Stundin - 01.09.1940, Side 30
30
STUNDIN
Hagsýni
Ulla.peysur eru alltaf í tísku
og eru bœði hlýjar og klæðileg-
ar. Efri peysan er græn með
rauðum bryddingum, en sú
neðri er brún með ísaumuðum
gmum og gulum stjörnum.
Munið að sjóða alla tappa, sem
]nð ætlið að nota í glös eða
flöskur.
og tízka.
Ef að geyma á einhvern vökva
á flöskum yfir lengri tíma, er
sjálfsagt að lakka vel yfir tapp-
ann. Þetta er t. d. nauðsynlegt
að gera við rabarbaraflöskur.
En hafi fólk ekki lakk við hend-
ina má notast við kertavax.
Boró, sem slá má upp á svip-
stundu eru alltaf hentug og
taka lítið pláss þegar maður
þarf ekki að nota þau.
Þegar fiskur er steiktur er gott
að hafa hveitið í réfpoka, en
ekki á diski, því þá er engin
hætta á að nokkuð af hveitinu
sáldist niður og fari til spillis.
Þessi hattur er úr brúnu filti,
en börðin eru brydduð með
grænu bandi. Samskonar bancl
er um hattinn sjálfan.
Sportjakki úr hlýju ullartaui,
hann er sérlega hentugur til að
vera i undir ,,svagger”kápu nú,
þegar fari ðer að kólna í veðri.
Ef slæmt lort eða lykt er í her-
bergi er gott að láta þangað
hráan lauk í 1—2 sólarhringa.
Munið að geyma skauta, golf-
kylfur, tennisspaða og önnur
sportáhöld á þurrum stað svo
að þau ryðgi ekki eða fúni.