Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 NICOTINELL ...með bragði! Munnsogstöflur Endurbirt að beiðni Lyfjastofnunar. Lágmarksaldur 18 ára en ekki 15 ára eins og áður kom fram. ®Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni þegar reykingum er hætt. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið var reykt. Munnsogstöflur: skammtar mega þó aldrei vera stærri en 30 stykki á dag af 1 mg og mest 15 stykki á dag af 2 mg. Lyfjatyggigúmmí: skammtar mega þó aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Leita skal til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 18 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Í DAG, miðviku- dag, verður hald- inn opinn borg- arafundur í Borgartúni 3, kl. 20-22. Fundarefnið verður stóru fyr- irtækin, FL Gro- up, Stoðir og spilling í atvinnu- lífinu. Frummælendur verða þeir Guð- mundur Axel Axelsson við- skiptafræðiingur og Óli Björn Kára- son blaðamaður og rithöfundur. Frummælendur fá 5 mínútur hvor til að tjá sig. Eftir það geta gestir tjáð sig eða spurt einhvers og fær hver spyrjandi 2 mínútur. Fundur um spill- ingu í atvinnulífinu Óli Björn Kárason LOKAFRÁGANGUR við nýbygg- ingu félagshúss Íþróttafélagsins Leiknis stendur nú yfir og er áætl- að að húsið verði tekið í notkun í febrúar nk. Húsið þykir í senn vandað og glæsilegt og er heildarkostnaður við það áætlaður um 250 milljónir króna. Nýtt íþróttahús opnað í febrúar Nýtt hús Kjartan Magnússon, for- maður ÍTR, og Arnar Einarsson, formaður Leiknis, í nýja húsinu. SÍÐASTI dagur til að sækja um jólaaðstoð Fjölskylduhjálpar Ís- lands er fimmtudagurinn 18. des- ember. Tekið er á móti umsóknum frá kl. 13.00 til 16.00. Fjöl- skylduhjálpin er til húsa að Eski- hlíð 2 - 4 í Reykjavík. Fjölskylduhjálpin UM næstu ára- mót mun Torfi H. Tulinius taka við starfi prófessors í íslenskum mið- aldafræðum við Háskóla Íslands og verður hann jafnframt um- sjónarkennari M.A.-náms í Medieval Icelandic Studies, sem er þverfaglegt framhaldsnám í ís- lenskum fræðum ætlað erlendum nemendum. Þetta er nýtt nám sem markar tímamót í kennslu íslenskra miðaldafræða. Torfi hefur gegnt starfi fasts kennara í frönsku frá árinu 1988, en frá árinu 2002 hefur hann verið prófessor í frönsku og miðaldabók- menntum. Prófessor í íslensk- um miðaldafræðum Torfi H. Tulinius FRAMKVÆMDASTJÓRN Lands- sambands eldri borgara lýsir yfir þungum áhyggjum vegna stöðu samfélagsins um þessar mundir. Framkvæmdastjórnin skorar á íslensk stjórnvöld að tryggja að hlutur ellilífeyrisþega verði í engu skertur frá því sem nú er og að staðið verði við öll þau loforð um kjarabætur sem taka eiga gildi þann 1. janúar 2009. Loforð standi REYNIR Traustason, ritstjóri DV, hyggst sitja áfram á stóli ritstjóra enda hafi hann hlotið stuðning til þess hjá útgefanda blaðsins, Birt- íngi. Í yfirlýsingu sem Reynir sendi frá sér í gær- kvöldi segir hann að upptaka sem birt var í Kastljósi hafi verið gerð án sinnar vitundar. „Tveggja manna trúnaðarsamtal er varhuga- verð heimild. Í slíku samtali tala menn gjarnan opinskátt og segja jafnvel meira en þeir meina eða vilja sagt hafa. Í þessu einkasamtali við starfsmanninn viðhafði ég óvarleg ummæli um nafngreinda einstaklinga í hita augnabliksins. Ég harma framsetningu þeirra og bið viðkom- andi afsökunar. Ég fékk ekki við neitt ráðið. Þessi ummæli eru því ekki aðeins meiðandi fyrir viðkomandi heldur einn- ig fyrir mig persónulega. Hver og einn á rétt á leiðrétt- ingu orða sinna. Kastljós virti slík sjónarmið að vettugi. Hér var því um að ræða alvarlegt brot gegn persónufriðhelgi minni. Dagblaðið DV hefur um margra ára skeið átt sér ýmsa óvildarmenn, sem margir hverjir hafa opinberlega talað gegn blaðinu og viljað það burt af fjölmiðlamarkaði. Blaðið hefur fram að þessu staðið allt slíkt af sér og hvergi dregið undan í umfjöllun sinni ef mál er talið upplýsandi,“ segir í yfirlýsingu Reynis Traustasonar. Starfsmenn DV funduðu um málið í gær, með og án ritstjóranna tveggja, Reynis Traustason- ar og Jóns Trausta Reynissonar. Ákveðið var að láta daginn líða og sjá hver þróunin yrði. Undir kvöld sagði Valur Grettisson blaðamað- ur upp störfum á DV. Valur segir ástæðu upp- sagnarinnar þá að upp sé komið umhverfi sem hann hvorki geti né vilji starfa við. Yfirlýsingu Reynis Traustasonar má lesa í heild á www.mbl.is. Ritstjóri DV hyggst ekki hætta Harmar framsetningu ummæla sem hann viðhafði og biður viðkomandi afsökunar Reynir Traustason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.