Morgunn


Morgunn - 01.06.1969, Page 71

Morgunn - 01.06.1969, Page 71
MORGUNN 65 þú þarft á þeim að halda. Og þú getur fylgzt svo vel með þessari eign þinni, að þú vitir jafnan hvað mikið þú átt eftir. Tími þinn er aftur á móti eingöngu eyðslufé. Þú verður að eyða honum jafnóðum og hann fellur þér í skaut. Ef þú ætlar að spara tímann með því að gera ekkert við hann, þá ferðu heimskulega að ráði þínu. Þá verður hann að engu í höndunum á þér. Þú ert þá búinn að tapa honum að fullu og öllu, án þess að hafa fengið nokkurn skapaðan hlut fyrir hann. Peninga getum við oft fengið að láni, þegar við þurf- um mjög á þeim að halda. En ég veit ekki um nokkurn banka eða lánasjóð, þar sem þú getur fengið þér lánaðan tíma, þeg- ar þér liggur á, til dæmis þegar þú sérð fram á það, að þinn eiginn tími hér á jörð sé að þrotum kominn. Og að því dreg- ur fyrr eða seinna fyrir okkur öllum. Af þessu leiðir, að viðhorf hugsandi manns til tímans hlýtur að verða allt annað en viðhorf hans til peninga sinna. Og satt að segja held ég að það sé mjög gott, að þetta skuli vera svona. Og um það mættum við vel hugsa miklu oftar en við almennt gerum. Hinn mikli höfundur lífsins gefur okkur hvorum um sig hér á jörð aðeins örlítið brot síns eilífa tíma. Og hann setur ófrávíkjanleg skilyrði fyrir þessari gjöf, eða öllu heldur fyr- ir þessu láni, sem hann veitir okkur til ráðstöfunar. Það lán færð þú aldrei útborgað allt í senn, heldur smátt og smátt, eitt og eitt augnablik í einu. Þessu augnabliki verður þú að eyða um leið og það gefst. Annars er það frá þér tekið fyrir fullt og allt, og þú færð það ekki, hvað sem í boði er. Liðin stund kemur aldrei aftur. Ég held, að með þessu sé hinn mikli höfundur tímans að brýna það fyrir okkur öllum svo ijóst, að ekki verði um villzt, hver höfuðnauðsyn það sé hverjum manni að nota tíma sinn rétt, verja þar engri stund að óþörfu til ónýtis eða jafn- vel til verra en ónýtis. Og til ennþá frekari áherzlu á þessa skyldu bætir hann þeirri staðreynd við, að engum er gefið að vita, hver stund hans á jörð kann að verða sú hinzta, og hans tími þar með gjörsamlega þrotinn í þessu lífi. 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.