Stundin - 01.09.1940, Side 35
STUNDIN
35
að fara að búast til brottferðar. Ilún vildi komast af stað áð-
ur en Heber kæmi heim, áður en her ísraelsmanna færi hjá.
Hún vakti hann. ”Mál að búast til ferðar, herra minn’’, sagði
hún.
Hann velti sér við og sá nekt hennar, hörundið var gulgrátt
að lit.
,,Þú tekur mig með þér, Sísera”, sagði hún. ,,Eg skal verða
þér góð kona og góð móðir barna þinna”.
,,Hvað?” sagði hann.
Hann hló. „Það er nóg af grannvöxnum og fríðum konum
í Haróset”.
Hann hallaði sér út af aftur. „Mér liggur ekkert á”, sagði
hann. „Vektu mig um hádegisbilið”.
Hann lét aftur augun.
Jael var sem steini lostinn. Það var kalt, og hún vafði um sig
ábreiðunni. Hún horfði á Sísera, sem lá á bakinu við hlið henn-
ar. Hann hraut og munnurinn var hálf opinn. Hún fylltist
bræði. Hvað vissi hann, hvað vissi hann um allt, sem hun
hefði getað gert fyrir hann. Hún hefði getað bjargað honum,
hún hefði getað komið honum til Haróset, hún hefði getað
gefið honum ást sína. Og hann hafði smáð hana, fleygt henni
i'rá sér. Hann var engu betri en Heber. Hún mundi aldrei verða
drottning í Haróset, en hefnd skyldi hún fá. Hún skyldi selja
hann Barak í hendur. Barak? Hann mundi launa henni vel
greiðann. Og hún var fríð. Ef til vill gæti Debóra ekki haldið
Barak frá henni. Og var hann ekki ístöðulítill heimskingi? Já,
hún ætlaði að selja Sisera í hendur Baraks.
Hún leit aftur á hann og fylltist stjórnlausri bræði. Nautna-
víma næturinnar var gleymd, allt var gleymt, nema þetta eina,
að hann hafði forsmáð hana. Hún gæti drepið hann. Mulið
sundur þetta friða höfuð. Því ekki það?
Því...........ekki?
Var hann ekki Sísera, Kaananítinn, harðstjórinn, kúgari Isra-
elsmanna ? Það væri lofsvert verk, unnið af ættjarðarást.
Og hann hafði smáð hana.
Jael stóð upp og gekk lengra inn í tjaldið. Þar tók hún upp
járnflein, sem Heber notaði til að tjóðra við hesta sína. Hún
náði sér líka í hamar. Hún sneri aftur til Sísera. Hann lá enn
á bakinu. Breið bringan bifaðist við andardráttinn, og bros lék
um varir hans.
Hún valdi sér stað milli augnanna. Hún miðaði járnhælnum,
höndin var styrk.
Hún reiddi hamarinn til höggs.
Jael fór í egypzku viðhafnarfötin. Hún kembdi hár sitt vand-
lega og skrapp niður að læknum til að spegla sig. Að því
loknu fór hún aftur heim í tjaldið og fékk sér að eta. Sísera
lá þarna i blóði sínu. Hún larosti. Einhver laun mundi hún
hljóta fyrir þetta, — einhver laun fyrir ættjarðarást sína. Ef
hún næði i Barak í einrúmi, — þá skyldi hún fá laun sin.
Hún var slungin kona.
Hún heyrði til þeirra, áður en þau komu í tjaldbúðirnar.
Hún gekk út í tjalddyrnar. Þau voru að koma niður hlíðina.
Þetta var auðvitað Barak, sem reið fremstur með konu á
Frh. á bls,- 41.
Konungur í
annad sinn
Karl hefur sagt af sér! Lengi
lifi Michael konungur!
Þetta voru upphrópanir Búk-
arestbúa 6. sept. 1940, þær
sömu og fyrir 13 árum. Það
var 1927, þegar Michael var
aðeins fimm ára gamall, sem
Karl konungur lét af völdum af
frjálsum vilja til þess að geta
fylgt konunni, sem hann elsk-
aði.
Hinn ungi Michael sat við
völd þar til andstæðingar
stjórnarinnar kröfðust þess, að
Karl konungur kæmi heim og
settist aftur að völdum. En
Helena ekkjudrottning hefur
síðan ferðast um allan heim og
aldrei haldið kyrru fyrir stund-
inni lengur.
Michael fór strax frá völdum,
er faðir hans kom heim og
gerðist nú prinz í annað sinn.
Nú fór móðir hans með hann til
Englands og var hann settur
þar á skóla meðal jafnaldra
sinna af ýmsum stéttum.
Þegar Michael kom aftur til
Búkarest dró hann enga dul á
hatur sitt til Magda Lupescu
vinkonu föður síns.
En síðastliðið ár bar svo til
— og má þar segja, að margt
er líkt með skyldum — að Mie-
hael varð ástfanginn af óaðals-
borinni stúlku, af mjög ríkum
ættum. I fyrra þegar Michael
varð 18 ára, fékk hann sæti á
þingi Rúmeníu. Hann verður
19 ára 25. október í haust.
Stúlkan, sem Michael er ást-
fanginn af er dóttir hins rúm-
enska Krupps og heitir Lulu
Malaxa. Hann hefur ekki til
þessa haft neitt samvizkubit af
að láta sjá sig með þessari vin-
stúlku, hvar sem er. Þau synda,
leika golf og tennis, fara saman
i kappsiglingar og meira að
segja ríða hlið við hlið um
götur Búkarest.