Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 29
man eftir kennaraverkfalli, þar sem við frædurnir og vinir okkar héldum til hjá ömmu og spiluðum tölvuleiki og hún grillaði samlokur ofan í okkur. Það voru allir vel- komnir til hennar. Enda var hún líka nokkurs konar amma vina okkar. Hún amma gerði bestu brúntertur í heimi, sem kláruðust alltaf fljótt. Svona var hún, gaf endalaust af sér og hugsaði fyrst og fremst um að öðrum liði vel. Svo ef hún þáði af manni minnsta greiða, eins og far til læknis, þá fannst henni hún þurfa að launa það margfalt. Það er þó ljóst að amma gaf mun meira af sér heldur en nokkru sinni var hægt að end- urgjalda. Það er erfitt að koma orðum að því hve mikilvæg amma hefur verið mér. Hún var svo góð, svo hlý og bjó yfir miklum kærleika. Amma kenndi mér svo margt og ég á henni mikið að þakka. Það er því fyrst og fremst þakklæti sem kem- ur upp í hugann við leiðarlok ömmu. Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að fylgja henni öll þessi ár. Minning hennar lifir sterkt og ég mun gera mitt besta til að bera kærleikann sem hún bjó yfir til minna barna. Blessuð sé minning ömmu. Elvar Daði Eiríksson. Sofðu unga ástin mín, – úti regnið grætur. Svona hefst eitt af ljóðum Jó- hanns Sigurjónssonar. Þessa vögguvísu ásamt sálminum „Ó, Jesú bróðir besti“ söngstu oft fyrir mig á kvöldin, þegar ég bjó hjá þér og afa sem barn. Þú varst svo þol- inmóð og söngst lögin mörgum sinnum allt þar til ég hvarf inn í draumalandið. Ó, hvað það var dásamlegt að sofna út frá söngnum þínum! Og hvað þú bjóst yfir mik- illi þolinmæði og ró, ekki bara við mig, heldur við öll hin barnabörnin þín líka. Ég varð alltaf svo glöð þegar ég vissi, að mamma hafði pantað farseðla til Íslands. Ég taldi alltaf dagana fram að brott- farardegi með því að merkja inn á heimagert dagatal. Spennt kross- aði ég við hvern daginn á fætur öðrum og þegar við loksins lentum í Keflavík varst þú fyrsta mann- eskjan sem ég sá. Þar stóðst þú ut- an við glervegginn og fylgdist með okkur koma niður í komusalinn. Þarna stóðst þú og veifaðir til mín, oft í fylgd einhverra móðursystk- ina minna. Sumrin voru spennandi og inni- haldsrík á Íslandi. Það var alltaf eitthvað sem við fundum okkur til dundurs. Stórfjölskyldan bjó undir einu þaki, á þremur hæðum í Skeiðarvoginum. Þeir sem ekki bjuggu beinlínis þar komu þangað oft. Í þessu húsi varst þú drottn- ingin. Þú leist reyndar aldrei á sjálfa þig sem drottningu; þú bara gekkst um húsið og sinntir þínum heimilisverkum ásamt því að sjá um okkur. Þú passaðir upp á að allt væri í lagi hjá öllum og ef eitt- hvað bjátaði á hjá einhverjum lag- færðir þú það strax. Þitt hús stóð alltaf öllum opið, allir voru vel- komnir. Heima í Ósló vorum við bara tvær, ég og mamma, en í Skeiðarvoginum var þetta allt öðruvísi, þar var svo gott að vakna. Ég gat legið lengi í rúminu eftir að ég vaknaði, og hlustað á hljóðin, raddir fólksins frammi að talast við, fréttalesturinn í útvarpinu, glamur og skrölt í glösum og pott- um. Þessi hljóð kalla fram hjá mér góðar minningar. Einu sinni þegar þið afi höfðuð verið í heimsókn hjá okkur mömmu harðbannaði ég henni að þvo sængurverið af sæng- inni þinni, ég vildi eiga ilminn þinn. Ég gleymi heldur aldrei þegar við Anna Lísa sváfum báðar hjá þér í sumarbústaðnum ykkar afa. Við sváfum allar saman í rúmi en vild- um báðar fá að sofa í fanginu þínu. Það endaði með því að þú lást á bakinu alla nóttina með sinn hand- legginn um hvora stelpuhnátuna til að gera ekki upp á milli okkar. Þetta lagðir þú á þig þrátt fyrir gigtarverkina sem hrjáðu þig til margra ára. Allt til þess síðasta hélstu ynd- islegri kímnigáfunni þinni. Ég á mér ótæmandi minningasjóð um þig, en það sem einkennir allar þessar minningar er hve þú settir alltaf aðra í fyrsta sætið á undan sjálfri þér. Þú hefur verið okkur öllum glæsileg fyrirmynd. Allir voru jafnir fyrir þér, þú varst besti kennari í því hvernig á að elska aðra. Takk fyrir allt amma mín. Ég segi eins og við sögðum alltaf í lok símtala okkar: „Ég kyssi þig gegn- um símtækið og yfir Atlantshaf.“ Ég vitna hér aftur í skáldið Jóhann Sigurjónsson: Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. Það geri ég. Elín Birna. Elsku amma mín, Ég sit hérna við kertaljós og hugsa til þín, allar góðu minningarnar um þig og afa í Skeiðó. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar og alltaf gat ég fundið mér eitthvað að gera þegar ég var í heimsókn. Það voru ekki ófáar stundirnar sem ég sat í fang- inu þínu, ég hélt í höndina þína og þú ruggaðir mér og söngst fyrir mig Guttavísur eða vísur úr Vísna- bókinni. Það var notalegt. Í dag sit ég með syni mína í fanginu og syng fyrir þá úr Vísnabókinni góðu og alltaf hugsa ég til þín þá. Það er skrítið að geta ekki hitt þig aftur amma mín og haldið í höndina þína, talað við þig og hald- ið utan um þig. Það er skrítið að fara ekki með Bjarka Þór og Stein- ar Örn til þín eins og ég gerði svo oft. Bjarka Þór fannst svo gaman að fara í heimsókn til þín og hann talar oft um þig núna, en hann veit að núna átt þú ekki heima í húsinu þínu í Sóltúni, heldur ertu hjá Jesú og hann er alveg viss um að núna sértu með vængi og getir flogið. Ég veit að núna ertu á góðum stað og þér líður vel. Elsku amma mín, ég kveð þig með söknuði í hjarta og þakka þér fyrir allar yndislegu stundirnar sem þú gafst mér. Þær eru ómet- anlegar. Ég er rík fyrir að hafa átt þig að og ég er rík af minningum um þig. Guð geymi þig amma mín og hvíl í friði. Mér þykir vænt um þig. Hinsta kveðja, Fríða Björk og fjölskylda. Núna er hún Ella mín farin til englanna sem munu taka henni opnum örmum. Ella mín var allra yndislegasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún var stórkostleg í alla staði. Mjög ljúf. Greiðvikin og tamdi sér það veganesti að segja já við öllu. Ég kynntist henni þegar ég var 19 ára og vegna erfiðra að- stæðna hjá fjölskyldu minni bauð hún mér að flytja inn til þeirra góðu hjóna í Skeiðarvogi. Þar var tekið vel á móti mér, allt hreint, straujað línið og frábærir tengda- foreldrar sem ég eignaðist. Ég upplifði að ég væri komin á stórt og fjölmennt heimili þar sem margir ættliðir voru. Afi Árni var þar í herbergi og sinntu hjónin og börnin honum af mikilli umhyggju og virðingu. Margir komu í Skeiðó, ættingjar og vinir, og fengu allir þvílíkar veitingar og allt sem þurfti; gistingu, þvott á fatnaði, umhyggju, skilning og þá hjálp sem hver þurfti. Þetta stóra hús sem þau byggðu af dugnaði og þrautseigju hefur haldið þessari fjölskyldu saman. Og hefur það komið mér og mínum börnum vel. Ella var mjög skapgóð og jafnlynd. Tók mótstreymi með æðruleysi og skynsemi. Hún sá um alla hluti, hafði dagatal í eldhúsinu og skrif- aði niður alla tíma sem börn henn- ar þurftu að sinna. Alltaf var hringt í Ellu og hún spurð um allar tímasetningar. Hún var oft slæm til heilsunnar en á seiglunni fór hún. Hún kom færandi hendi í veislur með nýjar pönnukökur og fræg er sunnudagssúkkulaðikakan hennar. Eftir að Jónas eiginmaður henn- ar lést 1996 breyttist líf Ellu sem endaði með að hún fékk vistun í Sóltúni og naut þar bestu umönn- unar á því fyrirmyndar hjúkrunar- heimili. Ella mín hafði þá gæfu að halda reisn og minni hennar brást aldrei að fullu og þekkti hún niðja sína fram á hinstu stund. Hún kvaddi þetta líf með friði og í faðmi ættingja er söng fyrir hana Undir Dalanna sól, sem var hennar uppá- haldssöngur. Guð varðveiti alla hennar afkom- endur, heimkoma þín verður þér auðveld og ég kveð þig með trega og virðingu. Far í friði Ella mín. Kveðja, Erla Friðriksdóttir. Með trega kveð ég elsku frænku mína. Elín Árnadóttir var einstak- lega vel gerð, heilsteypt og trygg- lynd. Með þessu fallega ljóði þakka ég henni stuðninginn, gleðina og umhyggjuna sem hún veitti mér og mínum í gegnum árin. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu, vinur, mér sem vorið bjarta, það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson.) Jóhanna Þorbjarnardóttir. Það er margs að minnast þegar hún Ella er kvödd, ljúfar minn- ingar úr Skeiðarvoginum, þar sem hún tók vel á móti öllum, enda var þar oftast fullt hús gesta. Tvær dætur hennar, Fríða og Dísa, eru á mínum aldri og þar sem ég bjó í Álfheimunum þegar ég var lítil var stutt að fara yfir holtið í Skeið- arvoginn og átti ég þar margar góðar stundir. Ella var hlý kona og ég man ekki eftir henni öðruvísi en í góðu skapi. Það var líf og fjör á heimili Ellu, enda börnin mörg, en þrátt fyrir það var alltaf pláss fyrir einn í viðbót við matarborðið. Minnisstæð eru fjölskylduboðin sem voru haldin annan í jólum, þar sem borðið svignaði undan veiting- unum og Ella á sífelldum þeytingi til að fylgjast með að allir fengju nóg og að ekkert vantaði. Ella var minnug kona, hún mundi til dæmis eftir öllum afmælisdögum í stór- fjölskyldunni og hringdi hún í móð- ur mína á öllum afmælisdögum okkar systkinanna. Síðast sá ég Ellu á níræðisafmæli hennar, þar tók hún eins og alltaf vel á móti vinum og ættingjum sem sóttu hana heim. Ég er þakklát fyrir að hafa feng- ið að kynnast Ellu og sendi nán- ustu ættingjum hennar mínar inni- legustu samúðaróskir við fráfall hennar. Hrefna K. Óskarsdóttir Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Þökkum af alhug öllu því góða fólki sem sýnt hefur okkur samúð, hlýhug og vinsemd við fráfall og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmmu, JÓNU ÓLAFSDÓTTUR, Heiðarvegi 31, Vestmannaeyjum. Már Jónsson, Dröfn Ólöf Másdóttir, Gunnlaugur Grettisson, Markús Orri Másson og barnabörn. ✝ Samverustund vegna fráfalls ástkærrar konu min- nar, móður okkar, stjúpu, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR, Þórhólsgötu 1, Neskaupstað, sem lést föstudaginn 5. desember á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað, verður í kirkju Óháða safnaðarins fimmtudaginn 18. desember. kl.15.00. Gísli Sævar Hafliðason, Jón Rafn Högnason, Hansína B. Einarsdóttr, Jóna Rebekka Högnadóttir, Þorgeir A. Þorgeirsson, Pétur Hafsteinn Högnason, Viviane Högnason, Katrín Sól Högnadóttir, Jón Hjörtur Jónsson, Kristján Tryggvi Högnason, Fjóla Karlsdóttir Waldorff, Margrét Högnadóttir, Ríkarð Ó. Snædal, Anna Sigurborg Högnadóttir, Michael Dahl Clausen, Sigríður Högna Högnadóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Elín Guðrún Jóhannsdóttir, Rósa Kristín Gísladóttir, Georg J. Júlíusson, Ólöf Anna Gísladóttir, Grétar Hallur Þórisson, Hafdís Hrund Gísladóttir, Pétur Húni Björnsson ömmubörn og langömmubörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNHEIÐAR BJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Krummahólum 6, Reykjavík, Sérstakar þakkir eru til starfsfólks á Landspítala Háskólasjúkrahúss B7 og Heimahjúkrunar fyrir alúð og umhyggju henni til handa. Steinar Ásgrímsson, Patricia Otman, Egill Ásgrímsson, Svava Svavarsdóttir, Jón Þór Ásgrímsson, Arnleif Alfreðsdóttir, Guðjóna Ásgrímsdóttir, Jón Magni Sigurðsson, Ólafur Ásgrímsson, Hanna Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær systir mín og frænka okkar, VIGFÚSÍNA (SÍNA) BJARNADÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Vífilsgötu 20, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 10. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. desember kl. 11.00. Fyrir hönd annarra ættingja, Ingibjörg Bjarnadóttir, Elsa Margrét Níelsdóttir, Guðmundur Elías Níelsson. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN CLAUSEN hæstaréttarlögmaður, Blikanesi 3, Garðabæ, sem andaðist að kvöldi fimmtudagsins 11. desem- ber, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Guðrún Erlendsdóttir, Ólafur Arnarson, Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, Guðrún Sesselja Arnardóttir, Jóhann Sigurðarson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Þorsteinn Guðbjörnsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.