Stundin - 01.10.1940, Qupperneq 10

Stundin - 01.10.1940, Qupperneq 10
Einmitt núna? Þegar ég hafö'i ætlað mér að eiga sæla stund með sjálfum mér. í einveru minni. — Hvaöa ríkisútvarp þurfti nú endilega aö taka upp aftur þennan dagskrárlið? Og útvarpa þriggja ára göml- um fréttum! — í dag eru rétt þrjú ár, síð- an konan mín fór frá mér. Ástæðurnar vissi enginn nema við tvö ein. Og ef til vill guð sjálfur. Ef hann hefur þá taliö það nokkrar ástæður. — Þegar kona éi bezta aldri hættir að vera eiginkona mannsins síns, og beinir allri hneigð sinni og huga að sjálfri sér, vel- líðan sinni eöa vanlíðan, þá er eigi framar rúm fyrir manninn í huga hennar né hans þörf í hjarta hennar. Eiginkona lokar samtímis faömi sínum og hjarta fyrir eiginmanni sinum. — Og miskunnarlausari mann- eskju getur eigi á guðs- grænni jörð en fyrrverandi eiginkonu, sem hætt er aö unna manni sínum. Því að: samlíf tveggja sálna er sæla eöa náttsvart !böl. Þau tvö saman skipta skugga og sól og skapa sér gleði og kvöl. Og þó var konan mín eina konan, sem ég hef unn- að, og bezta konan, sem ég hef kynnst. — Og þannig vil ég minnast hennar ævi- langt. — Manstu, manstu? — Já, já. — Víst man ég. Allt. — Allt of margt! Og allt of vel! — En ég vil ekki muna! — í kvöld vil ég hafa frið. Og njóta hans. Þess friðar, sem ég hef þráð og leitað ævilangt, en mest þó þessi þrjú endalausu ár, með ó- teljandi daga og eilífar næt- ur. Þess friöar, sem ég hef nú tínt saman víða vegu og safnaö að mér hérna í kof- anum mínum. Hlaðið mér úr honum skjaldborg — eins og Vöggur litli úr leggj um og hnútum — til hlífð- ar gegn öllu illu — og þó helzt gegn sjálfum mér, hugsunum mínum og end- urminningum. En í kvöld hafa þær rofið skjaldborg- ina. Sér grefur gröf.... Heinrich Starmer, sem sendur var gagngert til Tokio ti’. að semja fyrir hönd Þýzkal ands um þríveldasáttmálann fræga. tekur í hönd japanska utanríkismálaráðherranum, Matsuoka, eftir að búið er að undirrita sáttmálann, Eins og kunnugt er orðið, hafði bandalag Japans og möndulveldanna önnur áhrif í Bandaríkjunum en ætlast var til. f stað þess að láta athafnir Japana og Þjóðverja afskiptalausar, tóku Bandaríkjamenn að vígbúast af kappi og juku samtímis her- gagnasölu til Bretlands og Kína.

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.