Árdís - 01.01.1947, Blaðsíða 20
fyrsta kvenfélags myndun, var ekki tengd við kirkjulega starfsemi. En
aðal markmið þessa fyrsta kvenfélags var að hjálpa og líkna bágstöddum
á ýmsa vegu, leiðbeina löndum sinum og auk þess styrkja ýms góð og
þarfleg málefni bæði hér og heima. Þetta félag starfaði í fimm ár, en
loks varð sú breyting á, að það skiftist og nokkrar af konunum stofnuðu
kirkju kvenfélag undir forystu frú Lára Bjamason. Þetta kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar, var myndað haustið, 1886. Tímar liðu og kvenfélagið
og söfnuðurinn þroskaðist og aðrir söfnuðir í hinum ýmsu íslenzku byggð
um, áttu líka sin kirkju kvenfélög, sem unnu með dyggð og kostgæfni að
styðja sina söfnuði á allan hátt, því kvenfélags konur fundu fljótt, að þær
áttu sameiginlegan fjársjóð og að samvinna var þeim blessuð og dýimæt.
Mörg þarfleg fyrirtæki vom á dagskrá kvenfélaganna, en það þarf-
asta og mannúðarlegasta var fyrirtækið, að setja á stofn íslenzkt heimili
fyrir gamalmennin. Betel var hugsjón frú Lám Bjarnason í samráði við
aðrar kvenfélags konur.
Hvernig þessi hugsjón gagntók huga og hjörtu íslendinga víðsveg-
ar, þarf ekki frá að skýra og það er min bjargföst trú, að landar vorir sjái
sóma sinn í að láta heimilið Betel aldrei v'anta það sem þarf til viður-
væris. Minningin um hina göfugu konu, frú Láru, og hinn mikla og góða
mannúðarvin, Dr. B. J. Brandson, krefst þess, að landar bregðist ekki því
fyrirtæki á meðan nokkur þörf gerist.
Hugmyndin um að sameina öll kvenfélög í eina félagsheild, átti
upptök sín í kvenfélagi Fyrsta lúterska safnaðar og var það frú Lára sem
fyrst vakti máls á því. En ekkert var gert þar til 1924, að málið var inn-
leitt á ný af þáverandi forseta, Mrs. Finnur Johnson. Stofnfundurinn var
haldinn í Selkirk í júní 1925, og er því félagið nú 22 ára, eða komið yfir
lögaldur. Árlega síðan hafa konur komið saman á sitt kvennþing og rætt
sin sérmál og heitið stuðning mörgum góðum og göfugum málefnum.
Margar hugsjónir hefir Bandalagið haft á sinni dagskrá. Heimilis guðs-
þjónustur, sameiginleg morgun bænastund, samkeppni í framsögn ís-
lenzkra ljóða, sem um 300 böm tóku þátt í, og blaðið okkar, Árdís.
Allir meðlimir B.L.K., hafa frá byrjun unnið dyggilega að því, að
þetta félags samband gæti blómgast og þroskast, því þetta var þeirra
hugsjón. Og öllum, sem fylgst hafa með starfi Bandalagsins , er kunnugt
um kristindóms fræðslustarf Mrs. H. G. Henrickson, sem í fjöldamörg
ár, hafði bréfasamband við skólakennara í prestslausum byggðum og
sendi þeim blöð og bækur til að nota við kristindóms kenslu í skólun-
um eina klukkustund í viku.
18