Frjáls verslun - 01.01.2002, Blaðsíða 74
SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR BÓKflÚTGEFflNDI
Gefur út Jamie
Sigrún Halldórsdóttir er ekkert að
skafa af hlutunum og talar
tæpitungulaust Reynslan, sem hún
hefur aflað sér undanfarin ár sem bókaút-
gefandi í Danmörku og á Islandi hefur
verið dýrmæt, og nú stefnir Sigrún Hall-
dórsdóttir að því að færa út kvíarnar.
Með fimm starfsmenn í Danmörku og
þijá á Islandi hyggst hún gefa út bækur í
Svíþjóð á þessu ári. I framtiðinni hefur
hún augun á Noregi. Hún barmar sér
ekki, en er þó á því að bóksala á íslandi sé
í molum. „Annað eins kerfi tíðkast
hvergi," segir hún. „Bóksala á íslandi er
eins og skransala. Það er svona Kolaportsmenning yfir henni.“
Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver River Café er staðurinn, sem
Sigrúnu finnst tilvalið að hittast á í London. Veitingastaðurinn
liggur afskekktur við Thames, en allir sem hafa ánægju af góðum
mat og fylgjast með veitingastöðum þekkja staðinn. Allt yfir-
bragðið er mjög nútímalegt, hannað af Richard Rogers, einum
þekktasta arkitekt Breta, sem er með vinnustofu við hliðina og
kvæntur annarri konunni, sem er drifflöður veitingahússins.
Þarna vann sjónvarpskokkurinn kunni Jamie Oliver áður. Vin-
sældir Olivers hafa komið Sigrúnu vel. Hún hefur gefið út tvær
bækur hans bæði í Danmörku og á Islandi og sú þriðja er vænt-
anleg með haustinu. I Danmörku hafa bækurnar selst í ca. 50
þúsund eintökum, fimm þúsund eintök hafa selst á Islandi og
þær seljast enn vel.
Ahugi Sigrúnar á bókaútgáfu er brennandi, en það var eigin-
lega hending að hún lenti þar. Eftir nám í viðskiptafræði við
Háskóla Islands fór hún í framhaldsnám við Verslunarháskólann
í Kaupmannahöfn 1993. Að loknu 2 1/2 árs námi stýrði hún fjár-
máladeild dönsku flóttamannahjálparinnar, en efdr að hafa unnið
þar í þrjú ár var starfsemin endurskipulögð og Sigrún ákvað þá
að hætta. Áhugi á bókaútgáfu hafði alltaf blundað með henni og
meðan hún velti fyrir sér hvað hún ætti að gera næst gaf hún út
bók Ophru Winfrey á íslandi 1998. „Ég
var heppin og bókin seldist
vel,“ segir Sigrún.
Síðan hafa
Sigrún Halldórsdóttir býr í Kauþ-
mannahöfn, gefur út bœkur á Islandi og
í Danmörku og kvartar ekki. Henni
hefur jafnvel tekist að klófesta bækur,
sem stóru dönsku forlögin hafa haft
augastað á, eins og matreiðslubœkurnar
eftir sjónvarpskokkinn Jamie Oliver-
sem nefndur er kokkur án klæða.
umsvifin aukist og nú leitar hún ekki ann-
ars en áhugaverðra bóka til að gefa út.
Myndir og texti: Sigrún Davíðsdóttir
Slagurinn um sjónvarpskokkinn Oliver
Með útgáfúnni á bók Olivers árið 2000 var
grunnurinn orðið nokkuð góður. Stóru
forlögin Gyldendal og Host og Son höfn-
uðu bókinni og naga sig líklega ærlega í
handabökin fyrir. Þegar Sigrún fór á
stúfana eftir útgáfuréttinum var
Aschehoug, annað stórt forlag, í eigu
Egmont-samsteypunnar, komið í spilið.
„Það var sama hvað ég bauð, alltaf gat
Aschehoug bætt um betur. En þegar ég
skellti Islandi á borðið, sagði Jamie Oliver ,já“ og þar gat
Aschehoug ekki yfirboðið. Jamie vildi gjarnan fá bókina sína
gefna út á Islandi, þó umboðsmaður hans væri á móti því að
skipta við lítíð og óþekkt forlag í staðinn fyrir stórt forlag. Jamie
sagði einfaldlega: „Ég byrjaði með ekki neitt og það geta aðrir
líka gert“." Hann hafði sitt fram, Sigrún hreppti bókina og hvorki
hún né Jamie hafa þurft að sjá eftír þvi.
Bækur á íslandi eru seldar eins og skran, ekki menning Það er
íslenska umboðssalan í bóksölunni, sem Sigrúnu er sem mest í
nöp við á íslandi. „Utgefendur geta sjálfum sér um kennt. Þeir
hafa grafið sér eigin gröf og taka þátt í kerfinu. Þetta kerfi tíðkast
hvergi annars staðar í heiminum og það er engin önnur vara seld
með þessum hætti,“ fullyrðir hún óhikað. „Með þessu móti er
engin ábyrgð hjá smásölunum, því þeir geta bara skilað þvi sem
selst ekki. Það er gremjulegt að stórmarkaðirnir skuli í þokkabót
fá að selja bækur á þessum forsendum og það eingöngu fyrir jól.
Þeir geta selt á undirverði miðað við bóksalana, sem selja allt árið
og geta ekki lækkað verðið - og svo geta stórmarkaðirnir skilað
því sem selst ekki. Þetta er eins og skransala.“
Sigrún segir á að þetta kerfi geri allar aðstæður í íslenskri
bókaútgáfu einkar leiðinlegar. Hún bendir á danska kerfið, þar
sem það hefur tíðkast að bækur haldi föstu verði í tvö ár frá
útgáfu og síðan geti bóksalar boðið bækurnar á
lækkuðu verði. Nú er hins vegar að koma til sög-
unnar „leiðbeinandi verð“ og enn of snemmt að
segja hver reynslan af því verði. Enn sem komið
er hefur Sigrún aðallega gefið út fagbækur og
þýddar bækur. „Það eru svo margir um skáld-
sagnamarkaðinn," segir hún, en hefur greinilega
áhuga á honum með tímanum. Hún veit að
bókaútgáfa er viðsjárverð grein og eins gott að
yfirvega allar ákvarðanir sem best Fyrir jólin
gaf hún út Jamie á Islandi og Isherrann, um-
Matreiðslubækurnar eftir sjónvarþskokkinn Jamie
Oliver hafa ekki aðeins komið Sigrúnu á bragðið
heldur á beinu brautina.
Fv-mynd: Geir Olafsson