Morgunn - 01.06.1979, Qupperneq 59
BÆKUR
57
Engir Islendingar hafa upplifaS aðrar eins hreytingar á
lífsháttum og þeir sem nú eru um og yfir fimmtugt. En
hefur afstaða landsmanna ekki breyst að sama skapi til þess
sem oft er kallað dulræn fyrirbæri og svokallaðir lærðir
menn hafa fyrir löngu talið í flokki hreinnar hjátrúar? Telja
Islendingar dulræna reynslu raunsanna eða lilvistarlausa?
Er hún ímyndun eða veruleiki? Þessi bók um könnun þess-
arar afstöðu landsmanna svarar þessum spumingum. Einnig
lýsir þessi könnun þeim höndum sem oft liggja milli dul-
rænnar reynslu annars vegar og almenns trúarlifs liins vegar.
Þá er inn i íslenska efnið fléttað ýmsum upplýsingum um
aðrar þjóðir til samanburðar, og eru þær einnig stórfróðlegar.
Það er afar mikilvægt, að höfundur þessarar ágætu hókar,
dr. Erlendur Haraldsson, er viðurkenndur sérfræðingur í
þeim könnunarrannsóknum, sem hér er lýst, og er þegar
byrjaður að gefa út hækur með öðrum heimskunnum vísinda-
mönnum um þessi efni. Með þessum ágæta islenska vísinda-
manni höfum við eignast okkar fyrsta dulsálarfræðing og
hann lætur þegar hendur standa fram úr ermum. Þessu
hljóta allir sannleiksleitendur að fagna. Hver er reynsla ís-
lendinga í dulrænum efnum? Og hver er trú þeirra á þeim?
Þessu svarar þessi stórfróðlega bók. Það er ekki seinna vænna
að við förum að átta okkur á þessum mikilvægu málum, því
réttur skilningur á þeim getur haft afdrifaríkar afleiðingar
fyrir afstöðu okkar til lifsins og mat á gildi ]æss og tilgang.
Þessi bók er svo forvitnileg, að litið vit er i öðru en að lesa
hana spjaldanna á milli, þótt hér verði eitthvað smávegis til
línt.
Um samanhurð við nágrannaþjóðir okkar, Dani, Vestur-
Þjóðverja og Bandarikjamenn er það að segja, að því fer
fjarri að trú okkar á hugræna, dulræna hæfileika séu með
eindæmum í samanburði við þessar þjóðir. Niðurstaðan er
sú, að meirihluti alls almennings í öllum Jiessum löndum
trúir á tilveru þeirra.
Höfundur bendir á það, að rússneska stórskáldið Fjodor
Dostojevski segi í einu rita sinna, að aaðsta hugmynd manns-