Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 29
SÉRFRÆÐINGAB SPfl í SPILIN
Spumingin til Ketils B. Magnússonar, viðstíptasiðfræðings og stundarkamara í viðstíptasiðfræði við
Háskólann í Reykjavík: VÍðskipttJSidfi'ŒðÍ CT OTÖIÓ tlskuOTf) l Vl()skiptCl~
heiminum. Um hvad snýst viðskiptasiðfrœdi sem fræðigrein og hvaða
gagn hafafyrirtœki afhenni umfram það að sýna ævinlega
heiðarleika og traust í viðskiptum?
Gerir kleift að leysa
úr siðaklemmum
Stundum þegar orðið „viðskiptasiðfræði“
ber á góma er spurt hvort ekki sé um mót-
sögn að ræða - hvort nokkuð sé hægt að tala
um siðferði í viðskiptum fremur en gifta pipar-
sveina. Þó svo þessum frasa sé oftar skellt
fram í gríni eða hálfkæringi fremur en alvöru,
leynist þarna undir býsna algengar efasemdir
um forsendur þess að blanda saman viðskipt-
um og siðfræði.
Viðskiptasiðfræði og almenn siðfræði í eðli
sínu er viðskiptasiðfræði ekki frábrugðin
heimspekilegri siðfræði. Hugtökin, aðferð-
irnar og kenningarnar eru í mörgum tilfellum
þær sömu og gömlu heimspekingarnir
Aristóteles og Kant notuðu í siðfræðistörfum
sínum. Menn beita rökum og samræðum til
að átta sig á muninum á réttu og röngu. Það
sem einkennir viðskiptasiðfræðina er við-
fangsefnið - viðskiptasiðfræðin. Hún gerir við-
skiptalífið að sínu viðfangsefni á meðan t.d.
heilbrigðissiðfræði fæst við málefni heilbrigð-
isgeirans.
Gagnsemi viðskiptasiðfræðinnar Gagnsemi
viðskiptasiðfræðinnar fyrir fyrirtæki er fjór-
þætt og eitt sjórnarhornið fæst með því að
líkja henni við bremsukerfi og stýrikerfi í bíl.
• í fyrsta lagi getur viðskiptasiðfræðingur-
inn látið stjórnendum og starfsfólki í té
hugtök og aðferðir sem gerir þeim kleift að
leysa úr siðaklemmum sem koma upp
þegar skilin milli réttra og rangra við-
bragða eru óljós. Þannig getur siðfræðin
t.d. komið að góðu gagni við að greina milli
gjafa sem eiga rétt á sér og þeirra sem í
raun teljast mútur.
• í öðru lagi getur viðskiptasiðfræðin
aðstoðað fyrirtækið við að koma upp siða-
reglum og skipuleggja þjálfun. Þetta getur
auðveldað fólki að taka ákvarðanir í siðferð-
islega viðkvæmum aðstæðum sem líklegar
eru til að endurtaki sig í fyrirtækinu. Sem
dæmi um þetta má nefna það hvenær
starfsmenn megi þiggja gjafir frá birgjum.
Þannig getur siðfræðin bremsað fyrirtækið
af áður en skaðinn er skeður.
• í þriðja lagi getur siðfræðin auðveldað
stjórnendum að setja stefnuna og stýra
fyrirtækinu inn í framtíðina með því að
greina þau gildi sem fyrirtækið stendur
fýrir. Þetta gæti til dæmis átt við ef í ljós
kemur eftir slíka gildisgreiningu að eitt
mikilvægasta gildi matvælafyrirtækis sé
hrein náttúruafurð. í kjölfarið verður þá
auðveldara að stilla stefnu fyiirtækisins í
átt að lfffænni ræktun.
• í fjórða lagi getur viðskiptasiðfræðin auð-
veldað fýrirtækjum sem eiga í alþjóðlegum
viðskiptum að skilja og bregðast við þeim
siðum og velsæmisreglum sem viðgangast
í ólíkum löndum. Með þvi að greina, skilja
og skýra framandi siðferði eru meiri líkur á
að alþjóðleg viðskipti skili árangri.
Og hvað er bá viðskiptasiðfræði? Þetta má
draga saman og segja að viðskiptasiðfræði sé
skipulögð aðferð við að hugsa um ákvarðanir
í viðskiptalifinu, með langtíma hagsmuni fyrir-
tækisins, hagsmuni okkar sjálfra og samferða-
manna okkar að leiðarljósi. Ef við álítum það
góð viðskipti þegar báðir aðilar bera eitthvað
úr býtum sjáum við að viðskiptasiðfræði er
bæði nauðsynlegur og eðlilegur partur af við-
skiptum. III
„Stundum þegar orðið „viðskiptasiðfræði" ber á góma er spurt hvort ekki sé um mótsögn að
ræða - hvort nokkuð sé hægt að tala um siðferði í viðskiptum fremur en gifta piparsveina."
Ketill B. Magnússon,
viðskiptasiðfræðingur og
stundakennari í við-
skiptasiðfræði við Háskól-
ann í Reykjavík: „Gagnsemi
viðskiptasiðfræðinnar fyrir
fyrirtæki er fjórþætt og eitt
sjórnarhornið fæst með því
að líkja henni við bremsu-
kerfi og stýrikerfi í bíl.“
29