Bankablaðið - 01.12.1964, Side 7
Sumir létu sér þó uægja að sleikja sólskinið
úti á svölum liótelsins. Einstaka menn
þurftu að sofa. Kl. 16.00 var aftur tekið til
við verkefnin og haldið áfram til kvöld-
verðartíma kl. 19.00. Eftir kvöldverð var
frjáls tími, sem notaður var til að dansa og
syngja og spila keiluspil, sem var vinsælasta
dægrastytting þátttakenda. Undu margir við
þann leik fram á nætur.
Viðfangsefni námskeiðsins voru margvís-
leg, en öll snertandi kjör og atvinnu norskra
bankamanna.
Voru fyrst haldnir fyrirlestrar, en efni
þeirra var síðan tekið til nánari yfirvegunar
í 5 flokkum, sent Jjáttlakendum var skipað
niður í. Eengu allir flokkarnir sams konar
verkefni til að glítna við. Þegar þeir svo
höfðu leyst Jiað, komti þeir aftur saman í
fyrirlestrarsalnum, [tar sem forsvarsmaður
hvers flokks gerði grein fyrir sameiginlegri
niðurstöðu síns flokks. Oft komu ntjög ólík
sjónarmið fram hjá flokkunum, sem tirðu
Jtá tilefni fjiirugra umræðna.
Mánudagsmorguninn 20. april opnaði
Thoralf Gudim fróðleiksgáttir mótsins með
fyrirlestri, sem hann nefndi „Foreningsliv
og foreningsteknik". Kom hann þar inn á
öll helztu atriði í sambandi við fundarstjórn
og starfsreglur í félögum í Noregi, en Jtær
eru mjög svipaðar og hér.
Framkvæmdastjóri N.B.F., Carl Platou,
flutti Jjriðjudaginn 21. apríl mjög fróðleg-
an fyrirlestur um lög um vinnuvernd, lög
um vinnudeilur og lög um lærlinga í hand-
iðnaði, iðnaði, verzlunar og skrifstofustörf-
um. Gerði hann á skýran hátt grein fyrir
öllum helztu atriðum í túlkun og notkun
þeirra lagagreina, sem snerta norska banka-
menn.
Sama dag útskýrði Thorbjörn Bilden
launa- og vinnusamninga N.B.F., sem eru í
gildi frá 1. nóvember 1962 eftir meðhöndlan
í norsku ríkislaunanefndinni.
Höfuðeinkenni skipunar launaflokka er
að Jjeir skiptast í tvennt, svokallað minste-
l0nsregulativ og utvidet regulativ. Þessir
tveir flokkar skiptast svo hvor fyrir sig í
launastig. Fyrrnefndi llokkurinn skiptist í
3 stig, sem tekur 12 og 13 ár lengst að vinna
sig í gegnum. í 1. stigi eru bankar í Osló,
Bergen og Þrándheimi. í 2. stigi eru bankar
í 111 borguin og bæjum víðsvegar um Noreg
og í 3. stigi eru svo aðrir staðir. Lægstu
árslaun í 1. stigi eru 9.200,— og hæstu árs-
laun eftir 12 ár kr. 19.000,—.
Innifalið í Jiessum upphæðum er dýr-
tíðaruppbót, sem er kr. 2.600,—, 2.800,—,
3.000,— og 3.300,— fyrstu fjögur árin, en
eftir Jjað kr. 3.500,—. Allar upphæðir eru
miðaðar við norskar krónur. Hinn flokkur-
inn „utvidet regulativ" skiptst í 10 stig.
Þar eru lægstu árslaun kr. 18.100,— og
hæstu árslaun 30.600,— á ári og hærri. Hver
starfsmaður á kröfu til árlegrar hækkunar,
sem nemur 800,— til 1.000,— n. kr. Við flutn-
ing milli launaflokka á starfsmaður kröfu
á minnst eins árs hækkun, en ekki tveggja
ára. Hinsvegar ræður stjórn viðkomandi
banka, hvort starfsmaður skuli fá meiri
hækkun.
Þeir starfsmenn, sem lokið hafa 2ja ára
verzlunarskólanámi eða liafa hliðstæða
menntun, Jjeir, sem lokið hafa stúdentsprófi
eða hafa lokið eins árs bankaskóla fá einu
ári bætt við starfsaldur sinn. Þá l'á þeir, sem
lokið hafa 3ja ára námi við „pkonomist
gymnasium" tveim árum bætt við starfstím-
ann. Vinnutími skal vera 41 tími á viku
og öll vinna, sem unnin er eftir kl. 16.00
á virkum dögum reiknast sem eftirvinna.
Laugardaga og daga fyrir helgidaga skal
vinnu ljúka seinast kl. 14.30. Með sérstöku
samkomulagi milli N.B.F. og bankanna er
BANKABLAÐIÐ 5