Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 www.skalholtsutgafan.is FÆST Í KIRKJUHÚSINU OG ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM Sigurbjörn Einarsson biskup er eitt mesta sálmaskáld íslensku þjóðarinnar á síðari tímum. Bókin geymir heildarsafn sálma hans og ljóða. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Málið hefði klofið SA  Samtök atvinnulífsins munu ekki beita sér fyrir ESB-aðild og upptöku evru  Fimm aðildarsamtök eru fylgjandi ESB-aðild en þrenn samtök eru andvíg Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞAÐ var töluverð hætta á því að ef þetta yrði sett á oddinn þá myndu samtökin klofna,“ segir Þór Sigfússon, formaður Sam- taka atvinnulífsins, SA. Nýlega voru kynntar niðurstöður úr könnun á viðhorfum fé- lagsmanna í aðildarsamtökum SA til þess hvort samtökin skyldu beita sér fyrir að- ild Íslands að ESB og upptöku evru. Í gær var til- kynnt að samtökin myndu ekki gera það. „SA verða áfram virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og munu gæta hagsmuna allra félagsmanna á grund- velli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki,“ segir í tilkynningu. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru, en meirihluti í þrennum aðildarsamtökum er því and- vígur. Styrkur að geta endurspeglað ólík viðhorf „Það er mjög eindregin skoðun sumra aðildar- félaga að ekki eigi að fara inn í Evrópusambandið. Með sama hætti eru önnur samtök alveg á öndverð- um meiði. Þetta sést í niðurstöðunum. Ég lít á það sem styrk samtakanna að endurspegla þessi ólíku viðhorf og koma þar með fram sem breiðfylking at- vinnulífsins,“ segir Þór. Á stjórnarfundi í gær var ítrekuð hvatning til vaxtalækkunar, m.a. vegna lækkandi vaxta í öðrum löndum og aukningar í vaxtamun við útlönd. Þór segir fundinn hafa verið góðan, þrátt fyrir ágrein- ing aðildarsamtaka í málefnum ESB. Hann hafi rætt við forstöðumenn margra fyrirtækja undan- farið. Flestir vilji að umræðan um kosti og galla að- ildar haldi áfram. „Þótt meirihluti innan SA sé hlynntur aðildarviðræðum eru líka mjög margir sem vilja fá meira upp á borðið, svo sem um hvað er að semja, hver skilyrðin eru og svo framvegis.“ Þór Sigfússon Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ABZ-A nefnist fyrirtæki sem sótt hefur um lóð hjá Faxa- flóahöfnum undir 120 herbergja hótel við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Fyrirtækið sækir um lóðina fyrir hönd Klaus Ortlieb/MK hotels í New York. Í hugmyndalýsingu kemur fram að hótelið eigi að vera fjögurra stjörnu eða fínna, en ímynd þess og aðdráttarafl eigi að tengjast höfninni. Hönnuðirnir setja m.a. fram hugmyndir um hvalasafn og lifandi sjávardýrasafn. Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóa- hafna og formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, er ánægð- ur með umsóknina. Breyta þarf deiliskipulagi á Mýr- argötureit fyrir hótelið, en það ferli getur tekið um hálft ár. Í dag er stálgrindarhús á reitnum. „Þarna verður sundlaug, veitingastaðir og margt fleira sem laðar fólk að höfninni,“ segir Júlíus. Ánægjulegt sé að einhver vilji veðja á íslenska ferðaþjónustu til framtíðar. Vilja reisa 120 herbergja hótel við Reykjavíkurhöfn Faxaflóahafnir taka vel í um- sókn um lóð við Ægisgarð Nýtt Teikningar sýna hús sem sker sig úr. Umrædd lóð er við hliðina á aðstöðu hvalaskoðunarfyrirtækjanna. „ÞETTA kom eins og þruma úr heiðskíru lofti núna. Við vitum ekki hvar við stöndum,“ segir Finnbogi Jóns- son, fram- kvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs og stjórn- arformaður Frumtaks, um áformað afnám laga um ráðstöfun sölu- andvirðis Landssímans. Alls átti Nýsköpunarsjóður að fá 2,5 millj- arða af andvirðinu. Þar af runnu 1.000 milljónir til sjóðsins árið 2005. 1.500 milljóna viðbót- arframlag átti að koma til 2007- 2009 til að standa undir hlutdeild sjóðsins í stofnun nýrra samlags- sjóða með lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestum í nýsköpunar- og sprota- fyrirtækjum. 100 milljónir af þessu hafa skilað sér. „Við trúum því ekki að ríkisstjórnin ætli að hætta við að standa við þessi framlög til nýsköp- unar í landinu. Hafi einhvern tíma verið þörf á því, þá er það núna. Við finnum fyrir gríðarlegri eftirspurn eftir þátttöku bæði Nýsköp- unarsjóðs og Frumtaks í verk- efnum.“ Peningarnir skipti gríðarlegu máli, enda hangi þeir saman við fjárframlög annarra. Sjóðurinn Frumtak hafi á sínum tíma verið stofnaður af bönkunum og lífeyr- issjóðunum. „Það kemur ekkert framlag þaðan ef ekki kemur fram- lag frá ríkinu á móti.“ Sjóður upp á 4,5 milljarða hafi verið stofnaður og þar af hafi einn þriðji átt að fást af Símapeningunum. | 20 Kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Finnbogi Jónsson ÁTJÁN ára piltur var í gær úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðrir voru úrskurðaðir í farbann. Fimm- menningarnir, sem allir eru ungir Pólverjar, eru grunaðir um inn- flutning á talsverðu magni af e- töflum frá Póllandi. Lagt var hald á þær í síðustu viku. Lögreglu í Pól- landi og Europol hefur verið til- kynnt um málið. Mennirnir hafa ekki komið við sögu lögreglunnar á Íslandi áður, en hafa allir búið hér um nokkurt skeið. una@mbl.is Varðhald út af e-töflusmygli „VIÐ ætlum að fara í skötuhaminn á morgun og þá mun allt ilma hér af skötu dögum saman. Ég ætla að bjóða upp á skötu sem ég hef verkað sjálfur en hún hefur verið látin marinerast eftir kúnstarinnar reglum frá því í september. Hún ætti því að vera orðin vel kæst. Ég hef notið góðs af því hversu mikið er af skötuverkendum hér á Grandanum og þeir hafa sagt mér til um verkunina,“ segir Magnús Ingi Magnússon, veit- ingamaður á Sjávarbarnum við Grandagarð, sem ætlar að vera með sex daga samfellda skötuveislu sem hefst á hádegi á morgun, fimmtudag. „Best er að hafa hvítskötu og hafa hana stóra og mikla. Tindabikkjan er lítil og smá og ekki nærri eins vinsæl, en auðvitað býð ég samt líka upp á hana fyrir þá sem það vilja. Og hnoðmör verð ég að sjálfsögðu með. Svo verð ég auðvitað að vera með eitthvað mildara fyrir nýgræð- ingana, saltfiskurinn er töluvert vinsæll og sama er að segja um plokkfiskinn og köldu sjávarréttina. Ég verð líka með djúpsteikt fisk- roð og annað spennandi, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.“ khk@mbl.is Morgunblaðið/Golli „Ætti að vera orðin vel kæst“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.