Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Sími 564 0000 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó SÝND Í SMÁRABÍÓI Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 6 og 8 SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÞÉR Í JÓLASKAP - TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - S.V., MBL FRÁBÆR MYND! HIKLAUST FYNDNASTA MYND ÁRSINS! SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÞÉR Í JÓLASKAP - S.V., MBL 500 kr. Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Zack & Miri make a porno kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Igor m/íslensku tali kl. 3:45 LEYFÐ www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6 ísl. tal Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! - S.V., MBL Sýnd kl. 8 og 10 Sími 553 2075 -bara lúxus ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! LEIKURINN HELDUR ÁFRAM... SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR SEM GEFUR FYRSTU MYNDINNI EKKERT EFTIR MIÐVIKUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR! 500 KR. Á ALLAR MYNDIR Í HÚSINU, ALLAN DAGINN! 500 kr. 500 kr. 500 kr. 500 kr. The day the earth ... kl. 5:40 - 8 - 10:20 DIGITAL B.i. 12 ára The day the earth ... kl. 5:40 - 10:20 LÚXUS Four Christmases kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára FORSÝND UM HELGINA Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „TILEFNIÐ er nú aðallega það að Bang Gang hefur ekki leikið á tónleikum í Reykjavík í tvö ár,“ segir Barði Jóhannsson, Bang Gang-stjóri, um ástæðu þess að hann ætlar að svipta upp tón- leikum á NASA á morgun. „Undanfarið höfum við verið að fylgja síðustu plötu, Ghosts from the Past, eftir með tónleikum um meginland Evrópu og því tilvalið að enda þann rúnt með tónleikum í höfuðborginni.“ Þessir „við“ eru ásamt Barða þeir Nói Steinn Einarsson, Arnar Guðjónsson, Hrafn Thoroddsen og Stéphane Bertrand. „Arnar og Nóa fékk ég lánaða úr hljómsveitinni Leaves,“ segir Barði en Arnar á athyglisverðan feril að baki og lék á unglingsárum með dauðarokkshljómsveitum á borð við Inflammatory, Condem- ned og Sororicide. Mörg járn í eldinum Barði segir viðtökur hafa verið framar vonum, bandið sé afar öfl- ugt enda liðsmenn allir forsvars- menn hljómsveita eða með eigin verkefni í gangi. „Þetta hefur virkað stórkostlega verð ég að segja. Frábært að hafa Arnar með sér t.d., hann er fram- úrskarandi söngvari og slyngur gítarleikari. Þessi hópur tónlistar- manna nær mjög vel saman á svið- inu.“ Að vanda er ýmislegt fram- undan hjá Barða. Hann er t.a.m. að taka upp plötu með hljómsveit- inni Ourlives sem mun sjá um að hita upp á tónleikunum með óraf- mögnuðu setti. „Þá er að koma út myndband við lagið „The World Is Gray“ en það verður næsta smáskífa af plötunni. Svo er ég að semja tónlist við sjón- varpsþættina Réttur. Einnig kem- ur út á næsta ári plata sem ég vann í samstarfi við írskan tónlistar- mann, Craig Walker. Sú vinna hófst með því að við byrjuðum að semja saman fyrir sólóplötur hvor annars en það endaði á því að verða sérstök plata. Þá er ég líka að vinna tónlist fyrir Þjóðleik- húsið.“ Dansað við drauga fortíðar  Hljómsveitin Bang Gang með tónleika á NASA á morgun  Hafa ekki leikið á tónleikum í Reykjavík í heil tvö ár Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Miðaverð er 999 krónur og gestir geta valið sér annaðhvort Somet- hing wrong eða Haxan sem kaup- bæti. Öflugur Barði „Bang Gang“ Jó- hannsson hefur verið að kynna síð- ustu plötu sína, Ghosts from the Past, með tónleikum víðsvegar um Evrópu að undanförnu. BARÐI segir að Ghosts from the Past hafi gengið mjög vel, um 20.000 eintök hafi nú selst. „Alla mínar plötur virðast seljast í nákvæmlega þessum eintakafjölda, einhverra hluta vegna. Þessi plata er því búin að ganga samkvæmt áætlun getum við sagt. Hinar eru svo í stöðugri sölu, um 1000 til 2000 eintök fara af þeim ár- lega.“ Barði hefur verið á samn- ingi sem höfundur hjá E.M.I. Publishing risanum í fimm ár en sagði á dögunum skilið við hann og gekk öðrum slíkum á hönd, Universal. Hann segir að þessar sölutölur á bakvið Bang Gang plöturnar þyki það góðar að forsvaranlegt sé að hann haldi sínu striki. „Þessi stöðuga sala á eldri titlum hefur þá mikið að segja, auk þess sem lög rata stöðugt í auglýsingar, bíó- myndir og slíkt.“ Barði stöðugi BANDARÍSKA rokksveitin Weezer hefur ákveðið að gefa út sex jólalög er voru sérstaklega hljóðrituð fyrir tölvuleik sem hægt er að kaupa á iPhone. Lögin eru „We Wish You a Merry Christmas“, „Silent Night“, „O Holy Night“, „First Noel“, „Hark the Herald Angels Sing“ og „O Come, All Ye Faithful“. Lögin verða gefin út á netinu fyrir jól sem sérstök jólaplata, en henni fylgja tvö aukalög sem tengjast jól- unum ekki á nokkurn hátt. Weezer hefur nýlokið heimsreisu sinni fyrir sjöttu breiðskífu sína sem er samnefnd sveitinni, en hefur verið kölluð Rauða platan. Weezer Í svakalegu jólaskapi í boði iPhone. Rokk og jól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.