Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 FJÖLMENNUSTU mótmælin til þessa fyrir framan ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu fóru friðsamlega fram í gær og var enginn handtek- inn. Mótmælendur lokuðu götunni í aðdraganda ríkisstjórnarfundar og greip lögreglan til þess úrræðis að hjálpa ráðherra inn bakdyramegin frá Suðurgötu við háðsglósur mótmælenda. Áætlað er að á annað hundrað manns hafi tek- ið þátt í mótmælunum, en lögreglan hafði mikinn viðbúnað á staðnum með ríflega sextíu manna lið. Mótmælendur púuðu á ráðherra þegar þeir mættu til fundar og kölluðu þá m.a. valdníðinga og aumingja. Mótmælin stóðu í um klukkustund og virtust vel skipulögð, því hætt var á slaginu tíu. Þá komust mótmælendur að samkomulagi við lögregluna um að fá að þramma óáreittir nið- ur Tjarnargötu framhjá ráðherrabústaðnum. silja@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Ráðamenn kallaðir valdníðingar og aumingjar Fjölmenn mótmæli við ráðherrabústaðinn meðan ríkisstjórnarfundur stóð yfir Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „VIÐ höfum átt í erfiðleikum eins og önnur fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. Kostnaður bæjarins vegna lóðaskila hefur verið þung byrði í erfiðu árferði,“ segir Gerður Guðjónsdóttir, fjármálastjóri Hafn- arfjarðarbæjar. Erfiðleikar í efnhagslífi hér á landi hafa komið illa niður á Hafn- arfjarðarbæ. Lán í erlendri mynt, sem bærinn tók á vormánuðum þessa árs, hafa hækkað mikið vegna veikingar krónunnar. Lánið hefur snarhækkað Lánið var upp á þrjá milljarða króna þegar það var tekið en skuldin nemur nú á sjötta milljarð. Þá hefur lóðum sem úthlutað var verið skilað í miklum mæli á haustmánuðum. Bærinn hefur þurft að endurgreiða þeim sem skila lóðum til bæjarins, sem þeir höfðu áður greitt fyrir, á þriðja milljarð króna. Kostnaðurinn hefur meðal annars verið íþyngjandi í ljósi þess að samningsbundið er að bærinn þurfi að greiða þeim sem skila lóðum fullt verð og verðbætur að auki. Drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár voru lögð fyrir bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar í gær. Gert er ráð fyrir töluverðri endurskipulagn- ingu og niðurskurði til þess að mæta erfiðu rekstrarumhverfi og íþyngj- andi skuldum. Gerður vildi ekki tjá sig um ein- staka þætti í fjárhagsáætlun bæj- arins í ljósi þess að hún er enn til umfjöllunar hjá bæjarstjórn og hef- ur ekki verið samþykkt. Gerður sagði lítið fjármagnsflæði hjá bænum valda nokkrum erf- iðleikum. „Fjármagnsflæðið hefur ekki verið eins og það á að sér að vera hjá okkur að undanförnu. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að ekki hefur tekist að borga alla reikn- inga á réttum tíma, en þeir eru þó alltaf greiddir að lokum.“ Gerður segir að rekstrarstaða margra sveitarfélaga í landinu sé erfið. „Staðan er orðin íþyngjandi fyrir sveitarfélög. Það gefur auga leið. Við munum þurfa að fara út í lántöku til þess að bregðast við stöð- unni á næstu misserum. Aðgengi að fjármagni hefur ekki verið gott upp á síðkastið þannig að áform um lán- töku eru háð nokkurri óvissu. Ný fjárhagsáætlun verður lögð fram á bæjarstjórnarfundi á fimmtudag (á morgun). Hún tekur mið af rekstr- araðstæðum sem nú eru fyrir hendi.“ Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu gerir Seðlabanki Ís- lands ráð fyrir því tekjur ríkisins og sveitarfélaga muni dragast saman um 15,5 prósent á næsta ári. Fyr- irsjáanlegt er að útgjöld muni hækka umtalsvert umfram fyrri áætlanir. Meðal annars vegna mikils fjármagnskostnaðar. Greiðslustaðan er erfið  Hafnarfjarðarbær á fjárhagserfiðleikum  Fjármálastjóri bæjarins staðfestir að bærinn hafi ekki getað greitt reikninga á réttum tíma í öllum tilfellum Sveitarfélög munu fá heimild til þess að hækka útsvar um 0,25 prósent. Úr 13,03 prósentum í 13,28 prósent. Mörg sveitarfélög fullnýta heimildina við innheimtu útsvarstekna og má gera ráð fyr- ir að mörg þeirra muni gera það áfram í ljósi rýmkunar á heimild- inni. Hækkun heimildarinnar þýð- ir auknar tekjur fyrir sveit- arfélögin um tvo milljarða króna. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hafa kjörnir fulltrúar í sveitarfélögum lands- ins rætt saman um það á vett- vangi Sambands íslenskra sveit- arfélaga að allt kapp verði lagt á að verja grunnþjónustuna sem sveitarfélög þurfa að sinna. Það er skólaþjónusta upp að fram- haldsskólastigi, félagsþjónusta, sorphirða og þess háttar. Auk þess hafa flest sveitarfélög litið á rekstur íþróttamannavirkja sem grunnþjónustu þótt lög geri ekki sérstaklega ráð fyrir honum sem grunnþjónustu. Mörg sveit- arfélög hafa varið miklu fé í að byggja upp mannvirki fyrir starf- semi íþróttafélaga. Aukinn kostnaður lendir á íbúunum VERÐHRUN Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti húsgögn verð frá kr.9.900,- STEFNT er að því að skíðasvæðið í Bláfjöllum verði opnað almenningi á fimmtudag eða föstudag, að sögn Magnúsar Árnasonar, forstöðu- manns skíðasvæðanna. Hann segir að kominn sé snjór í allar brekkur skíðasvæðisins en þó ekki alveg nægur alls staðar. Unnið sé að því að útbúa öruggar skíðaleiðir og verði vonandi opið um helgina. Magnús segist vonast til þess að hægt verði að hafa skíðasvæðið op- ið um jólin. Reynist færi geti fólk skellt sér á skíði á jóladag. Magnús segir að enn sé ekki næg- ur snjór á skíðasvæðinu í Skálafelli til að opna þar. elva@mbl.is Stefnt að opn- un Bláfjalla næstu daga Morgunblaðið/Ómar Skíði Margir skíðaunnendur fagna þegar snjór er nægur í Bláfjöllum. ROBERT Dar- iusz Sobiescki sem Hæstiréttur dæmdi 4. des- ember sl. í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku á Hótel Sögu hef- ur enn ekki komið í leit- irnar. Hann er eftirlýstur hér á landi og engar vísbendingar hafa komið fram um að hann hafi farið úr landi, samkvæmt upplýsingum Fangels- ismálastofnunar. Sobiecki var í farbanni þar til dómur féll og átti að hefja af- plánun þá þegar. Þegar hann gaf sig ekki fram lýsti lögreglan eftir honum. Lögreglan tekur við upp- lýsingum um ferðir mannsins í síma 444-1000. Hefur enn ekki fundist Robert Dariusz Sobiecki „VERÐI þetta frumvarp samþykkt sem lög frá Alþingi felst í því gríð- arleg pólitísk yfirlýsing af hálfu ís- lenska þingsins og skýr skilaboð gagnvart breskum yfirvöldum um að við sættum okkur ekki við þá með- ferð sem Íslendingar voru látnir sæta þegar Bretar beittu hryðju- verkalögunum,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður. Hann er fyrsti flutningsmaður frumvarps fimm þingmanna úr öll- um flokkum þess efnis að fjármála- ráðherra megi veita fé eða lán til þess að standa straum af kostn- aði vegna máls- höfðunar þeirra sem þurftu að þola aðgerðir Breta. „Þá er maður fyrst og fremst að hugsa um Landsbanka sem settur var á hryðjuverkalista og innrás í dótturfélag Kaupþings sem leiddi til þess að Kaupþing féll,“ tek- ur Sigurður fram. Hann bætir því við að brýnt sé að leggja frumvarpið fram nú þar sem fyrir liggi að máls- höfðunarfrestir, að minnsta kosti í máli Kaupþings, séu að renna út. Í greinargerð með frumvarpinu segir að hagsmunir af málsókn séu svo veigamiklir að óvissa um hver beri fjárhagslega og lagalega ábyrgð á henni megi ekki standa í vegi. ingibjorg@mbl.is Vilja að fé verði veitt til málsóknar gegn Bretum Sigurður Kári Kristjánsson VÍSITALA íbúðaverðs á höf- uðborgarsvæðinu, sem Fast- eignamat ríkisins reiknar út, lækk- aði um 0,3% í nóvember frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 0,2% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 1,2%, samkvæmt upplýsingum Fasteignamatsins. Vísitala íbúða- verðs lækkar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.