Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Maddömurnar á Selfossi Hjá Maddömunum finnur þú mandó- lín, postulín, næturgögn og húsgögn, eins og til dæmis þennan sófa sem er frá 1880! Langir laugardagar í des. Maddomurnar.com Dýrahald Áhugi á Beagle hvolpum? Vonir standa til að búa til Beagle hvolpa sem tilbúnir verða til afhen- dingar í sumar. Foreldrarnir eru báðir hlaðnir verðlaunum frá HRFÍ og því von á afbragðshvolpum sem verða verðlagðir í samræmi. Í ljósi efna- hagsástandsins í þjóðfélaginu er þó rétt að ganga úr skugga um að eftir- spurn sé eftir hvolpunum áður en farið verður á fyrsta stefnumót. Þeir sem hafa áhuga á hvolpi eða vilja nánari upplýsingar vinsamlega sendi póst á athi1@hi.is. Ekki er um bindandi vilja yfirlýsingu að ræða en þeir sem hafa samband nú munu þó hafa forgang þegar af goti verður. Sjá má myndir á www.mys- pace.com/beaglefelagid. Gisting Heimili í borginni. www.eyjasolibudir.is Huggulegar 3ja herb. íbúðir. Allt til alls, sængur-ver, handkl., frí netteng- ing. Fjölskylduvænt. Laust yfir jólin. eyjasol@internet.is - s. 8986033 - GLEÐILEG JÓL- Nudd Heilnudd Vöðvanudd Slökunarnudd Kemur blóðflæðinu af stað og er slakandi fyrir líkama og sál S. 551 2042 / 694 1275 Ath. Ekki er um að ræða erótískt nudd Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. 136 fm húsnæði til leigu á Fosshálsi 27, 110 Reykjavík í sama húsi og Bílasalan Höfðabílar eru. Plássið er þar sem Bónstöðin var starfrækt. Upplýsingar á Höfða- bílum eða í síma 577 4747 eða á netfanginu hogni@hofdabilar.is eða Sigurður í síma 892 3482. Bílskúr Bílskúr/geymsla til leigu - Vesturbæ Mánaðarleiga 40 þúsund. Sörlaskjóli. Innifalið: Hiti, rafmagn, heitt og kalt vatn. Frístandandi skúr 25 fm. Sími 848-1718. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Nýkominn sending af lömpum með stækkunargleri í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587-0600. www.tomstundahusid.is Málningasprautur og fylgihlutir í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587-0600. www.tomstundahusid.is Tómstundir Vantar þig starfskraft? atvinna Vinur minn Rúnar Júlíusson er sofnaður og hvílist um sinn þar til hann verður kallaður aftur til góðra verka. Það er einhvern veginn svona sem guð og Jesú tala um það þegar góðir menn kveðja þennan heim í bók bókanna, Biblíunni. Það er huggun harmi gegn þegar góðir drengir kveðja. Ég kynntist Rúnari seint á níunda ára- tug síðustu aldar, við spiluðum og sungum saman í Rokksveit hans um nokkurra ára skeið, stundum bara tveir og stundum fleiri en að lokum með syni hans Júlíusi. Við höfðum plön um að gefa út efni með okkur en samvera okkar varð styttri vegna óvæntra aðstæðna minna og nú verð ég að bíða enn um stund. Á mörgum ferðum okkar vítt og breitt um landið gafst færi á að ræða um hugðarefni okkar beggja; trú, tónlist og heim- speki og viskuna sem í öllu þessu býr. Rúnar var óvenjulegur maður um margt því hann átti svo miklu miklu fleiri kosti en galla. Í honum bjó líka Guðmundur Rúnar Júlíusson ✝ Guðmundur Rún-ar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945. Hann lést af völdum hjartaáfalls á bráðamóttöku Landspítalans föstu- daginn 5. desember síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Keflavíkurkirkju 12. desember. þessi frumkraftur sem hann virkjaði drjúgt í þágu rokksins en einn- ig fyrir aðra og margir eru þeir sem notið hafa góðs af því. Sjálfur vil ég þakka fyrir þá sam- veru sem ég fékk og þau gildi sem þú stóðst fyrir; ef fleiri væru eins og þú væri heim- urinn miklu betri. Ég fékk svo að gera þér greiða síðasta vor þeg- ar ég gerði upp gamla bassann þinn áður en þú fórst til Liv- erpool og gefa þér í síðbúna sextugs- afmælisgjöf. Þú varst svo barnslega glaður að það mun ylja mér þar til við sjáumst aftur einhvern tíma. Ég minnist Rúnars sem tónlistarmanns og félaga en í mínum huga var Rúnar fyrst og fremst öðlingurinn og fjöl- skyldumaðurinn Rúnar Júlíusson. Ég vil færa Maríu, Baldri Þór, Júl- íusi og börnum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og megi algóð- ur guð styrkja ykkur á sorgarstundu. Sigurður Dagbjartsson. … og eitt sinn í góðærinu, þegar við Rúnar Júlíusson ræddum ástand mála, þá sagði Rúnar: Sko, sjáðu, þegar ég var lítill voru þrjú hundruð bátar við höfnina en þrír að vinna í bankanum. Nú eru þrír bátar við höfnina en þrjú hundruð að vinna í bankanum. Svona lýsti Rúnar Júl- íusson hlutunum. Hann þurfti ekki að hafa skoðun á öllu. Hann var sín eigin skoðun. Nú horfi ég á nafn- spjaldið hans. Það liggur á vinnu- borðinu. Ef ég nú tek upp símann, slæ númerið inn og hringi, þá finnst mér að Rúnar hljóti að svara. Þetta er svo óraunverulegt, nær- vera Rúnars var svo sjálfsögð og eðlileg. Það skynjar maður svo sterkt þessa daga sem liðnir eru frá því hann dó og finnur á öllum í kring- um sig. Stundum kom hann til mín og við tókum gott spjall eða við hittumst úti í hringiðunni. Það var til dæmis mjög gaman að semja texta fyrir Hljóma þegar þeir komu saman aft- ur og leika sér með strákunum. Per- sónuleikar þessara tónlistarmanna settu svip á æsku mína. Ég gæti auðvitað skrifað um feril Rúnars. Það er ekki móðgun við neinn að segja að Rúnar hafi alla tíð skorið sig úr. Það var ótrúlega gam- an að ræða við Rúnar um tónlist, um áhrif hennar, hvaðan þau komu og hvert þau fóru. Rúnar gat tengt allt í heiminum við tónlist. Ég hugsa að hann hafi heyrt tónlist í einstakling- unum sem hann talaði við. Raunar langaði okkur Rúnar til að setja nið- ur á blað einhvers konar rokkheim- speki. Hann hafði lesið ritgerðabók mína Launsynir orðanna og vildi miðla lífssýn rokksins á svipaðan hátt. Þetta var eitt af þeim verkefn- um sem biðu. Ég náði þó að semja Tóna úr eldhúsi minninganna, kápu- texta sem fylgdi plötunni Nostalgía og Rúnar samdi lag við ljóðið Segðu mér frá ástinni. En við vorum rétt að byrja. Þannig litum við á málin. Rúnar hafði auðvitað fylgt minni kynslóð frá fyrstu tíð, ef svo má segja, en það var í rauninni bróðir minn heitinn, Pálmi Örn, sem leiddi okkur saman. Kynni þeirra tengdu okkur sterkum böndum. Í fyrstu heimsókn sinni á vinnustofu mína færði Rúnar mér verk eftir Pálma sem hann taldi að ætti að vera í minni vörslu eftir að bókin sem er tileinkuð Pálma Erni tók flugið. Samskipti þeirra lýsa Rúnari vel. Þau ramma hann inn fyrir mér. Ein- hvern tíma þegar Pálmi var hátt uppi ákvað hann að fara til Keflavíkur. Og hvað ætlaði hann að gera til Kefla- víkur? Jú, heimsækja Rúnar Júl- íusson, sagði hann og var rokinn. Næsta dag var Pálmi ekki kominn, og okkur heima var nokkuð órótt. En þá hafði Pálmi farið til Rúnars og Rúnar boðið honum í hljóðverið, síð- an gistingu og daginn eftir fóru þeir í gufubað. Þeim varð vel til vina. Þetta var afar óvenjulegt, að manni í stöðu Pálma Arnar væri tek- ið svona opnum örmum. Oftar var það á hinn veginn. Rúnar hlaut sér- stakan virðingarsess í huga fjöl- skyldunnar og einhvern tíma þegar ég færði þakklæti mitt í orð við Rún- ar fann ég hvað þessi framkoma hans var honum fullkomlega eðlileg. Það þurfti ekkert sérstaklega að þakka fyrir hana. Þannig birtist Rúnar mér, hógvær, alþýðlegur, fullur af kærleika, öllu því besta sem sið- menningin hefur gefið okkur. Hann hitti eitt sinn Jimi Hendrix og lýsti honum sem svona blátt áfram manni. Nei, það rigndi ekki upp í nefið á Jimi, sagði Rúnar. Þessi orð eiga vel við Rúnar sjálfan. Ég sendi mínar samúðarkveðjur til Maríu og allrar fjölskyldunnar. Einar Már Guðmundsson. Meira: www.mbl.is/minningar Í dag kveðjum við einn af okkar bestu starfsmönnum og fé- lögum, Viktor Þor- kelsson. Erfitt er að finna eins ósérhlífinn og duglegan einstak- ling og Viktor. Hann vann þannig starf að hann hitti okkur öll mjög oft og leysti úr flestöllu sem við báðum hann um fljótt og vel og alltaf með gleði og ánægju. Ef eitthvað þurfti að laga eða kaupa hringdum við í Viktor og alltaf var sama svarið: Ég redda Viktor Þór Þorkelsson ✝ Viktor Þór Þor-kelsson fæddist á Siglufirði 18. maí 1946. Hann lést 5. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Laugarnes- kirkju 16. desember. því, elskan, ég redda því, félagi, og vorum við rétt búin að leggja sím- ann á þegar hann var mættur á staðinn til að redda málunum, alltaf brosandi kátur og hress. Alltaf stutt í húmorinn. Það var okk- ur öllum því mikið áfall að frétta að hann væri ekki á meðal okkar lengur og eigum við eft- ir að sakna hans mikið og uppgötva að við get- um ekki lengur notið aðstoðar hans og félagsskapar. Vikt- or var ótrúlega stór partur af okkar starfsemi og vann alltaf þannig að hagur fyrirtækisins væri númer eitt. Betri og þægilegri samstarfsmann er vart hægt að hugsa sér. Við viljum öll þakka Viktori einstaka vináttu og samstarf í gegnum árin og megi Guð geyma hann. Fjölskyldu hans vottum við innilega samúð og biðjum góðan Guð að styðja þau í sorginni. Kveðja. Fyrir hönd neytendasviðs N1, Ingunn Elín Sveinsdóttir. Það var góður hópur manna sem vann hjá Olíufélaginu þegar við tveir hófum þar störf fyrir rétt 10 árum, þar á meðan Viktor Þorkelsson sem nú hefur verið kallaður úr þessum heimi fyrir aldur fram. Þrátt fyrir miklar breytingar í starfsemi félags- ins á þessum árum var Viktor alltaf boðinn og búinn að takast á við ný verkefni af ósérhlífni og jákvæðni. Viktor hafði marga góða mann- kosti og sérstaklega þann að sjá aldr- ei vandamál heldur einungis verkefni til að leysa. Það var ómetanlegt að hafa hann í okkar liði og þegar kom að því að setja upp nýjar verslanir eða breyta þeim eldri var hann að öðrum ólöstuðum manna duglegast- ur. Þar hlífði hann sér hvergi. Viktor sagði ekki margt, verkin töluðu hans máli. En léttur og kátur var hann ætíð þó svo að reyndi á hann í hans einkalífi. Það duldist engum að velferð barna hans og umhyggja voru hans forgangsverkefni. Það mun okkur seint gleymast hvernig hann umvafði yngsta son sinn í ferð á vegum fyr- irtækisins til Lundúna haustið 2005. Frá morgni til kvölds var verið að skoða borgina og allt miðaðist við að gera ferðina sem ánægjulegasta fyrir soninn, svo ef einhver ræddi um hans ósérhlífni þá var svarið einfaldlega bros og að þetta gæfi lífinu gildi. Þessi umhyggja skilaði sér í mann- vænlegum einstaklingum sem sýndu föður sínum í verki að þau kunnu að meta hans fórnfýsi fyrir velferð þeirra. Missir þeirra er mikill svo og samstarfsmanna hjá N1. Við vottum börnum hans, ættingj- um og vinum okkar dýpstu samúð. Heimir Sigurðsson, Ingi Þór Hermannsson. Aðalsveitakeppnin í Hafnarfirði Ein umferð var spiluð í aðalsveita- keppninni s.l. mánudag og heldur- spennan á toppnum bara áfram. Efstu sveitir eru þessar: 10-11 91. Elding 90 Erla Sigurjónsdóttir 84 Miðvikudagsklúbburinn 84 Einar Sigurðsson 76 Á eftir var jólaskapið allsráðandi þar sem spilaður var léttur jólatví- menningur og spilarar dregnir sam- an í pör. Efstir í N-S urðu Hafþór Krist- jánsson og Guðlaugur Bessason með 103 stig og í A-V voru það Björn Arnarson og Haukur Árnason með 98 stig. Nú tekur við jólafrí og er næst spilað þann 12. jan. á nýju ári en við minnum á jólamót Bridsfélags Hafn- arfjarðar sunnudaginn 28 des. kl. 17. Gleðileg jól. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Gullsmárinn Spilað var á 9 borðum í Gullsmára sl. mánudag. Efstu pör í N/S: Örn Einarsson - Jón Jóhannsson 207 Hrafnhildur Skúlad. - Þórður Jörundss. 201 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 188 A/V Elís Kristjánsson - Páll Ólason 225 Bragi Bjarnason - Birgir Ísleifsson 199 Ólafur Gunnarsson - Viðar Jónsson 174 Síðasti spiladagur ársins verður fimmtudaginn 18. des.en þá verður verðlaunaafhending og boðið upp á kaffi og spilamennsku. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 15.12. Spilað var á 15 borðum. Meðalskor 312 stig. Árangur N-S Magnús Oddss. - Oliver Kristófersson 397 Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánsson 367 Bragi Björnss. - Albert Þorsteinsson 345 Árangur A-V Auðunn Guðmss. -Björn Árnason 376 Örn Ingólfsson - Örn Ísebarn 369 Sigurður Jóhannss. - Siguróli Jóhannss. 350 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.