Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Á SAMA augnabliki og Hrefna Hallgrímsdóttir, sem leikur Skrítlu í barnaþáttunum Skoppa og Skrítla, eignaðist sitt þriðja barn í gær var Linda Ásgeirs- dóttir, sem leikur Skoppu, á leið með fyrstu kópíuna af bíómynd þeirra í Kvikmyndasafn Íslands. „Það má eiginlega segja að Hrefna, sem er hand- ritshöfundur myndarinnar, hafi eignast tvö börn á þessari stundu,“ segir Linda. Hrefna, sem var að vonum ánægð með litlu Skrítl- una sína sem kom í heiminn í gær, segir bíómyndina um þær stöllur, sem frumsýnd verður á annan í jól- um, vera sannkallaða fjölskyldumynd. „Það ríkir mikill kærleikur og gleði í þessari mynd og það er mikið sungið og dansað. Skoppa og Skrítla lenda í hinum ótrúlegustu ævintýrum,“ greinir Hrefna frá. Hún segir helming myndarinnar hafa verið tekinn upp á Íslandi og helminginn í Flórída þar sem hún þekkir vel til frá því að hún var þar í leiklistarnámi. „Það varð til ævintýraheimur þegar ég var að skrifa handritið og myndin var að hluta tekin upp á fal- legum stöðum sem manni hefði ekki dottið í hug nema af því að maður þekkti til þeirra, eins og til dæmis á strönd og í dýragarði.“ Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Skoppa og Skrítla brugðu sér út fyrir landsteinana. „Við höfum farið í tvær leikferðir til Bandaríkjanna, til New York og Flórída. Í New York sýndum við í norrænu menning- arhúsi á hátíð þar auk þess sem við vorum eiginlega keyptar út af félagasamtökum sem eru með dagskrá fyrir börn innflytjenda.“ Leikhús sem Hrefna hafði leikið í á Flórída bauð þeim stöllum síðan að sýna þar. Þær hafa einnig haldið sýningar fyrir börn í Tógó í Afríku og í Dan- mörku og kunnu þau vel að meta gleðigjafana. Eignaðist barn um leið og Skoppa fór með fyrstu kópíuna af bíómynd þeirra Skrítlu í Kvikmyndasafnið Morgunblaðið/Ómar Á fæðingardeildinni Leikkonurnar Hrefna Hallgrímsdóttir, með litlu Skrítlu í fanginu, og Linda Ásgeirs- dóttir. Kvikmyndin um Skoppu og Skrítlu, sem er fyrir alla fjölskylduna, verður frumsýnd á annan í jólum. TVÖFÖLD FÆÐ- ING SKRÍTLU Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is SIV Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í gær, á 92 ára afmæli flokksins, að hún hygðist gefa kost á sér til vara- formennsku í flokknum. Ný forysta verður kjörin á flokksþinginu þann 16. til 18. janúar næstkomandi. Sæunn Stefánsdóttir hefur ákveð- ið að gefa kost á sér áfram í embætti ritara Framsóknarflokksins. Í viðtali við mbl.is kvaðst Sæunn hafa hlut- verki að gegna þótt hún hefði setið í flokksstjórninni þar sem hún hefði aldrei setið í ríkisstjórn og ávallt lagt áherslu á breytingar í flokknum. Hún segir í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær að framsóknar- menn hafi verið of linir í samvinnu við aðra flokka og ekki haldið nægi- lega fram stefnu sinni. Undir þetta tekur Siv Friðleifs- dóttir á vissan hátt í yfirlýsingu sinni. Hún segir ástæðurnar fyrir því að Framsóknarflokknum hafi ekki tekist að vinna á ný það fylgi sem tapast hefði í síðustu alþingiskosn- ingum vera fleiri en eina. „Í tólf ára stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum tókst flokknum ekki nægjanlega vel að leggja áherslu á þann hugmyndafræðilega mun sem er á þessum flokkum. Síð- ustu árin var frjálshyggjan orðin sá gullkálfur sem hluti þjóðarinnar dansaði í kringum ýmist viljugur eða óviljugur. Afleiðingarnar blasa nú hvarvetna við. Innbyrðis átök hafa einnig reynst flokknum dýrkeypt. Menn hljóta að læra af þeim mistök- um.“ Auk Sivjar hefur Birkir Jón Jóns- son alþingismaður gefið kost á sér til varaformennsku í Framsóknar- flokknum. Þrír hafa gefið kost á sér í emb- ætti formanns, Jón Vigfús Guð- jónsson sjómaður, Höskuldur Þór- hallsson alþingismaður og Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi. Það var á miðstjórnarfundi Fram- sóknarflokksins um miðjan nóvem- ber sem ákveðið var að flýta flokks- þingi um tvo mánuði. Hart var sótt að forystu flokksins á miðstjórnar- fundinum og voru margir efins um að flokkurinn gæti tvöfaldað fylgi sitt í næstu kosningum, eins og fyrr- verandi formaður flokksins, Guðni Ágústsson, kvaðst trúa, nema skipt væri um menn í brúnni. Fleiri vilja í forystuna Siv í varaformanninn og Sæunn áfram í embætti ritara Sæunn StefánsdóttirSiv Friðleifsdóttir FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is GERT er ráð fyrir að 17,5 millj- arðar króna verði greiddir úr At- vinnuleysistryggingasjóði á næsta ári. Í endurskoð- uðu fjárlaga- frumvarpi var þessi upphæð vegna atvinnu- leysisbóta hækk- uð um 10,2 millj- arða frá því í haust. Þá er lagt til að framlag til Ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota hækki um 937,8 milljónir króna frá því sem áður var ráðgert og verði 1.800 milljónir á árinu 2009. Sigurður P. Sigmundsson, sviðs- stjóri rekstrarsviðs Vinnumála- stofnunar, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að greiðslur úr Ábyrgðasjóðnum hefðu farið lækk- andi undanfarin ár í takt við góð- ærið. Í lok síðasta árs hefði verið byrjað að þrengjast um, t.d. í bygg- ingariðnaði. Í ár hefði enn sigið á ógæfuhliðina og stefndi í að yfir 900 milljónir yrðu greiddar úr sjóðnum í ár vegna gjaldþrota. „Á næsta ári gerum við ráð fyrir að þessi upphæð nánast tvöfaldist og verði um 1800 milljónir,“ segir Sigurður. „Þarna er um sprengingu að ræða hvað varðar greiðslur úr Ábyrgðasjóðnum og margar grein- ar atvinnulífsins eru orðnar veik- burða. Ég er ekki aðeins að tala um byggingariðnaðinn, því gjaldþrot hafa t.d. aukist í þjónustugreinum og nú hafa jafnvel fasteignasölur komið inn á borð Ábyrgðasjóðsins,“ segir Sigurður. Varlega áætlað að reikna með 5,7% atvinnuleysi Í skýringum með endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi kemur fram að á árinu 2009 er áætlað að atvinnu- leysi verði 5,7% og að meðalfjöldi atvinnulausra verði um 9.500 manns. Í þjóðhagsspá sem kynnt var í byrjun október var reiknað með að atvinnuleysi yrði 2,7% á næsta ári. Í frumvarpinu frá því í október í haust var gert ráð fyrir að 7,3 millj- arðar færu í atvinnuleysisbætur á næsta ári. Nú er sú upphæð komin í 17,5 milljarða. Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að 8.907 manns voru skráðir án atvinnu á landinu öllu í gær. Karlar voru 5.551 og konur 3.356. Sigurður P. Sigmundsson segir að áætlun um 5,7% atvinnuleysi á næsta ári sé varlega áætluð. „Eins og staðan er núna bendir allt til að meðalatvinnuleysi í desember verði 4,5% og hjá Vinnumálastofnun höf- um við talað um að í lok janúar gæti atvinnuleysið verið orðið um 6% og allt að 7% í lok febrúar. Síðan er það spurning hvernig rætist úr á vinnumarkaði í vor og sumar.“ Hvert prósentustig í atvinnu- leysi rúmlega 1700 manns Sigurður segir að miðað sé við að á vinnumarkaði séu nú yfir 170 þús- und manns. Hvert prósentustig í at- vinnuleysi þýði að yfir 1700 manns séu án atvinnu og hvert stig kosti þrjá milljarða króna á ári í bætur fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð. Fram kemur í skýringum með endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi að í umbeðinni fjárhæð nú er ekki gert ráð fyrir mögulegum sparnaði vegna nýs ákvæðis í lögum um at- vinnuleysistryggingar um greiðslur atvinnubóta á móti hlutastarfi. Greiðslur vegna gjaldþrota tvö- faldast á næsta ári Gert er ráð fyrir að 17,5 milljarðar verði greiddir í atvinnuleysisbætur 2009 Í HNOTSKURN »Hámarksábyrgð Ábyrgða-sjóðs launa vegna vangold- inna launa eða launa í upp- sagnarfresti er 345 þúsund krónur á mánuði í ár. »Hámarksábyrgð á greiðsluáunninna orlofslauna er kr. 552 þúsund. »Ákvörðun um hver upp-hæðin verður á næsta ári liggur ekki fyrir. Sigurður P. Sigmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.