Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 72
.atlantsskip.is ★★
Litill, einfaldur og ósköp lát-
laus vefur, alls ekkert
ósmekklegur en heldur ekk-
ert sérlega íburðarmikill og
þannig á það kannski að
vera. Við fyrstu sýn virðast
allar nauðsynlegar upplýs-
ingar vera inni á vefnum, t.d.
heimilisfang, simanúmer og
siglingaáætlun, en þegar nánar er að gáð þá vantar t.d. verðskrána.
Fyrir fréttafíkla er kannski fulldjúpt á fréttirnar. 33
www.verdlagsstofa.is ★★tI
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar íslands, bendir á
heimasíðu bandaríska hagfrœðingsins Paul Krugmans,
www.wws.princeton.edu/~pkrugman, og heimasíðu blaköld-
unga, www.blakis.is. Mynd: Geir Ólafsson
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar íslands,
notar Netið til að fylgjast með og afla upplýsinga.
„Þótt hagfræði og fjármál taki mestan tíma er Netið
í raun einnig orðið hluti af flestu öðru sem maður tekur
sér fyrir hendur. “ Hér á eftír fara nokkrar síður sem
Þórður heimsækir oft.
Verðlagsstofa skiptaverðs
heldur útí ósköp einföldum
og fallegum vefum sem út-
skýrir stutt og hnitmiðað á
forsíðu til hvers hann eigin-
lega er. Vefurinn er prýðilega
upp byggður, þar eru helstu
upplýsingar sem hægt er að
ímynda sér að þurfi að vera
og enginn óþarfi. Á listanum til vinstri er hægt að smella á fréttir en
kannski hefði mátt lyfta þeim upp strax á forsíðu. Þetta er jú þannig
vefur... H3
www.wws.princeton.etlu/-Bhrugman „Þetta er heima-
síða bandaríska hagfræðingsins Paul Krugmans sem er
afar skarpur penni og sennilega einn bestí starfandi hag-
fræðingur í heiminum í dag.“
www.econ.yale.edu/~corsetti/euro „Evran og Evrópu-
sambandið eru í brennidepli á þessari síðu, einkum ífá
hagfræðilegu sjónarhorni. Markmiðið er að draga að allt
efni sem skiptir máli fyrir framvindu evrunnar og
samrunans í Evrópu. Síðan hentar því mjög vel hvort
sem er tíl að fylgjast með eða til rannsókna.“
WWW.oecd.org ,Á þessari siðu er að finna hafsjó af upp-
lýsingum um efnahagsmál í heiminum. Sama gildir um
www.imf.org.“
WWW.nyse.com „Heimasíða Kauphallarinnar í New
York, stærstu kauphallar í heimi.“
WWW.hydro.com „Ég fylgist enn vel með fyrirtækinu
Norsk Hydro frá því ég leiddi viðræður við fyrirtækið.
Þótt margir hafi horn í síðu Norðmanna vegna þess að
þeir féllu frá áformum sínum hér á landi, má ekki
gleyma að sennilega væri ekkert álverkefni til staðar
fyrir austan, ef þeir hefðu ekki þróað umrætt verkefni."
WWW.blakiS.iS „Þetta er heimasíða blaköldunga í ÍS
þar sem ég er meðal leikmanna." H3
www.3x.is ★★^
3x stál er með snyrtilegan
vef sem ætlaður er fyrir
erlendan markað. Vefurinn
er alls ekkert illa upp
byggður og kynnir fyrir-
tækið, starfsemi þess og
framleiðsluvörur. Þegar
smellt er á íslenska fánann
kemur upp öðruvísi forsíða,
sumsé fréttír og það er kannski fyllilega rökrétt ef meirihlutí erlendra
gesta er að koma þarna inn í fyrsta sinn til að kynna sér fyrirtækið og
starfsemi þess. Textarnir eru sómasamlegir í heild sinni. Myndir eru
fáar, einna helst grafík+fiskur í umgjörð vefsins. Með fréttunum eru þó
myndir af framleiðslutækjum. HO
Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★★★ Góður
★★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is