Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Morgunblaðið/Golli Yfirmaður Annar mannanna var forstöðumaður hjá FL Group, sem í dag heitir Stoðir. Hinn maðurinn starfaði hjá Landsbanka fram að bankahruni. safns fjárfestingarfélagsins við lok viðkomandi ársfjórðungs“. Gengi bréfanna hækkaði ört þessa síðustu fimm daga fyrir lok fjórð- ungsins en eftir að honum lauk hætti FL Group samstundis kaupum í fé- lögunum og fór þá gengi þeirra að lækka. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru umrædd félög Finna- ir, Royla Unibrew, Bang & Olufsen og Aktiv Kapital. Annar hinna grunuðu er fyrrverandi for- stöðumaður eigin viðskipta hjá FL Group. Hann lét af störfum hjá fé- laginu vorið 2007. Hinn maðurinn starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum en hætti þar þegar bankinn féll í byrjun október. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is MARKAÐSMISNOTKUNIN sem fyrrverandi starfsmaður FL Group og fyrrverandi verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum eru grunaðir um að hafa stundað átti sér stað á síð- ustu fimm viðskiptadögum annars ársfjórðungs árið 2006. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlit- inu, sem hefur rannsakað málið í á annað ár, eru mennirnir tveir grun- aður um að hafa með ásetningi hækkað gengi hluta í fjórum nor- rænum félögum sem FL Group átti hluti í með tilboðum og viðskiptum „í því skyni að fegra stöðu eigna- Staða eignasafns FL Group fegruð ÞETTA HELST ... ● VELTA á skuldabréfamarkaði nam 8,6 milljörðum króna í gær, en skulda- bréfamarkaðurinn er nú langstærsti verðbréfamarkaður landsins. Til sam- anburðar má nefna að velta með hluta- bréf nam einungis um 286 milljónum króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk- aði um 1,07% í gær og var lokagildi hennar 371,23 stig. Gengi bréfa Exista lækkaði um 42,86% og stendur í fjór- um aurum. Þá lækkaði gengi bréfa Straums-Burðaráss um 3,89% og Eim- skipafélagsins um 0,76%. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 0,52% og Bakka- varar um 0,31%. bjarni@mbl.is Mest umsvif með skuldabréf ● HELSTU hluta- bréfavísitölur hækk- uðu umtalsvert á Wall Street í gær eftir að bankastjórn Seðla- banka Bandaríkjanna tilkynnti að stýrivextir yrðu lækkaðir í 0- 0,25%. Hafa stýrivextir aldrei verið jafnlágir í Bandaríkjunum. Dow Jones vísitalan hækkaði um 362,32 stig eða 4,23% og er 8.926,85 stig. Nasdaq hækkaði um 5,41% og S&P 500 um 5,15%. Hlutabréf deCode, móðurfélags Ís- lenskrar erfðagreiningar, hækkuðu um rúm 9% og er lokaverð þeirra 0,23 dalir á hlut. guna@mbl.is Stýrivextir aldrei lægri í Bandaríkjunum ● Í GÆR voru undirritaðir samningar um viðskiptavakt með íbúðabréf. Skyldur viðskiptavaka felast í því að leggja fram kaup- og sölutilboð á eft- irmarkaði að fjárhæð að minnsta kosti 50 milljónir króna og endurnýja þau innan tíu mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Þá ber viðskiptavökum að leggja fram tilboð að lágmarki 300 milljónir króna að nafnvirði í íbúða- bréfaútboðum Íbúðalánasjóðs. Samningurinn mun taka gildi í dag, miðvikudaginn 17. desember bjarni@mbl.is Viðskiptavakt með íbúðabréf ● SAMKVÆMT nýjum reglum Seðla- bankans um gjaldeyrismál fjölgar þeim aðilum sem fá undanþágur frá þeim höftum sem sett hafa verið á gjaldeyr- isviðskipti. Helst ber þar að nefna ríki og sveitarfélög, sem og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtæki, sem eru aðilar að fjárfesting- arsamningum við ríkið og fyrirtæki sem fengið hafa leyfi til olíuleitar eru sömu- leiðis undanþegin reglunum. Þá er skilanefndum bankanna veitt und- anþága frá áðurnefndum reglum. bjarni@mbl.is Undanþágur frá gjald- eyrishöftum „ÚTLIT er fyrir að einhverjir lífeyr- issjóðir verði með meira en 10% mun á milli eignarliða og lífeyrisskuld- bindinga. Þeir sjóðir munu þurfa að skerða lífeyrisréttindi sem þessu nemur að óbreyttum lögum. Þetta mun koma niður á þeim sem eru þeg- ar komnir á lífeyrisaldur,“ segir í at- hugasemdum frumvarps fjármála- ráðherra um lífeyrissjóði. Verði frumvarpið að lögum er líf- eyrissjóðum heimilt að lækka ekki lífeyrisgreiðslur þrátt fyrir að meira en 10% munur sé á milli eigna og skuldbindinga sjóðsins þegar árið 2008 verður gert upp. Áður var miðað við að hlutfallið mætti ekki fara yfir 10% án skerð- ingar á lífeyrisréttindum en má sam- kvæmt frumvarpinu vera allt að 15%. Gildir heimildin í eitt ár. „Hér er verið að víkka þetta út þannig að í rauninni er verið að velta ákveðnum vanda yfir á framtíðar- skuldbindingar,“ sagði Pétur Blön- dal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í umræðum um frumvarpið. Það væri mjög varasamt. bjorgvin@mbl.is Aukið bil milli eigna og skuldbindinga FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is MP Banki, einn lánardrottna Hansa ehf., telur gjaldþrot félagsins vera óumflýjanlegt og vill að það verði tek- ið til gjaldþrotaskipta. Hansa ehf., sem er eigandi enska knattspyrnu- liðsins West Ham, er í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Félagið óskaði nýverið eftir áfram- haldandi greiðslustöðvun fram í mars á næsta ári en MP banki setti sig upp á móti þeirri ósk. Taldi bankinn ráða- gerðir Hansa-manna óraunhæfar, ólíklegar og samrýmast ekki tilgangi greiðslustöðvunar. Ef dráttur yrði á gjaldþrotaskiptum myndi það ein- ungis auka hættuna á að kröfuhöfum yrði mismunað. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði á föstudag að Hansa gæti verið áfram í greiðslu- stöðvun til föstudagsins 6. mars 2009. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins verður úrskurðurinn kærður til Hæstaréttar. Skulda félögum í Lúxemborg Á fundi sem var haldinn með kröfu- höfum félagsins 4. desember síðast- liðinn var farið yfir helstu eignir og skuldir félagsins líkt og þær voru um miðjan nóvember. Samkvæmt þeim efnahagsreikningi var eigið fé Hansa neikvætt um 13,3 milljarða króna. Eignir voru bókfærðar á 24,7 millj- arða króna en skuldir þess voru á sama tíma sagðar 38 milljarðar króna. Alls eru um 16,9 milljarðar króna af skuldunum með breytirétti í hlutabréf. Eigendur þeirra skulda eru Björgólfur Guðmundsson og tvö félög í hans eigu sem skráð eru í Lúx- emborg, Bell Global Sarl og Monte Cristo Ltd. Í greinargerð sem Hansa lagði fram fyrir dómi segir að félagið vilji áframhaldandi greiðslustöðvum til að geta selt West Ham og það ferli sé þegar hafið. Þegar hafi verið haft samband við mögulega kaupendur. Ekki er þó tiltekið um hverja sé að ræða. Þar kemur einnig fram að Standard Bank og Novator Partners LLP annist söluna. Novator er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og Standard Bank er einn stærsti kröfu- hafinn í bú Samson eignarhalds- félags, sem Björgólfsfeðgar eiga einnig en er í gjaldþrotaskiptum. Alls nema skuldir Samson við Standard um átján milljörðum króna. Segjast meira virði en City Í dómsorði kemur fram að for- svarsmenn Hansa telji að þeir geti fengið allt að 250 milljónir punda, um 44 milljarða króna, fyrir félagið. Eng- in gögn voru lögð fram til að styðja það verðmat en Hansa-menn bentu á að Manchester City, sem einnig er breskt knattspyrnufélag, hefði selst á 230 milljónir punda, um 40 milljarða króna, í lok ágúst síðastliðins og að þeirra mati sé West Ham enn verð- mætara. Manchester City var keypt af fjárfestingarfélaginu Abu Dhabi United Group sem tengist konungs- fjölskyldunni í Abu Dhabi. Hún er metin á um 500 milljarða punda, eða 87 þúsund milljarða íslenskra króna. Til samanburðar eru heildarskuldir íslensku bankanna erlendis um tíu þúsund milljarðar króna. Þegar Björgólfur Guðmundsson keypti West Ham fyrir tveimur árum voru greiddar fyrir um 85 milljónir punda auk þess sem skuldir upp á 22 millj- ónir punda voru yfirteknar. Vilja frest til að selja West Ham Reuters Kaup Björgólfur Gðmundsson keypti West Ham ásamt Eggerti Magnússyni.  Gjaldþrot Hansa sagt óumflýjanlegt  Fengu greiðslustöðvun áfram Í HNOTSKURN » Hansa keypti West Hamhaustið 2006 á 85 milljónir punda og yfirtók auk þess 22 milljónir punda skuldir. » Eigendurnir telja sig núgeta fengið 250 milljónir punda fyrir félagið og benda á kaupin á Manchester City því til stuðnings. Þeir sem keyptu það félag eru meðal ríkustu manna í heimi. #$ %              !!" &'( ) * ++)' 1& 8>& ( 7* ->& /0 >& &/ -&% 5  :8* ->& 4 -  (>& ?>& '#@AB '   C(  ) +)&$>& 2 >& !"" , &  # 1  81D9 1  8#   #.+ /( +E 9( BF>>&   -. $  /"0 G 91  G  (*>& - >& 1 2% +3                          !" #"     !$      "     H -    I$ 3  J 4 -'  ;! "   ;  C C  " C ;!" ;" C C C ;  C ;"  C C K" K  K ;K  ;K  C !K C K!  K! ;!K C C ; K C ;K C C K  K  K ;K ;K C !K! C K !K  ;!K K C ; K ;K ; K ;K K +7  -  ; ;  C C ! C  ; C C C  C ; C C =      ; ;  " ; ;  " ; ;  " ; ;  " ";  " C ; ;  " ; " ; ;  " ; ;  " ;!;; " ; ;  " ;;;; " ; ;  " ;; " ; ;  " ";; " ;; " 1I 1I 1I A?L4 A?L     < < A?L5 6(L      < < = DM  B      < < +I'/ =1L      < < A?L7; A?L-    < < ● „HVAÐ fyrirtækin varðar er það lík- lega versti kosturinn að gera ekki neitt og láta eftirspurn hrynja og atvinnu- leysi vaxa án viðspyrnu. Hækkun skatta og notkun ríkisútgjalda til aukinna framkvæmda skapar fyrirtækjunum verkefni, fólki tekjur og eykur eft- irspurn eftir vörum og þjónustu. Það er þekkt úr hagfræðikenningum og reynd að aukin ríkisútgjöld fjármögnuð með skattheimtu eru virkari í þessu efni en skattalækkun,“ segir Indriði H. Þorláks- son hagfræðingur og fyrrverandi rík- isskattstjóri á heimasíðu sinni. Honum finnst ríkisstjórnin bregðast seint og illa við. bjorgvin@mbl.is Útgjöld fjármögnuð með skattheimtu virkari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.