Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 19
KRISTÍN Björk Kristjánsdóttir (Kira Kira) verður í jóladagatali Norræna hússins á morgun. Nor- ræna húsið stendur í desember fyr- ir lifandi jóladagatali. Dagatalið fer þannig fram að á hverjum degi kl 12:34 verða ýmsir listamenn með uppákomu í 15-20 mínútur. Dagatalinu er ætlað að veita áhorfendum innblástur, lyfta and- anum augnablik og hlaða rafhlöð- urnar á aðventunni. Komast í burt frá öllu stressi og njóta þess að eiga notalega stund með piparkökum, jólaglöggi og góðum félagsskap. Syngur í norræna jóladagatalinu MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Fjölmargt er hægt að gera sér til skemmtunar og fróðleiks í aðdraganda jóla og mögulegt að næra skilningarvitin með ýmsum hætti. Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 7 dagar til jóla Þingeyjarsveit | Það er mikið að gera í hársnyrtingu þessa dagana enda vill fólk hafa hár sitt vel klippt og greitt um jólin. Hjá hársnyrtistofum er víða upppantað og sumir hafa opið fram á kvöld til þess að enginn fari í jóla- köttinn hvað þetta varðar. Dýrin þurfa líka að líta vel eins og mannfólkið en á flestum sveitabæjum er búið að rýja féð og mjög margir bændur klippa kýrnar til þess að hafa þær hreinar á básunum um jólin. Heimilishundarnir eru engin undantekn- ing frá þessu sem og önnur gæludýr og var sveitahundurinn Spori bara ánægður í jólaklippingu í dýraspítalanum á Húsavík. Bárður Guðmundsson dýralæknir kunni greinilega handtökin en Spori varð mjög fínn að klipp- ingu lokinni og bíður nú eftir jólunum enda vonast hann eftir stóru beini á aðfangadagskvöld. Dýrin þurfa líka jólaklippingu Morgunblaðið/Atli Vigfússon BORGARSKJALASAFN Reykjavíkur hefur opnað jóla- kortavef á slóðinni www.borg- arskjalasafn.is þar sem hægt er að senda rafræn jólakort sér að kostnaðarlausu. Kortin eru krúttleg og gam- aldags, flest frá fyrri hluta 20. aldar og er hægt að senda jóla- kveðju með á yfir 25 tungu- málum auk eigin kveðju. Jólakortin eru úr einstöku póstkortasafni Sveinbjörns Jónssonar sem Krístín S. Árnadóttir afhenti safninu það vorið 2004 og spannar það alla 20. öldina. Gömul íslensk jólakort á netinu Á AÐFANGADAG verður haldin dönsk jólamessa að venju í Dóm- kirkjunni í Reykjavík. Hefst messan kl. 15.00 Slík messa hefur verið hald- in um árabil og er það danska sendi- ráðið á Íslandi sem hefur veg og vanda af helgihaldinu. Ólöf Kolbrún Harðardóttir leiðir sönginn en Mar- teinn H. Friðriksson organisti leikur undir. Mikill fjöldi hefur sótt þessar messur í gegnum tíðina, bæði Danir sem eru búsettir hér á landi, en einn- ig aðrir Norðurlandabúar. Auk þeirra er það orðinn fastur liður hjá mörgum Íslendingum sem tengjast Danmörku á einn eða annan hátt að sækja þessa stund og hefja þannig jólahaldið. Að þessu sinni mun áhöfn danska strandgæsluskipsins Hvid- bjørnen taka þátt í helgihaldinu. All- ir eru að sjálfsögðu velkomnir. Dönsk messa STUTT Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Síðastliðið haust tók til starfa nýr skólastjóri við Tón- skóla Djúpavogs, József Belá Kiss, að nafni, en hann kemur alla leið frá Ungverjalandi. József hefur aðlagast mannlífinu vel á Djúpavogi á þeim skamma tíma sem hann hefur verið við störf og hefur þegar komið fram á nokkrum skemmtunum sem haldn- ar hafa verið í bænum. József starfaði m.a. við óperuhús í heima- landi sínu og hefur nú þegar heill- að heimamenn á Djúpavogi bæði með söng og leikrænum tilburð- um. Fyrstu jólin fjarri heimahögum József mun nú halda sín fyrstu jól fjarri heimalandi sínu og segist hann hlakka mikið til, enda hefur hann nýverið fengið fjölskyldu sína, konu og tvö börn til Djúpa- vogs. Kona Józsefs er einnig menntuð á sviði tónlistar og mun hún m.a. taka að sér hlutastarf við tónlistarkennslu hjá leik- skólabörnum á Djúpavogi, sem á án nokkurs vafa eftir að mælast vel fyrir. József og fjölskylda hafa síðustu daga verið í óða önn við undirbún- ing jólanna og að því tilefni keypti József sér m.a. fallegt grenitré á hinum árlega Jólatrjámarkaði Skógræktarfélags Djúpavogs. En sinn er siður í landi hverju, að sögn József háttar því þannig til í Ungverjalandi að það er Jesús sjálfur sem gefur jólatréð og er því trénu haldið alveg leyndu fyrir börnunum allt fram á aðfangadag. József var því eðli málsins sam- kvæmt einn á ferð í skógræktinni, meðan innfæddir leiddu börnin um svæðið í ákafri leit að hinu eina og sanna jólatré. Í Ungverjalandi er það Jesús sem gefur jólatréð Morgunblaðið/Andrés Skúlason Sinn er siður í landi hverju József Balá Kiss felur jólatréð fyrir börnunum. HRÍFANDI BÓK SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Ljúfsár ... hrífandi ... dramatísk og einlæg. Einar Falur Ingólfsson, Lesb. Mbl. Unaðslegt að lesa þetta ... virkilega góð bók. Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan AÐ DREPA MANN ... HEIMSKAN OG HRÆSNIN GULLMOLI! Mögnuð skáldsaga um glæframenni og glæpi þeirra. „Glæpasaga handa hugsandi fólki.“ Katrín Jakobsdóttir, Mannamál. Frábær bók, alveg frábær bók! Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan ... háðsk ádeila á nútímasamfélagið Jón Þ. Þór, DV ... hinum sem láta stjórnast af ágirnd og græðgi getur [bókin] vonandi kennt að skammast sín. Umfram allt hefur hún þó manngæsku og náungakærleik til vegs. Jón Þ. Þór, DV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.