki uppveðrað yfir afsökununum og áleit að Mayo hefði átt að segja af sér ef hann vissi allt sem hann vissi þar og þá. Blaðið bætir því svo við að Mayo hafi verið „ill- ræmdur lyrir stórt sjálf. Það er auðsjáanlega enn óskert". Mayo hefur nýlega samið um starfslokagreiðslur sínar, hann krafðist einnar milljónar punda, um 150 milljóna íslenskra króna, en Marconi segist ekki upplýsa greiðsluna fýrr en í árs- skýrslunni. Einhvern tíma var sagt að það þýddi ekki að gína yfir meiru en maður gæti étið. Fylgi Mayo þessu bendir allt til að hann hafi heilt munaðarleysingjahæli á sínu framfæri. H3 Varúlfar Otj verðbréfasalar Hvað eiga varúlfar og verð- bréfasalar sameiginlegt? Það er erfitt að ná í varúlfa og því vandsannað að báðir sjúgi blóð, en vísindamenn við háskólann í Michigan geta hins vegar frætt okkur á að líkt og varúlfar eru verðbréfasalar viðkvæmir fýrir fullu tungli. Þá hleypur galskapur í þá og þeir selja. Það er þó ekki alveg auðvelt að nýta þessar upplýsingar í ábata- skyni. Vísindamennirnar hafa þegar prófað að kaupa við fullt tungl og græddu ekki á þvi. Það skipti meira máli í hvaða fýrirtækjum var keypt. Þetta er því ein af þessum áhugaverðu en gagnslausu upplýsingum, sem síflæða yfir Þetta heimsbyggðina. Mynstur í upplýsingaflæðinu er stórmál í viðskiptum. Pattern- Vision er íslenskt lýrirtæki, sem byggir á hugmynd Magnúsar S. Magnússonar prófessors í atferlisfræðum við Háskóla Islands. Með því að beita nýstárlegri nálgun við að greina mynstur í upp- lýsingaflæði hefur Magnús þróað forrit, sem lofar góðu í upplýs- ingagreiningu. PatternVision er í samstarfi við franska og ítalska háskóla og það verður fróðlegt að lýlgjast með ffamvindu þess á sviði sem býður upp á víðtæka möguleika. Móðgandi bónus; 200 milljónir í skaðabætur Er bónus upp á þrjár milljónir íslenskra króna móðgun? Já, þegar aðrir fá tífalt meira. Líf kvenna í breskum fjármálafýrirtækjum getur verið erfitt. Ofan á strákamóralinn, sem kemur fram í því að fara á súlustaði með kúnnana, bætist mismunun í bónus, bílastyrk o.fl. En þetta leiðréttir dómskerfið. Nýlega voru Julie Bower, fýrrum fjármálagreini hjá Schroder Securities, dæmdar 1,4 milljónir punda (um 200 milljónir króna) i skaðabætur fýrir að þola mismunun, súlustaðaferðir og móðgandi bónus, allt vegna kynferðis hennar. En það geta víða myndast flóknar aðstæður fýrir kvenfólk. Ég heyrði einu sinni finnska framakonu lýsa því þegar hún fór í fýrsta skiptið í hugljómunarferð með starfsfé- lögunum, tómum karlmönnum. Auðvitað var farið í skógarkofa og svo í sánuna að loknum stífum vinnudegi. Þetta sá hún fýr- ir - og mætti á sundbol í stað evuklæða, en lét sér í engu bregða þó karlarnir væru á adamsklæðunum. Þegar kom að næstu ferð vildi svo til að allir samstarfsmennirnir mættu í sund- skýlum. Málið var aldrei rætt frekar, en sundfötin alltaf notuð þegar hún var viðstödd. Stundum er hægt að leysa mál án margra orða og utan dómstóla. Crime-On-Line-kerfið hans Njáls í Manchester Farsímafýrír- tækin finna daglega fýrir örgum viðskiptavinum, sem hafa lent í því að farsímanum var stolið. Farsímar eru mest stolni hlut- urinn í Englandi. Crime-On-Line, COL, gæti verið hluti af lausninni. COL er skráningarkerfi fyrir Netið, sem Njáll 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.