Árdís - 01.01.1947, Blaðsíða 60
MINNINGAR.
o o Ö
FRÚ ÞÓRUNN MELSTED.
f. 18. okt. 1872 - d. 26. febr. 1947.
Þessarar merku konu var á sínum tíma, að nokkru minnst í islenzku
vikublöðum í Winnipeg. En það er áreiðanlega vel við eigandi, að árs-
ritið Árdís minnist hennar líka þó ekki geti verið nema stuttlega í litlu
riti.
Frú Þórunn var fædd í Reykjavík á Islandi 18. október 1872. Faðir
hennar var Ólafur söðlasmiður, sonur Ólafs Jónssonar óðalsbónda á
Sveinsstöðum í Húnaþingi, en móðir hennar var Kristín María Jónína
Jónsdóttir Kristjánssonar prests á Breiðabólstað í Vesturhópi.
Þórunn var uppalin í Görðum á Álftanesi hjá séra Þórarni Böðvars-
syni og konu hans, Þórunni Jónsdóttur og var hún í náinni frændsemi
við þau merku hjón bæði. Mun það heimili hafa verið talið eitt með
merkustu heimilum landsins á þeim tíma. Það var því hvortveggja, að
frú Þórunn var af góðu bergi brotin og fékk gott uppeldi, enda bar hún
þess ljós merki alla æfi.
Til Canada fluttist hún 1893 og settist að hjá foreldrum sínum, sem
þá voru flutt til Winnipeg, og átti hún heima hér í borginni næstum alla
æfi síðan. 1 júnímánuði 1898 giftist hún Sigurði W. Melsted, sem síðar
um langt skeið, var forstjóri fyrir stórri umfangsmikilli húsgagnaverzlun
í Winnipeg. Foreldrar Sigurðar voru þau Vigfús Guðmundsson, prófastur
á Melstað, en móðir Sigurðar var Oddný Ólafsdóttir frá Sveinsstöðum.
Sumarið 1903 bygðu þessi hjón sér heimili að 673 Bannatyne Ave.
hér í borginni og var það heimili þeirra jafnan síðan og er enn heimili
ekkjumannsins og bama hans tveggja, sem heima em hjá honum. Þótti
heimili þeirra þegar fyrirmyndarheimili að hreinlæti, smekkvísi og allri
híbýlaprýði. Það var snemma annálað fyrir gestrisni, glaðværð, prúð-
menzku og góðvild. Frú Þórunn var fyrirmyndar húsmóðir og maður
hennar var henni áreiðanlega samtaka í því sem öðm, að g'era heimili
þeirra eins ánægjulegt og aðlaðandi sem best mátti vera. Þessi hjón
létu sér afar ant um uppeldi bama sinna ognutulíkaþeirrarmikluánægju,
að sjá þau öll komast til menningar og þroska og verða góðir og nýtir
58